Fréttablaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 24
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Hjónunum finnst gaman að veiða þar sem er veiðivon. Katrín segir Kristján hafa náð að vekja áhuga sinn á veiði. Allri fjölskyldunni finnst fiskurinn úr Veiðivötnum lostæti. Á brúðkaups- daginn. Katrín Ósk og Kristján Örn með Ásdísi Kötlu, Bryndísi Köru og Kristján Einar. Nýgift í fögru umhverfi Veiðivatna, sem er engu öðru líkt. Við giftum okkur þann 21. júlí síðastliðinn í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Skömmu eftir brúðkaupið fórum við með vina- hópi okkar í Veiðivötn þar sem við vorum við veiðar í nokkra daga. Við köllum þetta brúðkaupsferð í hálfgerðu gríni en það er að myndast hefð fyrir því í fjöl- skyldunni að fara í Veiðivötn eftir brúðkaup, ásamt kokkinum sem sér um matinn í brúðkaupinu,“ segir Katrín brosandi. „Þannig er mál með vexti að Lilja Sif, systir mín, giftist Stefáni, manninum sínum, fyrir fimm árum og helgina eftir brúðkaupið fóru þeir Stefán og Kristján upp í Veiðivötn, ásamt Alfreð G. Maríussyni kokki sem er í sama veiðihópi. Það vakti mikla kátínu í hópnum og var ferðin kölluð „brúðkaupsferðin“, nema brúðurin var ekki með í för í það skiptið. Þegar við Kristján vorum að plana okkar brúðkaup hringd- um við strax í Alfreð og báðum hann um að sjá um matinn í okkar veislu. Fyrr en varði var búið að skipuleggja veiðiferð strax eftir brúðkaupið, áður en byrjað var að ákveða matinn fyrir veisluna. Við plönum að fara í aðra brúðkaups- ferð árið 2020 en þá bara við tvö þar sem við deilum ekki skála með níu manns,“ segir Katrín en þau hjónin eru búsett í Danmörku og eiga þrjú börn, Kristján Einar 8 ára, Ásdísi Kötlu 6 ára og Bryndísi Köru 3 ára. Þau hjónin segja að veiðin í brúðkaupsferðinni hafi gengið ágætlega en það hafi þó vantað aðeins upp á stærðina á silungn- um þetta sumarið. „Við veiddum mest af öllum í hópnum en feng- um þó ekki stærstu fiskana,“ segir Kristján sem veit fátt skemmti- legra en að veiða. „Ég fer í veiði í hvert sinn sem tími gefst til og hef farið í Veiðivötn tvisvar til þrisvar á hverju sumri síðustu fjórtán árin en Katrín hefur komið með síðustu tvö sumur. Veiðiferðirnar eru óneitanlega ekki eins margar og ég vildi þar sem við erum búsett í Danmörku en vonandi breytist það þegar við flytjum heim aftur.“ Veiðiáhuginn er smitandi Katrín segir veiði aðallega vera áhugamál eiginmannsins en honum hafi tekist að fá hana með sér í þetta sport með ágætum árangri. „Ég fer oftar í veiði nú en áður og heimtaði að fá mínar eigin vöðlur eftir síðustu veiðiferð. Um síðustu helgi fékk ég óskina upp- fyllta,“ segir hún glaðlega. Spurð hvort þau lumi á góðri veiðisögu segist Kristján eiga eina góða af Katrínu. „Þar sem hún hefur ekki farið í margar veiði- ferðir er kannski ágætt að segja eina stutta af henni frá því í fyrra. Við vorum að veiða með hópnum okkar í Grænavatni á góðum degi. Þar sem Katrín var að læra réttu handtökin og nennti ekki að kasta út í og bíða setti ég spún á línuna hjá henni og sagði henni bara að kasta og draga inn eins og hún vildi. Stuttu seinna kallar hún á mig og vill meina að hún sé búin að festa spúninn í vatninu. Ég kalla til hennar að draga hann þá inn við lítinn fögnuð þar sem hún hélt að ég væri að gera grín að henni en línan var að taka skarpa beygju til hægri og ekkert fast heldur vænn fiskur búinn að bíta á.“ Veiðivatnafiskurinn uppáhald barnanna Þar sem silungur er í miklu uppá- haldi hjá fjölskyldunni er þess vel gætt að þetta góða hráefni fari ekki til spillis. „Oftast látum við reykja hluta af aflanum. Í ár flökuðum við silunginn og flokkuðum í hæfi- lega stóra skammta fyrir fimm manns og settum síðan í frysti. Þannig er auðvelt að taka einn og einn skammt úr frysti og þar sem við búum í Danmörku var fisknum pakkað þannig að við gátum tekið tíu kíló með okkur út. Börnin okkar elska fisk og allri fjölskyldunni finnst Veiðivatna- fiskurinn extra góður á bragðið, enda er hann yfirleitt frekar feitur,“ segir Katrín. Þegar hjónin nýbökuðu eru spurð hvar þeim finnist skemmti- legast að veiða segir Kristján að mest gaman sé að veiða þar sem veiðivon er góð og aðstæður fal- legar. „Veiðivötn eru þar efst á lista en Hópið og vatnasvæði Selár eru líka í miklu uppáhaldi,“ segja þau Katrín og Kristján. Brúðkaupsferð í Veiðivötn Katrín Ósk Einarsdóttir og Kristján Örn Kristjánsson gengu í hjónaband fyrr í sumar. Þau eyddu hveitibrauðsdögunum í Veiðivötnum við veiðar í ægifögru umhverfi og veiddu vænar bleikjur. EITT KORT 34 VÖTN 7.900 kr. 00000 www.veidikortid.is JÓLAGJÖF VEIÐIMAN NSINS! Sölustaðir: N1 - OLÍS - ÍSLANDSPÓSTUR og veiðivöruverslanir um land allt. Frí heimsending þegar pantað er á www.veidikortid.is. Vatnaveiði er fjölskylduvæn útivist. Börn yngri en 14 ára veiða frítt með korthafa. 4 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . ÁG ú s t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R HAUstVEIÐI 1 7 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 8 -A F 0 0 2 0 9 8 -A D C 4 2 0 9 8 -A C 8 8 2 0 9 8 -A B 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.