Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 40

Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 40
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Kúmenið er loksins fullþroska eftir kalt sumar. Þetta er villt kúmen sem Skúli Magnús- son landfógeti kom sjálfur með út í Viðey upp úr miðri átjándu öldinni. Hann var mikill áhuga- maður um ræktun,“ segir Björk Bjarnadóttir, sem ætlar að leiða kúmengönguna á morgun. Hún hvetur fólk til að taka með sér skæri og gamalt koddaver eða taupoka en siglt verður út í Viðey frá Skarfabakka stundvíslega klukkan 13.15. „Það verður hist við bakkann og ég ætla að fara yfir sögu kúmensins, segja hvaða lækn- ingamátt það er talið hafa, hvernig á að tína það, þurrka og loks geyma,“ upplýsir Björk og hvetur fólk til að klæða sig eftir veðri. „Svo er tilvalið að taka með sér eitthvað heitt á brúsa og þjóðlegt nesti á borð við flatkökur með hangikjöti og kleinur,“ segir hún kankvís. Ræktun fór út um þúfur Björk segir að Skúli fógeti hafi gert ýmsar tilraunir í ræktun úti í Viðey á sínum tíma, en þó með misjöfnum árangri. „Hann prófaði að rækta ýmiss konar káltegundir, kartöflur og einn- ig tóbak og það er hægt að finna tóbakslaut í Viðey,“ segir hún og bætir við að á 18. öld hafi erlendir bændur verið fengnir til landsins til að kenna Íslendingum að rækta grænmeti og vera sjálfbjarga í þeim efnum. „Það tókst þó ekki sérlega vel því Íslendingar voru önnum kafnir við sauðfjárrækt og höfðu engan tíma eða orku til að sinna grænmetisræktun, hvað þá að girða í kringum grænmetis- garða og sinna þeim vel. Þessi ræktun fór því út um þúfur. Hins vegar kunnu Íslendingar að tína fjallagrös og söl og gera sér mat úr þeim. Þeir tíndu skarfakál sem er mjög C-vítamínríkt og það vex líka í Viðey. Í raun eru Íslendingar enn að læra að umgangast græn- metisgarðana sína og hvernig á að ganga frá uppskerunni á haustin,“ segir Björk. Tilgátugarður til sýnis Í Viðey má sjá hvernig garður Skúla gæti hafa litið út á sínum tíma. Þrír útskriftarnemar í skrúð- garðyrkju við Garðyrkjuskóla Landbúnaðarháskóla Íslands unnu að gerð matjurtagarðs í Viðey í vor í  samvinnu við Borgarsögusafn Reykjavíkur en garðurinn er í anda matjurtagarðs Skúla fógeta. Björk segir bæði áhugavert og skemmti- legt að skoða garðinn. „Kúmenið kom fyrst til landsins á 17. öld en það var Vísi-Gísli sem pantaði sér kúmenfræ og prófaði að rækta það í Fljótshlíðinni.“ Kúmenkaffi og kúmenmjólk Kúmen þykir hollt og bragðast vel. Það er notað í margs konar í matargerð og er t.d. ómissandi í kringlur. „Kúmen er talið hafa lækningamátt og þykir t.d. gott við vindgangi og verkjum í meltingar- vegi og það örvar matarlyst. Gott er að setja kúmen út í mat hjá börnum og fullorðnum sem þjást af lystarleysi. Kúmen er líka gott gegn kvefi og hósta. Best er að þurrka kúmen á þurru stykki, t.d. gömlu laki, á skuggsælum stað. Þegar það er orðið þurrt er gott að setja það í glerkrukku og geyma á skuggsælum stað. Ég set kúmen út í súrdeigsbrauð en það gefur mjög góðan keim. Kúmen má setja út í kaffi til bragðbætis og einnig setja út í mjólk og sjóða. Þingey- ingar suðu mjólk með kúmeni í, sigtuðu það frá og settu mjólkina út í laufabrauðsdeig. Þannig fengu þeir kúmenbragð af laufabrauði án þess að það kæmi niður á útskurð- inum,“ segir Björk en hún hefur mikinn áhuga á fornri þekkingu og ekki síst náttúrunni. Björk er með eigin ræktun, ásamt Tómasi Ponzi sambýlis- manni sínum, að Brennholti í Mos- fellsdal. „Við erum með lífræna ræktun á 22 tegundum af salati og mjög sérstökum tómötum, svo- kölluðum ættardjásnum, og kulda- þolnum tómötum sem geta vaxið í óupphituðum gróðurhúsum. Það hefði verið mjög gaman að geta boðið Skúla fógeta að kíkja á ræktunina hjá okkur,“ segir Björk brosandi að lokum. Kúmenganga í Viðey á morgun Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur, leiðir göngu um Viðey þar sem tínt verður kúmen. Hún fer yfir sögu kúmens, þurrkun, geymslu og lækningamátt þess. Mikill áhugi er á að tína villt kúmen úti í Viðey. Björk (t.v.) með vinkonu sinni, Elínu Edwald. Hún segir að Skúli fógeti hafi gert ýmsar tilraunir í ræktun úti í Viðey á sínum tíma, en þó með misjöfnum árangri. Hann prófaði að rækta ýmiss konar káltegundir, kartöflur og tóbak. Frábær hóptilboð Sjáðu öll tilboðin okkar á www.kinahofid.is Opið alla daga vikunnar frá kl. 11:00 - 22:00 Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi www.kinahofid.is l Sími 554 5022 TILBOÐ 4 réttir + súpa dagsins aðeins 1.690 kr.* SVÍNAKJÖT MEÐ TOFANSÓSU KJÚKLINGUR MEÐ SATAYSÓSU NÚÐLUR MEÐ GRÆNMET DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU *tekið með heim – 1.990 kr. ef borðað er á staðnum. Ný sending af yf i rhöfnum og vinsælu peysurnar loksins komnar. NÚ KÓLNAR Í VEÐRI Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á miðvikudögum Viðskiptafréttir sem skipta máli 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . S E p T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 7 -C 1 5 0 2 0 B 7 -C 0 1 4 2 0 B 7 -B E D 8 2 0 B 7 -B D 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.