Fréttablaðið - 17.08.2018, Síða 40
Hvað
Hvenær
Hvar
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
17. ágúst
Tónlist
Hvað? Hamell on Trial
Hvenær? 21.00
Hvar? Frystiklefinn, Rifi,
Ed Hamell, sem kemur fram undir
sviðsnafninu Hamell on Trial, er
þekkt vörumerki í neðanjarðar-
og andspyrnusenunni vestan
hafs. Hamell spilar kraftmikið
rokk og ról á kassagítar og sækir
áhrif í ýmsa strauma banda-
rískrar tónlistarhefðar. Text-
arnir er hárbeittir og flæðandi
og gegnsýrðir af svörtum húmor
og Hamell reytir af sér brandara
milli laga. Aðgangseyrir er 2.500
krónur.
Hvað? Á móti sól
Hvenær? 22.00
Hvar? Hard Rock
Það verður nostalgía og almenn
gleði sem ráða ríkjum þegar
„strákarnir“ í Á móti sól leika í
Hard Rock kjallaranum. Hljóm-
sveitin ætlar að leika öll sín vin-
sælustu lög auk nokkurra klass-
ískra slagara sem eru í gríðarlegu
uppáhaldi hjá þeim. Þetta eru
einu tónleikar Á móti sól sem
fyrirhugaðir eru í höfuðborginni
á þessu ári.
Hvað? GDRN útgáfupartí
Hvenær? 21.00
Hvar? Prikið
Í dag gefur GDRN ásamt tvíeykinu
ra:tio út sína fyrstu plötu. Af því
tilefni verður útgáfufagnaður
haldinn á Prikinu frá 21.00-00.00
Hinn geðþekki 101 Savage tekur
svo við eftir miðnætti og spilar
fram að lokun.
Hvað? Egill Spegill á Paloma
Hvenær? 23.00
Hvar? Paloma, Naustunum
Í samstarfi við Egil Spegil ætlar
Paloma að halda sitt fyrsta hipp-
hoppkvöld og opna tónlistarsenu
staðarins. Húsið verður opnað
á slaginu 23.00, Happy Hour á
barnum frá 23.00-01.00. Hlökkum
til að sjá ykkur á nýjum og endur-
bættum Paloma.
Hvað? Karaoke: The hits!
Hvenær? 20.00
Hvar? Loftið
Hvað? Mali Sastri & Tvíund
Hvenær? 19.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Mali Sastri er söngkona, lagahöf-
undur og tónskáld frá Boston,
Massachusetts. Tvíund skipa tón-
listarkonurnar Ólöf Þorvarðsdóttir
og Guðrún Edda Gunnarsdóttir.
Þær Guðrún og Mali kynntust
í Voice Movement Therapy í
London fyrir mörgum árum og hér
leiða þær saman hesta sína á ný
ásamt Ólöfu. Á efnisskránni eru
frumsamin verk og spunaverk fyrir
raddir, hljómborð og fiðlu.
Hvað? Pönk og tölvutónlist á
Gauknum
Hvenær? 21.00
Hvar? Gaukurinn
ROHT, Inland Shrines, Spünk og
Skoffín ætla að bjóða upp á pönk-
samsuðu á Gauknum og verður
frítt inn. ROHT er truflað tvíeyki
sem gerir kraftmikið og drungalegt
hávaðarokk með industrial ívafi.
Inland Shrines býr til tilrauna-
kennda tölvutónlist sem kannski
er hægt að dansa við ef stemning
leyfir. Pönkið lifir. Spünk er hrátt
hávaðapönk (spönk?) sem hristir
fólk upp úr andleysi miðbæjar-
lífernisins. Skoffín eru indie-rock
nýliðar sem lofa einstaklega góðu
og eru enn ein sönnunin fyrir því
að rokkið lifir.
Viðburðir
Hvað? Jóga
Hvenær? 07-19
Hvar? Sendiráð Indlands, Túngötu 7
Frítt jóga á hverjum degi í sendi-
ráði Indlands á Túngötu 7, 101
Reykjavík. Tímar 7-8 fyrir lengra
komna, 8-9 fyrir byrjendur, 17-18
fyrir byrjendur, 18-19 fyrir alla.
Það er lokað um helgar, og á mið-
vikudögum er einungis „Yoga
Theory“ kl 17.00. Fólk er beðið um
að mæta með mottu.
Hvað? Office Space – föstudags-
partísýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís
Maður nokkur sem vinnur á
skrifstofu fer í dáleiðslumeð-
ferð til að losa um streitu því að
yfirmaður hans er svo óþolandi.
Þegar dáleiðari hans fellur frá í
miðri meðferð, fer skrifstofulífið
að hlaupa með hann í gönur.
Stórskemmtileg gamanmynd sem
löngu er orðin költklassík, eftir
Mike Judge.
Hvað? Mamma Mia! Here We Go
Again, sing-along
Hvenær? 20.00
Hvar? Laugarásbíó
Það var svo gaman síðast og því
ætlum við að halda aðra sing-
along sýningu á Mamma Mia! Here
We Go Again, í samstarfi við Guð-
björgu Ósk hjá osk.is og Víking
létt öl! Sýningin verður í Laugarás-
bíói föstudaginn 17. ágúst kl. 20.00.
Missið ekki af þessari skemmtun
og tryggið ykkur miða strax!
Hvað? Latin night á Hressó
Hvenær? 23.00
Hvar? Hressingarskálinn
Komið og njótið kvöldsins, boðið
verður upp á allt það besta í salsa,
bachata, kizomba, rokki, brazilian
funk, pachanga og latin dance.
Allir eru velkomnir á danskvöldið.
Hvað? Kees Visser – Sýningaropnun
Hvenær? 17.00
Hvar? Berg, Klapparstíg 16
Kees Visser (f. 1948) hefur sýnt
mikið – á Íslandi, í Hollandi,
Frakklandi og víða annars staðar.
Jafnvel þegar hann sýnir verk á
pappír minna sýningar hans á
innsetningar því hann tekur mið
af rými og arkitektúr með því t.d.
að sýna verkin liggjandi á borðum
auk þess að hengja þau á vegg-
ina. Verkin á sýningunni í Berg
Contemporary eru afurð langrar
rannsóknar og eins konar fram-
hald af einlitu verkunum en tals-
vert flóknari, bæði í lit og formi.
Kees málar á stórar pappírsarkir
geómetríska fleti í skyldum litum
og beitir yfirmálun til að draga
fram litina og gefa verkunum
kristals áferðina sem hann hann er
þekktur fyrir.
Íþróttir
Hvað? Bikarúrslitaleikur kvenna
Hvenær? 19.15
Hvar? Laugardalsvöllur
Stórleikur Stjörnunnar og Breiða-
bliks í Mjólkurbikarkeppni
kvenna. Mætum og styðjum okkar
lið! Mætum snemma. Miðasala
á leikdegi á Laugardalsvelli. Frítt
fyrir 16 ára og yngri. Flott upp-
hitun fyrir Menningarnótt.
Hvað? Bubble-bolti í Hamarshöll
Hvenær? 17.00
Hvar? Hamarshöllin, Hveragerði
Bubble-bolti, brjálað stuð. Smalið
saman í 5 manna lið og takið þátt.
Bubble-bolti er frábær skemmtun
þar sem þátttakendur klæðast
uppblásnum plastkúlum á meðan
spilaður er fótbolti. Þátttökugjald
500 krónur.
Á móti sól verður með sína einu tónleika í kjallaranum á Hard Rock í kvöld þar sem nostalgían mun ráða ríkjum.
Andy Garcia og Cher rifja upp gamla takta í kvikmyndinni Mamma Mia!
Here We Go Again sem hægt verður að syngja með í Laugarásbíói í kvöld.
Office Space í Bíói Paradís. Ofboðs-
lega góð mynd sem hægt er að brosa
yfir á stóra skjánum í Bíói Paradís.
Bikarúrslitaleikur kvenna fer fram á Laugardalsvelli í kvöld. fRéttABLAðið/eRniR
VIÐ SJÁUM UM BRÚÐKAUPIÐ
ÞÚ ÞARFT BARA AÐ SEGJA JÁ!
Við leigjum og seljum
Tjöld, borð og stóla, uppblásna sófa, hljóðkerfi, ljósakerfi,
skjávarpa og sýningartjöld, confetti sprengjur.
Sláðu á þráðinn ef eitthvað af þessu er að vefjast fyrir þér.
Það eina sem þú þarft að gera er að skemmta þér.
www.exton.is
EXTON AKUREYRI
S: 575-4660
AKUREYRI@EXTON.IS
EXTON REYKJAVÍK
S: 575-4600
EXTON@EXTON.IS
HUGINN MUNINN
SKYRTUR
NÝ
VEFVERSLUN
www.huginnmuninn.is
1 7 . á g ú s T 2 0 1 8 F Ö s T U D A g U R28 m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
7
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
8
-B
D
D
0
2
0
9
8
-B
C
9
4
2
0
9
8
-B
B
5
8
2
0
9
8
-B
A
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K