Fréttablaðið - 17.08.2018, Síða 20
Bjarki var aðalmaðurinn í fyrstu hljómsveitinni sem ég var í. Hún hét Elsku Unnur,
eftir stelpu sem vann í sjoppu í
Seljahverfinu,“ segir Birgir um söfn
unartónleikana sem haldnir eru í til
minningar um Bjarka Friðriksson.
„Ég flæktist inn í hljómsveitina
gegnum bróður minn, var lang
yngstur en fékk að vera með af því
að það vantaði hljómborðsleikara.
Bjarki var söngvarinn og þegar
hann keypti sér Hammond fékk
ég að spila á hann. Svo þegar þessi
hljómsveit hætti fór hann að spila
sjálfur á Hammondinn og hélt
því áfram í öðrum verkefnum. Ég
leit mikið upp til Bjarka, hann var
mjög góður við mig og við urðum
næstum eins og bræður.“ Bjarki lést
aðeins nítján ára úr heilahimnu
bólgu. „Hann hafði verið slappur
í nokkra daga en sagði engum frá
og ætlaði ekki að láta smá kvef
hindra sig í að spila á tónleikum
um kvöldið. Svo varð hann bráð
kvaddur þegar hann var að taka sig
til fyrir tónleikana.“
Fjöldi tónlistarmanna kemur
fram á tónleikunum sem hafa það
að markmiði að safna fyrir Hamm
ondorgeli sem geymt verður
í Hörpu. „Maus ætlar að koma
saman og taka nokkur lög og svo
er ég búinn að hóa saman strák
unum í Elsku Unni og við ætlum
að spila fyrsta lagið sem ég samdi
fyrir hljómsveit. Þar er þrettán ára
Birgir Örn Steinarsson að predika
hvað fíkniefni séu slæm, skemmti
lega saklaus og fyndinn. Bjarki söng
lagið á sínum tíma.“
Asnaðist í sálfræði
Birgir lauk námi til starfsréttinda í
sálfræði í vor. „Ég asnaðist í sálfræði
á þeim tímapunkti sem ég vissi
ekkert hvað ég vildi gera við líf mitt
og ákvað að mennta mig eitthvað
meðfram blaðamennskunni og tón
listinni. Þegar ég byrjaði var ég með
þeim eldri í þrjú hundruð manna
bekk og fannst ég gamall og vitlaus
en svo byrjaði mér að ganga vel
og einn kennarinn nefndi við mig
hvort ég ætlaði í réttindanámið.
Mér hafði satt að segja ekki dottið
það í hug en sótti um og var í tutt
ugu manna hópi sem komst inn.
Ég hef verið að vinna á heilsu
stofnuninni í Hveragerði í sumar
og einnig á Sálfræðiráðgjöfinni á
Lækjartorgi. Ég hef mikið verið að
vinna með lágt sjálfsmat og kvíða
og svo hef ég verið að vinna með
listamönnum, bæði hópum og
einstaklingum með ritstíflur en ég
lærði að leysa sköpunarflæðið úr
læðingi í Danmörku. Mér finnst
þetta mjög skemmtilegt því það
blandar öllu saman, bæði listinni
og sálfræðinni.“
Lof mér að falla
Þó að Birgir sé þekktastur undir
nafni hljómsveitar sinnar Maus
þá hafa skriftirnar ekki síður
verið mikilvægur þáttur í lífi hans.
„Skriftirnar hafa verið aðaltekjulind
mín frá því ég var tvítugur, bæði
sem blaðamaður og textahöfundur
með Maus auk þess sem ég hef alltaf
verið að skrifa sögur.“
Undanfarin ár hefur hann getið
sér gott orð sem handritshöfundur
í samstarfi við Baldvin Z og saman
skrifuðu þeir handritið að verð
launamyndinni Vonarstræti og Lof
mér að falla sem verður frumsýnd
í haust.
„Ég hitti Badda gegnum konuna
mína þegar þau hjónin buðu okkur
í mat. Ég var að pæla í kvikmynda
handritum á þessum tíma en við
fórum samt gegnum heilt matarboð
án þess að minnast einu orði á neitt
þessu tengt. Svo þegar við erum að
fara þá segi ég við Badda: Heyrðu,
áttu nokkuð bækur um það hvernig
á að skrifa kvikmyndahandrit? Og
hann nær í bók og lánar mér og ég
fer með hana heim og les hana. Svo
hringir hann í mig þremur vikum
seinna og spyr: Manstu, bókin sem
ég lánaði þér, ertu búinn með hana?
Og ég fæ alveg í magann yfir því að
vera ekki búinn að skila bókinni
og segi: Já, fyrirgefðu ég skal koma
henni til þín, og hann segir: Nei,
nei, skítt með bókina, þú mátt eiga
hana. Þú þarft að skrifa með mér
handrit.“ Þarna var Baldvin kominn
með hugmynd að persónunum í
Vonarstræti en vantaði söguna. „Og
hvernig hann ætti að tengja þetta
allt saman. Ég hjálpaði honum með
það og áður en ég vissi af vorum við
farnir að skrifa saman.“
Óraunverulegur veruleiki
Lof mér að falla er saga um heim
eiturlyfjaneytenda á Íslandi og
margir bíða myndarinnar með
eftirvæntingu.
„Jóhannes Kr. Kristjánsson var
okkur innan handar en hann hafði
þá nýverið unnið Kastljóss þátt með
viðtölum við krakka sem voru að
sprauta sig. Jóhannes missti dóttur
sína inn í þennan heim svo málið
stendur honum mjög nærri,“ segir
Birgir. „Í raun var það hans hug
mynd að gera bíómynd því að hún
myndi hafa meiri áhrif á krakkana
en fréttaþáttur. Hann kynnti okkur
fyrir stelpum sem voru í neyslu og
við tókum viðtöl við þær meðan
þær voru að sprauta sig. Þetta
eru ótrúlega klárar og útsjónar
samar stelpur sem beita ólíklegustu
brögðum til að ná sér í peninga
þannig að okkur fannst stundum að
það þyrfti snilligáfu til.“
Birgir segir að raunveruleiki
fíkniheimsins á Íslandi sé mjög
óraunverulegur þeim sem standa
fyrir utan. „Þetta er kannski að
gerast í íbúðinni við hliðina á
þér og þú hefur ekki hugmynd.
Krakkarnir opnuðu sig alveg,
sýndu okkur boðleiðirnar og
hvernig þau nota samfélagsmiðla
til að verða sér úti um efnin. Og
sölumennirnir eru ekki endilega
þessir stóru sterku handrukkarar
sem við höfum séð í bíó heldur
húsmæður á fimmtugsaldri sem fá
aukapening með því að selja rítalín
eða aukaskammtana af parkódín
forte. „Hann segir handritaskrifin
hafa tekið þrjú ár. „Við fylgdumst
með krökkunum, sumum hætta,
öðrum falla og sumum deyja og úr
sögunum þeirra saumuðum við
þetta handrit sem er 95% saman
sett úr raunverulegum atburðum úr
lífi mismunandi fólks. Ég er mjög
stoltur af þessari mynd.“
Er þetta ekki Biggi?
Birgir var í sálfræðináminu þegar
rannsóknarvinnan stóð yfir.
„Þetta var eins og að taka auka
kúrs í náminu, ég fór að sjá ákveðin
mynstur og ég hef tekið þau með
mér áfram. Við reyndum að nálgast
þetta með forvitni mannfræð
ingsins, reyndum að skilja án þess
að verða fyrir of miklum áhrifum
tilfinningalega. En það gekk ekkert
alltaf. Einn strákur sem mér fannst
líta út fyrir að vera sjötugur horfði
á mig meðan hann var að útbúa
sprautuna og segir: er þetta ekki
Biggi? Og þá var þetta einn aðal
töffarinn þegar ég var unglingur,
sá sem mætti á fína bílnum sínum
og stelpunum fannst flottastur af
öllum og það var rosalegt sjokk að
komast að því að þetta var hann.
Um leið og ég þekkti manneskjuna
var það miklu djúpstæðara og ég
var eftir mig eftir það viðtal.“
Fræða ekki hræða
Frá sjónarhorni sálfræðingsins, en
ekki síður föðurins Birgis Arnar,
spruttu upp ýmsar vangaveltur
á meðan rannsóknarvinnan var
unnin fyrir Lof mér að falla.
„Mér finnst fyrst og fremst að
við ættum að taka orðið eiturlyf og
sturta því niður í klósettið og nota
í staðinn orðið fíkniefni. Og fræða
krakka í staðinn fyrir að hræða
þau, segja þeim hvernig þetta er,
hver munurinn er á því að drekka
eitthvað, reykja eitthvað, snorta
eitthvað eða sprauta sig með því.
Við höfum bara eitt orð, EITUR
LYF, og krakkarnir eru frædd frá tíu
ára aldri um að eiturlyf geti drepið!
En svo eru þau kannski niðri í bæ
og einhver er að reykja jónu, þau fá
sér tvo smóka og eru þar með búin
að taka EITURLYF og ekkert slæmt
gerðist nema þeim leið vel! Og þá
hætta þau að taka mark á öllum
aðvörununum,“ segir hann.
„Við sáum að þessum krökkum
var hætt við að fara í neyslu, þau
prófa kannski jónu á þriðjudegi og
eru búin að sprauta sig með rítalíni
tveimur vikum seinna því þetta er
hvort tveggja eiturlyf og þau vita
ekkert um mismunandi alvarleika
þeirra og hver munurinn er.“
Birgir talar einnig um hin sorg
legu dauðsföll sem hafa ratað í frétt
irnar að undanförnu og hefur sínar
kenningar um þau. „Krakkar fara
í partí með öðrum krökkum sem
hafa kannski verið í neyslu í ein
hvern tíma og það er útbúinn sami
skammtur handa öllum, óháð því
hvort þau eru búin að mynda þol
eða ekki. Þetta eru oft bara slys. Það
er enginn að mæla með kannabis
reykingum unglinga en það verður
að gera greinarmun á því hversu
hættuleg efnin eru.“
Lífið gengur fyrir
Birgir Örn veit af eigin reynslu
hversu erfitt er þegar ungt fólk
deyr, þó að Bjarki vinur hans hafi
eins og áður sagði látist úr skyndi
legum veikindum en ekki neyslu.
Hann hlakkar til að heiðra minn
ingu vinar síns á tónleikunum
Hammond í Hörpu sem standa
fyrir dyrum 26. ágúst.
„Það er fyndið í þessu samhengi
að hugsa um þrettán ára Bigga að
semja forvarnartexta fyrir hljóm
sveitina sína. Og svo gerist það
akkúrat núna um sama leyti og Lof
mér að falla verður frumsýnd. Lagið
heitir Lífið gengur fyrir og það er
líka svo satt í öllu þessu samhengi.“
Birgir Örn starfar í dag sem sálfræðingur og handritshöfundur en hann skrifaði meðal annars handritin að kvikmynd-
unum Vonarstræti og Lof mér að falla með Baldvini Z en Lof mér að falla verður frumsýnd í haust. MYND/ÞÓrstEiNN
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Við fylgdumst með
krökkunum,
sumum hætta, öðrum
falla og sumum deyja og
úr sögunum þeirra
saumuðum við þetta
handrit sem er 95%
samansett úr raunveru-
legum atburðum úr lífi
mismunandi fólks.
Viltu verða rekstrarfulltrúi?
Nýtt tækifæri fyrir þig!
Hagnýt viðskipta- og fjármálagreinabraut
• Er langt síðan þú varst í skóla?
• Hefur þig lengi langað að drífa þig í nám en ekki þorað?
• Áttu slæmar minningar frá fyrri skólagöngu?
Vel menntaðir og áhugasamir kennarar, góð aðstaða, mikil reynsla og afslappað andrúmsloft. Þessi braut veitir mörg tækifæri á vinnumarkaði og til frekara náms.
Hagnýt viðskipta- og fjármálagreinabraut er þriggja anna braut með tengingu við vinnustaði. Aðaláhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar.
Í lok námsins fá nemendur diploma sem rekstrarfulltrúi. Kennsla hefst í ágúst 2018.
Nánari upplýsingar gefur Inga Karlsdóttir, fagstjóri í síma 594 4000/8244114 eða inga.karlsdottir@mk.is
2 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 1 7 . áG ú s t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
7
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
8
-D
6
8
0
2
0
9
8
-D
5
4
4
2
0
9
8
-D
4
0
8
2
0
9
8
-D
2
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K