Fréttablaðið - 07.09.2018, Side 8
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Renault KADJAR & CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.790.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.650.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
9
R
e
n
a
u
lt
K
a
d
ja
r-
C
a
p
t
u
r
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Viðskipti Forsvarsmenn Advania
hafa slegið því á frest að skrá fyrir-
tækið á hlutabréfamarkað í Sví-
þjóð í kjölfar hlutafjáraukningar
hjá fyrirtækinu. Við hana var þeim
fjárhagslegum markmiðum náð sem
stefnt var að með skráningu. Fyrir-
tækið, sem er með 1.300 starfsmenn,
hyggur á mikinn vöxt, að minnsta
kosti tvöföldun á fáeinum árum,
til að geta betur keppt á Norður-
löndunum. Ekki hafði verið horft
til íslenska hlutabréfamarkaðarins
um nokkurt skeið vegna smæðar
hans. Þetta herma heimildir Frétta-
blaðsins.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum eignuðust VIA equity,
leiðandi fjárfestingarsjóður í
Norður-Evrópu, og PFA, stærsti líf-
eyrissjóður Danmerkur, 30 prósenta
hlut í Advania á þriðjudag. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins keyptu
sjóðirnir hlutabréf af hluthöfum og
lögðu fram aukið hlutafé.
„Skráning á hlutabréfamarkað er
einn af þeim valmöguleikum sem
eigendur Advania hafa ávallt litið
til, til að efla fjárhagslegan styrk
fyrirtækisins og nýta hann til að
halda áfram að vaxa. Með tilkomu
VIA equity og PFA hefur dregið úr
líkunum á að af skráningu á markað
verði á næstu misserum,“ segir Gest-
ur G. Gestsson, forstjóri Advania, í
samtali við Fréttablaðið.
Framtakssjóður Íslands eignaðist
71 prósents hlut í Advania í kjölfar
bankahrunsins. Á árunum 2014 og
2015 eignaðist fámennur hópur
norrænna fjárfesta með reynslu og
þekkingu á upplýsingatæknigeir-
anum á Norðurlöndum meirihluta í
félaginu og lagði því til um tvo millj-
arða króna í aukið hlutafé. Við það
tækifæri var tilkynnt að stefnt yrði
að skráningu fyrirtækisins á hluta-
bréfamarkað í Svíþjóð og á Íslandi.
Breidd og dýpt
Spurður hve hratt sé stefnt á að vaxa
á næstu árum bendir hann á að
þörfin fyrir upplýsingatækni verði
æ meiri í viðskiptalífinu. „Tvennt
skiptir sköpum í rekstri upplýs-
ingatæknifyrirtækja. Annars vegar
þarf að hafa nægjanlega breidd til
að þjóna þörfum viðskiptavina.
Þeir vilja almennt skipta við sama
fyrirtækið. Hins vegar er upplýs-
ingatækni orðin svo flókin við-
fangs að það þarf að hafa yfir að
ráða djúpri þekkingu á henni. Til
að geta boðið breidd og dýpt þarf
Advania að stækka. Fyrirtækin sem
við erum að keppa við eru með
15-70 þúsund starfsmenn. Við erum
afar smátt fyrirtæki í þeim saman-
burði, á Íslandi eru 730 starfsmenn
og 1.300 í heildina,“ segir hann.
Velta Advania í Svíþjóð var um 24
milljarðar króna í fyrra og mark-
aðshlutdeildin einungis 1 prósent.
Hann telur því möguleikana mikla
en velta á því hve vel verði haldið á
spilunum. Ljóst er þó að stefnt sé að
örum vexti.
Horft til Norðurlanda
Horft verði til kaupa á tæknifyrir-
tækjum á Norðurlöndunum en þar
sé mikið af keppinautum sem þurfi
að vaxa. „Mörg fyrirtæki þurfa að
verða breiðari og dýpri eins og við,“
segir Gestur. Hann horfir til fyrir-
tækja með góð stjórnendateymi og
ánægða viðskiptavini sem gætu eflt
Advania. Ekki sé horft á einhverjar
syllur umfram aðrar.
Frá árinu 2012 til ársins 2017
jókst veltan um 43 prósent eða um
10,5 milljarða króna en hún var
um 35 milljarðar króna í fyrra. Að
sögn Gests má telja innri vöxt fyrir-
tækisins í tveggja stafa tölum. Starfs-
mönnum á Íslandi hefur fjölgað um
260 frá 2012 til dagsins í dag, eftir
að tilkynnt var um yfirtöku á Wise,
og eru þeir nú 730. Um 60 prósent
veltunnar má rekja til Svíþjóðar, 30
prósent til Íslands og það sem eftir
stendur til Noregs. „Starfsemi okkar
er lítil í Danmörku,“ segir hann.
Advania samanstendur af 14 fyrir-
tækjum sem hafa sameinast, þar af
átta íslenskum. Það liggur í hlutar-
ins eðli að fleiri samrunar hafa átt
sér stað á Íslandi því þau fyrirtæki
eru smærri en á hinum Norðurlönd-
unum. helgivifill@frettabladid.is
Advania frestar skráningu á markað
Hlutafjáraukning hjá Advania leiddi til þess að fjárhagsleg markmið náðust sem stefnt var að með skráningu. Advania, sem er með
1.300 starfsmenn, hyggur á mikinn vöxt á næstu árum. 60 prósent tekna Advania koma frá Svíþjóð og 30 prósent má rekja til Íslands.
Advania kaupir Wise
Advania hefur fest kaup á fyrir-
tækinu Wise en þar starfa um 80
manns. Eftir sameiningu verður
Advania með um 200 starfsmenn
sem sérhæfa sig í viðskipta- og
framleiðnilausnum Microsoft.
Með sameiningunni verður til
eining sem hefur burði til að
keppa við alþjóðleg fyrirtæki á
þessum markaði. Þetta kemur
fram í tilkynningu.
Beðið er eftir að Samkeppnis-
eftirlitið leggi blessun sína yfir
kaupin. Wise var áður í eigu AKVA
group í Noregi.
Wise selur Microsoft Dynamics
NAV bókhalds- og viðskiptahug-
búnað hér landi.
VIA equity, fjárfestingarsjóður í Norður-Evrópu, og PFA, stærsti lífeyrissjóður
Danmerkur, hafa eignast 30 prósenta hlut í Advania. FréttABlAðIð/ErNIr
Gestur G.
Gestsson.
7 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F Ö s t U D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
0
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
2
-7
5
A
0
2
0
C
2
-7
4
6
4
2
0
C
2
-7
3
2
8
2
0
C
2
-7
1
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K