Fréttablaðið - 17.08.2018, Page 32
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar
og tengdamóðir,
Hrafnhildur Árnadóttir
Akurhvarfi 5, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 15. ágúst síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Páll P. Theódórs
Árni Björn Pálsson Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Fannar Pálsson Hekla Fjölnisdóttir
Hlynur Pálsson Lea Marie Drastrup
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg O. Valdimarsdóttir
Furugerði 9,
sem lést á Landspítalanum
í Fossvogi þann 11. ágúst, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
21. ágúst klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Ólafur Eggertsson Anna María Snorradóttir
Sjöfn Eggertsdóttir Guðmundur Davíðsson
Inga Sonja Eggertsdóttir Rúnar Valsson
Þröstur Eggertsson Anna J. Jónsdóttir
Ragnar Eggertsson Kristjana Guðrún Friðriksdóttir
Bjarni V. Eggertsson Osvör Oscarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum öllum þeim sem sýnt hafa
okkur kærleik og samúð vegna
andláts elsku sonar, stjúpsonar,
bróður og barnabarns,
Birgis Imsland
ráðgjafa í Klettabæ.
Hans er sárt saknað,
blessuð sé minning hans.
Fyrir hönd annarra ástvina,
Ómar Imsland Hildur Björg Hrólfsdóttir
Ragnar Imsland
Arnar Imsland Alexandra Dís Unudóttir
Bragi Þ. Sigurðsson Sigurlaug Sveinsdóttir
Ragnar Imsland Júlía Imsland
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórey Kristín
Aðalsteinsdóttir
Norðurbyggð 16, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 12. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 22. ágúst kl. 13.30.
Pétur Ingólfsson
Unnsteinn Pétursson Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
Aðalsteinn Pétursson Guðlaug Þorsteinsdóttir
Ingólfur Pétursson Kristjana Kristjánsdóttir
Hermann Pétursson Anna Geirlaug Kjartansdóttir
Kristinn Ingi Pétursson Sólborg Matthíasdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Kristinn Halldór Jóhannsson
lést á heimili sínu þriðjudaginn
14. ágúst. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 21. ágúst
kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heimahlynningu á Akureyri.
Margrét Alfreðsdóttir
Alfa Björk Kristinsdóttir Magnús Björnsson
Signý Þöll Kristinsdóttir Viktor Pálsson
Jóhann Kristinsson Hulda Þórhallsdóttir
afabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Ragnar Magnússon
prentari,
áður til heimilis að Hraunbæ 103
og Grenimel 43, Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 10. ágúst sl.
Útför fer fram frá Dómkirkjunni 22. ágúst kl. 13.00.
Valgerður Guðrún Ólafsdóttir
Margrét Ólafsdóttir Már Viðar Másson
Pála Kristín Ólafsdóttir Kristján Björn Ólafsson
Kristinn Axel Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku mamma mín, dóttir okkar,
systir og frænka,
Edda Björk Gunnarsdóttir
Lyngmóum 8, Garðabæ,
andaðist á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi 12. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju
í Garðabæ mánudaginn 20. ágúst klukkan 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á bankareikning dóttur
hennar 318-18-550033 kt. 120311 2550.
Fanney Ósk Eiríksdóttir
Lára Björnsdóttir Gunnar Sæmundsson
Björn Jóhann Gunnarsson
Anna Lára B. Björnsdóttir
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
Alda Jóhannesdóttir
frá Auðnum, Akranesi,
síðast til heimilis að Höfða,
hjúkrunar- og dvalarheimili,
lést laugardaginn 11. ágúst. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju þriðjudaginn 21. ágúst kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Höfða.
Guðmunda Ólafsdóttir Þröstur Stefánsson
Sigurbjörg Þrastardóttir Tómas Guðni Eggertsson
Alda Þrastardóttir
Þröstur Elvar, Hildur Ása og Sigurbjörg Helga
Merkisatburðir
Það er duglegt og drífandi fólk hér í Skagafirði og mik-ill frumkvöðlakraftur sem svífur yfir vötnum. Allmarg-ir eru komnir með leyfi til heimavinnslu afurða, vott-
uð eldhús og fjölbreytta ræktun,“ segir
Rakel Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Matís,
og áður verslunarmaður í Frú Laugu í
Reykjavík. Hún kom á fót sveitamark-
aði í húsi Þjóðminjasafnsins á Hofs-
ósi í sumar og nú verður hann fluttur
í Svaðastaðahöllina á Sauðárkróki um
helgina.
Stórsamkoman Sveitasæla verður
nefnilega haldin á Króknum, það
er landbúnaðarsýning og bændahátíð
og Rakel segir fjölbreytt og skemmtilegt
úrval úr matarkistu Skagafjarðar verða
á boðstólum á markaðinum. Hún nefn-
ir kornhænuegg, hunang, hákarl, krydd-
jurtir, pestó og nýsprottið, útiræktað
grænmeti sem dæmi, auk alls konar
fisk- og kjötmetis í úrvali. „Hér ræktar
fólk meira að segja rósir til sölu,“ upp-
lýsir hún.
Rakel hefur búið síðasta árið á
Hofsósi, er flutt aftur suður en sinnir
þó verkefnum í Skagafirði á vegum
Matís áfram. Hún er mikill talsmaður
þess að bændur og aðrir matvælafram-
leiðendur selji afurðir beint frá býli og
segir mikla framþróun í þeirri grein
vera að eiga sér stað. „Fólk áttar sig á að
það geti minnkað vistsporið sitt með
því að eiga í viðskiptum innan síns
nærumhverfis og það er vinsælt bæði
af heimamönnum og gestum.“
Víðsvegar um heiminn er árþúsunda-
hefð fyrir svona mörkuðum, bendir
Rakel á. „Fólk leitar að því sem ein-
kennir svæðið og heillast af hugmynd-
inni um að njóta afurða, handverks,
stemningar og menningar á hverjum
stað,“ segir hún og bætir við: „Markað-
irnir ýta líka undir nýsköpun og eru
liður í að viðhalda byggð í dreifbýlinu.“
gun@frettabladid.is
Fólk áttar sig á að það geti
minnkað vistsporið sitt
Matar- og blómamarkaði verður slegið upp í Svaðastaðahöll á Sauðárkróki um helgina,
með afurðir úr auðlindum nærumhverfisins, bæði til sjávar og sveita. Rakel Halldórs-
dóttir ráðgjafi veit meira um málið enda er hún nánast guðmóðir slíkra markaða.
Harpa Árna-
dóttir mynd-
listarmaður,
Margrét Hall-
grímsdóttir
þjóðminja-
vörður, Rakel
Halldórsdótt-
ir ráðgjafi og
dóttir hennar,
María Anna
Arnarsdóttir.
Hér ræktar fólk meira
að segja rósir til sölu.
1924 Antonio Locatelli, ítalskur flugmaður, kemur til
Reykjavíkur á flugbáti.
1945 Indónesía lýsir yfir sjálfstæði.
1946 Valgerður Þorsteinsdóttir verður fyrst íslenskra
kvenna til að ljúka einkaflugmannsprófi.
1972 Alþjóðadómstóllinn í Haag hafnar röksemdum
Íslendinga í landhelgismálinu.
1980 Eldfjallið Hekla tekur að gjósa.
1982 Fyrstu geisladiskarnir fara á markað í Þýskalandi. Á
þeim eru valsar eftir Chopin, í flutningi Claudio Arrau.
1 7 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R20 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
tímamót
1
7
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
8
-D
6
8
0
2
0
9
8
-D
5
4
4
2
0
9
8
-D
4
0
8
2
0
9
8
-D
2
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K