Fréttablaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 16
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Staða WOW air er tvísýn og næstu vikur gætu ráðið miklu um framtíð félagsins. Skuldir vegna grunnrekst- urs Reykja- víkurborgar hækkuðu um tæpa 15 milljarða á síðasta ári. Þegar vel árar eykst eigið fé landsmanna og skuldir minnka. Þar með lækkar fjármagns­kostnaður og svigrúm skapast til fjárfestinga eða sparnaðar. Ekki er síður mikilvægt að opinberir aðilar standi sig og sýni ráðdeild. Að þeir lækki skuldir í uppsveiflu líkt og einstaklingar og fyrir­ tæki. Með því skapast svigrúm til að mæta mögru árunum og jafnvel til að minnka sveiflur, með fram­ kvæmdum á samdráttartímum. Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað um rúma 88 milljarða á síðustu 12 mánuðum. Skuldirnar lækkuðu því um rúmar 240 milljónir á dag eða um 10 milljónir á klukkustund. Ríkissjóður hefur náð góðum árangri á síðustu árum í lækkun skulda. Skuldir vegna grunnreksturs Reykjavíkurborgar hækkuðu um tæpa 15 milljarða á síðasta ári. Skuld­ irnar hækkuðu því um rúmar 40 milljónir á dag eða 1,7 milljónir á klukkustund. Skuldir Reykjavíkur­ borgar hækkuðu um meira en 50% frá 2014 til 2017. Reykjavíkurborg hefur ekki náð góðum árangri í lækkun skulda á síðustu árum. er ekkert góðæri í reykjavík? Á sama tíma og ríkissjóður hefur lækkað skuldir sínar hratt hafa skuldir Reykjavíkurborgar aukist hratt. Þrátt fyrir mikinn vöxt tekna borgarinnar og hagfelldar aðstæður til niðurgreiðslu skulda. Nýverið samþykkti borgarráð hækkun á lánsfjár­ áætlun um 897 milljónir króna. Heimild til lántöku á árinu 2018 er því 6,6 milljarðar króna. Nú er langt liðið á fordæmalaust hagvaxtarskeið hérlendis, þar sem tekjur borgarinnar hafa hækkað gríðarlega og skattheimta er með hæsta móti. Tím­ inn til að greiða niður skuldir er núna. Þrátt fyrir það hækka skuldir ár frá ári. Tekjur borgarinnar munu ekki vaxa út í hið óendanlega. Skuldir ríkisins lækkuðu um 10 milljónir á klukkustund á síðustu 12 mánuðum en Reykja­ víkurborg jók skuldsetningu um 1,7 milljónir á klukkustund á síðasta ári. Reykjavíkurborg sýnir ekki ráðdeild í fjármálum. Ráðdeild í Reykjavík? Katrín Atladóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík Það er gömul saga og ný að fjárfesting í flugiðnaði er afar áhættusöm. Fjárfestar í evrópskum flugfélögum hafa verið minntir á þau sannindi undanfarin misseri þar sem afkoma flestra félaga hefur farið versnandi samhliða harðnandi sam­ keppni og hækkandi olíuverði. Íslensku flugfélögin hafa ekki farið varhluta af þeirri þróun. Þótt meira hafi farið fyrir fréttum af versnandi gengi Icelandair – markaðsvirði þess hefur minnkað um liðlega 150 milljarða á rúm­ lega tveimur árum – þá er ljóst að fjárhagsstaða WOW air er mun brothættari. Nýjustu tíðindi af flugfélaginu, sem koma líklega fæstum mjög á óvart enda hefur það stækkað gríðarlega á örfáum árum, sýna að afkoman hefur versnað verulega á skömmum tíma. Eigið fé er af skornum skammti og handbært fé hverfandi. Staða WOW air er tví­ sýn og næstu vikur gætu ráðið miklu um framtíð félagsins. Hátt olíuverð hefur leikið flugfélagið sérstaklega grátt. Olíukostnaður var um fjórðungur af heildartekjum í fyrra – til samanburðar var hann 17 prósent hjá Icelandair – en fullvíst má telja að hlutfallið hafi hækkað enn meira þar sem verð á flugeldsneyti fór upp um 36 prósent á fyrri árshelmingi. Ákvörðun WOW air um að verja sig ekki fyrir sveiflum í olíuverði, ólíkt helstu keppinautum sínum í Evr­ ópu, meðal annars Icelandair og Norwegian, var eftir á að hyggja röng og hefur reynst félaginu dýrkeypt. Þótt stærstu flugfélög Bandaríkjanna fylgi sömu stefnu þá er þar ólíku saman að jafna enda eru þau fjárhagslega mun sterkari og með greiðan aðgang að fjármagni ef á þarf að halda. Hættan er einna helst sú að olíuverð fari hækkandi, eins og sumir greinendur telja sennilegt sökum viðskiptaþvingana Bandaríkjastjórnar gagnvart Íran, á sama tíma og meðal­ fargjöld haldast áfram lág vegna mikillar samkeppni í flugi yfir hafið. Þá þarf líklega ekki að spyrja að leikslokum. Það sem veldur einnig áhyggjum er hvað launakostn­ aður WOW air hefur aukist langt umfram tekjur síðustu misseri. Launakostnaður nam um 15 prósentum af tekjum á árinu 2016 en á undanförnum tólf mánuðum – frá júlí 2017 til júní 2018 – var hlutfallið komið í tæplega 20 prósent. Það er gríðarleg hækkun á ekki lengri tíma og mun hærra hlutfall en þekkist hjá öðrum evrópskum lággjaldaflugfélögum. Ein stærsta áskorun stjórnenda íslensku flugfélaganna, rétt eins og á við um flest hver inn­ lend fyrirtæki í erlendri samkeppni, er að leita allra leiða til að ná niður launakostnaði eigi þau að vera alþjóðlega samkeppnisfær. Að öðrum kosti mun illa fara. Óþarfi er að fjölyrða um mikilvægi íslensku flugfélag­ anna fyrir vöxt og viðgang ferðaþjónustunnar. Þau standa undir um 80 prósentum af öllu flugi til og frá landinu og þótt ómögulegt sé að segja fyrir með vissu um afleiðing­ arnar ef annað þeirra lendir í alvarlegum fjárhagsvand­ ræðum þá er ljóst að höggið fyrir íslenskt efnahagslíf yrði að líkindum talsvert, að minnsta kosti til skemmri tíma, og það „tæki einhver ár að ná aftur jafnvægi“, eins og Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, hefur sjálfur sagt. Skúli, sem er þekktur fyrir að spila djarft, leitar nú aukins fjármagns, með liðsinni norska verðbréfafyrirtækisins Pareto, og hyggst afla sér allt að 12 milljarða með sölu skuldabréfs til evrópskra fjárfesta. Ástæða er til að ætla að það muni takast enda þótt vaxtakjörin verði án efa svívirðilega há. Það er fórnarkostnaður sem er þess virði að leggja í. Tíminn vinnur ekki með félaginu. Upp við vegg Stefán og Vigdís Stefán Eiríksson, borgarritari og fyrrverandi lögreglustjóri, sá sig knúinn til að senda Vigdísi Hauksdóttur harðort skammarbréf vegna framgöngu hennar í fjölmiðlum og á sam- félagsmiðlum. Taldi Stefán að borgarfulltrúinn hafi farið fram með trúnaðarupplýsingar og farið rangt með dóm sem féll í máli starfsmanna borgarinnar. Á sínum tíma vitnaði Stefán í frægt lag Bítlanna. Það lag innihélt orðin: „And so I quit the police department And got myself a steady job.“ Þótt starfið sé kannski stöðugt er ekki alveg hægt að segja það sama um kjörna fulltrúa í borginni. tungutak pólitíkusa Við skattgreiðendur þreytumst ekki á því að býsnast yfir löngu sumarfríi íslensku stjórnmála- stéttarinnar. Sumarfrí hennar er með því lengsta sem þekkist á byggðu bóli og ekki er kaupið neitt lélegt heldur. Ekki byrjar vertíðin hjá þeim glæsilega í höfuðborginni. Fyrst rjúka sjallar á dyr af skipulagsráðs- fundi vegna stafsetningarvillu og svo ákveður forseti borgar- stjórnar að ulla á annan borgar- fulltrúa. Það er áður óþekkt tungutak stjórnmálamanna. Á sama tíma hugsa skattgreið- endur hvort ekki sé fýsilegasti kosturinn í stöðunni að lengja bara sumarfríið þeirra. sveinn@frettabladid.is 1 7 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R16 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð SKOÐUN 1 7 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 8 -C 7 B 0 2 0 9 8 -C 6 7 4 2 0 9 8 -C 5 3 8 2 0 9 8 -C 3 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.