Fréttablaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Í Fréttablaðinu í gær var ranglega
sagt að 33 lögaðilar hefðu styrkt
Miðflokkinn um 200 þúsund krónur
eða meira í fyrra. Rétt er að 33
lögaðilar styrktu flokkinn alls, um
upphæðir á bilinu 50-400 þúsund.
Leiðrétting
Dýrið er mjög
laskað og mjög
veikburða. Það er hálfgert
kraftaverk að við höfum náð
því á flot lifandi.
Sverrir Tryggvason, starfs mað ur hval a
skoð un ar fyr ir tæk is ins Special Tours
reykjavíkurborg „Upphæðin er
slík að ég sé fyrir mér enn meiri
ástæðu til að færa þessi mál betur
inn í borgina og mannauðsdeild
ina,“ segir Kolbrún Baldursdóttir,
borgarfulltrúi Flokks fólksins, um
kostnað borgarinnar við aðkeypta
þjónustu sjálfstætt starfandi sál
fræðinga vegna eineltismála.
Í svari við fyrirspurn Kolbrúnar
um kostnaðinn, sem birtist í fundar
gerð borgarráðs í gær, kemur fram
að kostnaðurinn hafi numið rúmum
11,3 milljónum króna síðastliðin
fimm ár.
Borgarráð samþykkti í júlí
síðastliðnum tillögu Kolbrúnar
um stofnun stýrihóps um endur
skoðun gildandi stefnumótunar
borgarinnar gegn einelti, áreitni og
ofbeldi. Hugmyndin er að Kolbrún
fari fyrir hópnum og nýti þar ára
langa reynslu sína sem sálfræðingur
á þessu sviði.
„Markmiðið er að borgin eigi að
geta sinnt stofnunum borgarinnar
betur í þessum málum og þurfi
ekki að leita alltaf út á við, því það
kostar auðvitað mjög mikið. Ég vil
koma inn með verkferla, tillögur að
forvörnum og úrvinnslu mála enda
hef ég verið lengi að vinna í þessum
málum sjálf,“ segir Kolbrún sem
kveðst í tengslum við tillögu sína
um stofnun þessa stýrihóps hafa
viljað fá að vita hvað borgin væri að
borga fólki úti í bæ fyrir að taka á
þessum málum.
„Það er mannauðsdeild hér á
vegum borgarinnar og jafnvel þótt
einhver tengsl séu þá er lítið mál að
láta viðkomandi víkja og kalla annan
inn, búa til öflugt teymi. Eins þegar
stofnanir borgarinnar eru með yfir
mann sem verið er að kvarta yfir, þá
þarf borgin að geta tekið á þessum
málum af fagmennsku.“
Í svarinu segir að mannauðsdeild
ráðhússins og mannauðsþjónustur
fagsviða sinni forvörnum í tengslum
við samskiptamál og vinnustaðar
menningu starfsstaða. – smj
Borgin hefur varið 11,3 milljónum í sálfræðinga vegna eineltismála
Kolbrún
Baldursdóttir,
borgarfulltrúi
Flokks fólksins.
mosfeLLsbær Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur skrif
að undir nýjan ráðningarsamning.
Mánaðarlaun hans verða tæpar
tvær milljónir króna.
Mánaðarlaunin
tvær milljónir
Haraldur
Sverrisson,
bæjarstjóri í
Mosfellsbæ.
Ný bæjarstjórn hefur gengið frá
ráðningu Haraldar, sem hefur verið
bæjarstjóri síðan haustið 2007. Í
ráðningarsamningi segir að launin
skuli vera samkvæmt úrskurði
kjara ráðs um laun ráðuneytis
stjóra forsætisráðuneytis. Hann fær
greiddar 50 einingar af yfirvinnu á
mánuði og fær greitt fyrir 1.200 kíló
metra akstur á eigin bíl á mánuði.
Föst laun Haraldar, miðað
við launatöflu kjararáðs, nema
1.339.043 krónum á mánuði. Fyrir
50 yfirvinnustundir fær Haraldur
478.650 en vegna aksturs fær hann
129.800 krónur á mánuði. Samtals
nema launagreiðslurnar 1.947.493
krónum á mánuði. – bg
náttúra Andarnefja sem lifði
af strand við Engey komst á flot
á níunda tímanum í gærkvöld og
synti þá við Reykjavíkurhöfn í fylgd
björgunarsveitarmanna.
„Við erum búin að koma öðru
dýrinu út og það er byrjað að synda.
Það er einn á sæþotu og annar á bát
að fylgja því áleiðis að koma sér út,“
sagði Sverrir Tryggvason, starfs
mað ur hval a skoð un ar fyr ir tæk is ins
Special Tours, í samtali við fretta
bladid.is, vef Fréttablaðsins, eftir
að andarnefjan náðist á flot á kvöld
flóðinu.
„Dýrið er mjög laskað og mjög
veikburða. Það er hálfgert krafta
verk að við höfum náð því á flot
lifandi,“ bætti Sverrir við. „En nú
verður að fylgja því eftir og koma
því út á dýpra svæði. Hún reynir þá
vonandi að finna hópinn sinn. Við
vonum það besta.“
Sverrir sagði að andarnefjunni
yrði fylgt fram í myrkur. Eftir það
yrði lítið meira hægt að gera.
Hin andarnefjan drapst er reynt
var að snúa henni við, skömmu áður
en sjór flæddi að dýrinu. „Við vorum
að reyna að snúa henni við og það
gæti verið að hún hafi ekki þolað
það. Hún hafði hreyft sig svo mikið.
Hún lá á hliðinni og við vorum að
reyna að koma henni á réttan kjöl.
Hún var líka búin að missa mikið
af blóði og kramdist eflaust undan
eigin þunga,“ sagði Sverrir þegar
ljóst var að hvalurinn væri dauður.
Mikið lið björgunarfólks tók
þátt í að reyna að halda lífi í hvöl
unum, bæði frá hvalaskoðunarfyrir
tækjum og frá björgunarsveitinni
Ársæli. Sjódælur frá Faxaflóahöfn
voru fluttar út í Engey.
Edda Elísabet Magnúsdóttir
hvalasérfræðingur sagði andar
nefjurnar í eins góðum höndum
og hægt væri að búast við miðað
við aðstæður. Báðir hvalirnir hafi
verið kvendýr. Edda sagði þær hafa
gengið í gegnum mikið streitutíma
bil við strandið. Dýrunum hafi verið
haldið blautum og reynt hafi verið
að koma öndun þeirra í lag. Reynt
yrði að aðstoða þá sem lifði til að
komast eins langt út og hægt væri.
Að sögn Eddu voru aðstæður
svipaðar því sem var fyrr í vikunni
er grindhvalatorfa var strand í
Kolgrafafirði. Líklega hafi hvalirnir
í báðum tilfellum villst í matarleit.
Báðar tegundirnar séu djúpsjávar
hvalir sem koma nærri landi þegar
smokkfiskurinn fer upp að landi eða
ef þeir eru að forða sér undan hættu
eða hljóðmengun. Edda taldi þó lík
legt að andarnefjurnar hefðu villst í
ætisleit. lovisa@frettabladid.is
Björguðu andarnefju úr Engey
Andarnefjan sem var ofar í fjörunni lifði ekki strandið af en hinn hvalurinn náðist lifandi á flot. FréttABlAðið/Eyþór
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Sjáðu fleiri myndir af
hvölunum á plúsnum.
Björgunarfólki tókst
í gærkvöld að koma á
flot annarri af tveimur
andarnefjum sem
strönduðu í fjörunni í
Engey í gær. Talið var að
hún myndi spjara sig.
Hin andarnefjan drapst
skömmu áður en flæddi
að henni.
Hvalasérfræðingur telur
andarnefjurnar hafa villst
upp í land þegar þær voru í
fæðuleit.
1 7 . á g ú s t 2 0 1 8 f Ö s t u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
1
7
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
8
-B
D
D
0
2
0
9
8
-B
C
9
4
2
0
9
8
-B
B
5
8
2
0
9
8
-B
A
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K