Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2018, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 07.09.2018, Qupperneq 23
Framhald á síðu 2 ➛ Samgöngur F Ö S T U DAG U R 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 Kynning: Strætó „Sumir hafa ekki einu sinni kannað hvort strætó sé hagkvæmur valkostur fyrir sig og bara ákveðið að hann henti þeim ekki. Þeir verða svo yfirleitt mjög hissa þegar þeir koma auga á að þjónust- an gæti komið sér vel og uppgötva hve einfalt það er að nota strætó í dag, sérstaklega með tækninýjungum eins og appinu,“ segir Skúli Örn Sigurðsson, sölustjóri hjá Strætó. MYND/SIGTRYGGUR ARI Góður valkostur fyrir flesta ef fleiri myndu nýta sér þjónustu strætó myndi umferðin léttast mjög mikið. strætó leggur áherslu á aukna þjónustu við alla vistvæna samgöngumáta, eins og hjólreiðar og deilibílanotkun. Eitt af markmiðum Strætó er að létta umferð og samnýta vistvæna samgöngumáta. Í því samhengi leggur fyrirtækið áherslu á aukna þjónustu við alla vistvæna samgöngumáta, eins og hjólreiðar og deilibílanotkun, segir Skúli Örn Sigurðsson, sölustjóri hjá Strætó. „Dæmi um þessa samþættingu eru nemakortin okkar, en með hverju 6 eða 12 mánaða korti fylgir frí áskrift og ein frí klukkustund á mánuði með deilibílum Zipcar. Nemakortin gilda í alla strætisvagna á höfuð- borgarsvæðinu og gefa einnig not- endum aðgang að næturvögnum Strætó sem aka úr miðbænum um helgar. Í sumar var einnig boðið upp á þann möguleika að kaupa 24 klst. dagspassa í Strætó-appinu. Með dagspassanum fylgdi afsláttar- kóði sem gerir notendum kleift að leigja WOW-borgarhjól fjórum sinnum yfir daginn án frekari kostnaðar. Við teljum því að það séu mörg sóknarfæri til staðar til þess að þjónusta farþega Strætó með fjölbreyttum hætti.“ Samvinna við Zipcar Ein leið til bættari og vistvænni samgöngumáta er að styðja fyrir- tæki til að hvetja starfsfólk sitt til að nota umhverfisvænan ferða- máta. Þá er því starfsfólki boðið tólf mánaða Strætókort á verði níu mánaða korts, segir Skúli. „Slík kort köllum við Samgöngukort. Þá þurfa fyrirtæki fyrst að gera Samgöngu- samning við okkur en það er hægt að ganga frá því á heimasíðunni okkar. Eftir það geta starfsmenn fyrirtækisins keypt kortið og fengið þannig þrjá mánuði í Strætó frítt. Sum fyrirtæki bjóða einnig upp á samgöngustyrk þar sem starfsmenn geta fengið um 7.500 kr. skattfrjálst á hverjum mánuði gegn því að þeir nýti sér vistvænar samgöngur í vinnuna.“ Skúli segir Strætó vera í góðu samstarfi við deilibílaþjónustuna Zipcar, sem leigir út bíla í skamm- tímaleigu með stuttum fyrirvara. „Með hverju Samgöngukorti fylgir 1 klst. prufa með þessari þjónustu og frí áskrift á tímabilinu. Hugmynd okkar með samstarfi við Zipcar er að brúa það bil sem Strætó gæti átt erfitt með að dekka, eins og þegar fólk þarf að skreppa. Strætó getur hentað vel frá stað A til staðar B en stundum er gott að geta fengið lánaðan bíl þegar notendur þurfa að skreppa á stað C. Zipcar kemur þar inn sem möguleg lausn. Þessir bílar eru staðsettir á víð og dreif um borgina svo það ætti ekki að vera langt að sækja næsta bíl.“ Kynningarblað 0 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C 2 -5 C F 0 2 0 C 2 -5 B B 4 2 0 C 2 -5 A 7 8 2 0 C 2 -5 9 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.