Fréttablaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 6
Heilbrigðismál Fimmtán einstakl-
ingar sem voru á biðlista eftir með-
ferð á Vogi í fyrra létust áður en til
meðferðar kom. Ellefu einstakling-
ar sem biðu meðferðar létust árið
2016. Þetta kemur fram í svari heil-
brigðisráðherra við fyrirspurn Söru
Elísu Þórðardóttur sem birt var á vef
Alþingis í gær.
Í svari ráðherra kemur einn-
ig fram að um það bil þriðjungur
þeirra sem fara á biðlista skili sér
ekki í meðferð, ýmist hætti við,
mæti ekki til innlagnar eða ekki
náist í viðkomandi.
„Biðlistar eru slæmir, best er að
geta komið til móts við fólk þegar
það biður um aðstoð en ekki vikum
eða mánuðum síðar. Þá getur margt
hafa breyst,“ segir Valgerður Rúnars-
dóttir, yfirlæknir á Vogi.
Aðspurð segir Valgerður að SÁÁ
hafi ekki upplýsingar um dánar-
orsakir þeirra sem létust meðan
þeir biðu meðferðar. Bráðveikir fá
þjónustu í heilbrigðiskerfinu öllu
sem betur fer.
Töluvert hefur verið rætt um
aukna tíðni dauðsfalla hér á landi
vegna vímuefnanotkunar. Í erindi
Þórarins Tyrfingssonar um efnið á
Læknadögum í janúar kom fram að
í fyrra hafi 32 áfengis- og vímuefna-
sjúklingar undir fertugu látist. Þar
af var tæpur helmingur undir þrí-
tugu. Á árinu 2016 létust 27 undir
fertugu þar af níu undir þrítugu.
Tölur á borð við þessar hafi ekki sést
frá því í kringum aldamót en fíkn í
sterkari ópíóíða hafi byrjað að vaxa
aftur árið 2013 og náð áður óþekktri
stærð árið 2016.
Tölurnar sem Þórarinn byggði
erindi sitt á eru sóttar í gagna-
grunn Vogs sem nær yfir um það
bil 25 þúsund einstaklinga. Hann
segir fjölgun á ótímabærum dauðs-
föllum meðal hinna yngri í grunn-
inum gefa vísbendingu um að auka
þurfi og bæta bráðaþjónustu við
þetta fólk en þjónustan er í höndum
Vogs, bráðamóttöku Landspítalans,
sjúkraflutninga og lögreglu. Um fjár-
sveltar stofnanir sé að ræða og bið-
listar hafi aldrei verið lengri.
Í svari ráðherra kemur einnig
fram að fram undan sé stefnumótun
um meðferðarúrræði vegna fíkni-
vanda. Fjölbreytileiki og framboð
meðferðarúrræða verði meðal þess
sem farið verði yfir í þeirri vinnu.
Valgerður segir að meðferðar-
úrræðin þurfi að vera fjölbreytt og
þau hjá SÁÁ myndu gjarnan vilja
gera miklu meira, til dæmis hafa
öflugri göngudeild.
„Að tala um að það vanti úrræði
og fjölbreytni er eitt en annað að
greiða ekki einu sinni fyrir þau
mörgu úrræði sem eru veitt, það er
sérstakt. Ríkið sinnir því ekki. Orð
duga skammt,“ segir Valgerður.
adalheidur@frettabladid.is
Fimmtán sem biðu eftir
plássi á Vogi dóu í fyrra
Fimmtán þeirra einstaklinga sem biðu eftir meðferð á Vogi í fyrra létust áður en
til meðferðar kom. Ellefu af biðlistanum létust árið 2016. Valgerður Rúnarsdótt-
ir, yfirlæknir á Vogi, gagnrýnir heilbrigðisyfirvöld og segir orð duga skammt.
Yfir tvö þúsund manns eru skráð á biðlista hjá SÁÁ. Fréttablaðið/Heiða
Að tala um að það
vanti úrræði og
fjölbreytni er eitt en annað
að greiða ekki einu sinni
fyrir þau mörgu
úrræði sem eru
veitt, það er
sérstakt.
Valgerður Rúnars-
dóttir, yfirlæknir á
Vogi.
Baráttukona fallin frá
Drottning sálartónlistarinnar, Aretha Franklin, lést á heimili sínu í Detroit í gær, 76 ára að aldri. Aretha þótti bera með sér ferskan femínískan blæ
með helstu smellum sínum frá sjöunda áratugnum á borð við Think, Respect, Natural Woman. Söngkonan fylgdi demókrötum að málum og tók
virkan þátt í réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum ásamt Martin Luther King sem var tíður gestur á æskuhemili hennar. NordicpHotoS/GettY
Save the Children á Íslandi
samfélag Sex gefa kost á sér í for-
mannskjöri hjá Neytendasamtök-
unum. Framboðsfrestur rann út á
miðnætti í gær. Ný forysta verður
kosin á þingi samtakanna í október.
Í framboði eru Ásthildur Lóa Þórs-
dóttir, formaður Hagsmunasam-
taka heimilanna, Breki Karlsson,
forstöðumaður Stofnunar um fjár-
málalæsi, Guðmundur Hörður Guð-
mundsson, fyrrverandi formaður
Landverndar, Guðjón Sigurbjartsson
viðskiptafræðingur, Jakob S. Jónsson,
leiðsögumaður og leikari, og Rán
Reynisdóttir hársnyrtimeistari.
Neytendasamtökin hafa verið án
formanns frá því Ólafur Arnarson
sagði af sér formennsku 10. júlí í
fyrra eftir stutta og stormasama
formannstíð. Lög félagsins gera ekki
ráð fyrir frávikum frá hefðbundnu
formannskjöri á þingi félagsins sem
haldið er á tveggja ára fresti. – aá
Sex vilja setjast í
formannsstól
brynhildur pétursdóttur, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, varð
ekki við áskorunum um formanns-
framboð. Fréttablaðið/Heiða
1 7 . á g ú s t 2 0 1 8 f Ö s t U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
7
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
8
-D
1
9
0
2
0
9
8
-D
0
5
4
2
0
9
8
-C
F
1
8
2
0
9
8
-C
D
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K