Fréttablaðið - 17.08.2018, Síða 26
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Hreggviður Ársælsson byrjaði ungur að veiða á Akureyri þar sem hann ólst upp.
Lengi vel lét hann stangveiði
með spún og maðk duga en þó
hefur hann skroppið með bróður
sínum undanfarin ár í eina og eina
rjúpnagöngu. Þegar hann varð
fertugur árið 2014 gáfu fjölskylda
og vinir hans honum fluguveiði-
pakka en hann segir fluguveiðina
vera eitthvað það skemmtilegasta
sem hann hefur prófað. „Það er
alveg magnað að standa á árbakka
og læra að lesa í ána, hylina og
flúðirnar og reyna að komast að
því hvaða flugur séu fljúgandi um
svæðið. Maður þarf að skilja hvar
fiskurinn vill helst vera í ánni og
hvaða agn sé líklegast. Svo er frá-
bært að njóta náttúrunnar og von-
ast til að fá einn í soðið. Tengingin
við frumbyggjann dettur í gírinn
og maður nær ákveðinni slökun á
bakkanum.“
Veiðir mest í vötnum
Maríulaxinn hans var 90 cm hæng-
ur sem hann landaði í Fossá fyrir
um tveimur árum. „Reyndar hefur
lítið gerst í laxinum hjá mér síðan
þá. Ég veiði mest á flugu í vötnum
og kaupi Veiðikortið á hverju ári.
Þingvallavatn og Úlfljótsvatn eru
tveir skemmtilegustu staðirnir sem
ég veiði á en Þingvallavatn er búið
að vera gjöfult á bleikjuna í ár.“
Mikill matmaður
Hreggviður lætur sér ekki duga að
veiða. Hann er mikill matmaður og
segir að það besta sem hann viti sé
að hvíla sig frá tölvu við bras í eld-
húsinu. „Við Danni frændi höfum
verið að grúska mikið í því hvernig
nýta megi allt úr dýrum sem eru
veidd hér á Íslandi. Við höfum
komist yfir alls konar hráefni; gæsir,
endur, hreindýr og fleira. Við sjóð-
um beinin í soð, gerum lifrarmús
eða paté. Einnig gröfum við allan
fjandann og kald- eða heitreykjum
ásamt þessu hefðbundna.“
Bleikjan vinsæl
Uppáhaldið hans er líklega heit-
reykt hreindýrahjarta sem fáir
nýta og vinna með að hans sögn.
„Biblían á náttborðinu mínu er
Villibráðarbókin hans Úlfars
Finnbjörnssonar sem er allra besta
kennsluefni í meðhöndlun villi-
bráðar. Síðastliðin ár veiði ég mest
bleikju sem fer oftast á grillið með
ýmsum aðferðum. Það var því mjög
hressandi þegar fiskurinn rataði í
taco-skeljar og fjölbreytnin í mat-
seldinni tók kipp.“
Vinnur með snillingi
Uppskriftin sem hann gefur
lesendum er einmitt bleikja í
taco en réttinum kynntist hann
og lærði að útbúa hjá Ragnhildi
Kjeld, kokkinum hjá auglýsinga-
stofunni ENNEMM, en þar starfar
Hreggviður sem grafískur hönn-
uður. „Hún er alger snillingur og
hefur gefið mér mörg frábær ráð
í matseldinni. Margir kaffibollar
hafa runnið niður í eldhúsinu á
ENNEMM meðan við ræðum um
matseld, uppskriftir og þess-
háttar. Ég er reyndar búinn að
setja fingraför mín á réttinn með
ýmsum hliðarsporum, t.d. mal-
aðan negul. Hann er alveg meiri-
háttar lúmskur í allt sem tengist
salsaréttum.“
Bleikju-taco-uppskrift
Uppskrift fyrir 3-4
Fiskurinn:
2 bleikjuflök
Old El Paso taco kryddblanda
Jamie Oliver thyme lemon and
bay salt (fæst í Krónunni)
Malaður negull
Rifinn límónubörkur
Skerið flökin í u.þ.b. 3 cm bita og
stráið taco-kryddinu yfir. Rífið
börk af heilli límónu yfir bitana.
Skutlið filmu yfir og setjið í ísskáp
í 1-2 tíma. Setjið bitana næst á
smjörpappír í eldfast mót. Stráið
möluðum negul yfir, kryddið með
Jamie Oliver saltinu og setjið í
heitan ofn á 200 gráðum í u.þ.b. 10
mínútur.
Meðlæti
Rauðkálsstrimlar:
Rauðkál , ¼ af haus
Límónusafi
Olía
Taco-krydd
Pipar
Malaður negull
Skerið rauðkálið þunnt, í um 2 mm
strimla og bleytið í þeim með olíu.
Kreistið límónusafa yfir og kryddið
létt með taco-kryddinu. Fínt er að
undirbúa rauðkálið á sama tíma og
fiskinn svo það mýkist aðeins.
Taco-sósa
4 tómatar
2 hvítlauksgeirar
1 ferskur rauður chili
½ dl olía
1 tsk. ground cumin
Klettasalat, gott búnt
6-8 blöð fersk mynta
Smá salt og pipar eftir smekk
Skellið öllu í blandara þar til
innihaldið líkist graut eða sósu
(smekksatriði). Kreistið smá lím-
ónusafa yfir í lokin.
Mangósalat
1 mangó, smátt skorið
1 lárpera, smátt skorin
Niðursoðinn jalapeño, saxaður
Kóríander, saxað
½ rauðlaukur, saxaður eftir smekk
1 tómatur, smátt skorinn
Límónusafi
Blandið öllu saman í skál.
Skeljar
12 Harðar taco-skeljar
Gott að hita skeljarnar í ofni í smá-
stund.
Nauðsynlegt er að bera fram ferskt
klettasalat og saxaðan kóríander
með réttinum.
Frábært að njóta náttúrunnar
Fluguveiði er eitt það skemmtilegasta sem Hreggviður Ársælsson, grafískur hönnuður, hefur
prófað. Ásamt frænda sínum matreiðir hann dýrindis rétti úr ólíkum hráefnum náttúrunnar.
„Þingvallavatn og Úlfljótsvatn eru tveir skemmtilegustu staðirnir sem ég veiði á,“ segir Hreggviður Ársælsson, grafískur hönnuður, veiðimaður og matgæðingur.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is
HEILSURÆKT
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
u heilsurækt kemur út 24. ágúst nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R HAUSTVEIÐI
1
7
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
8
-B
3
F
0
2
0
9
8
-B
2
B
4
2
0
9
8
-B
1
7
8
2
0
9
8
-B
0
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K