Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 11
Ég vil þakka tvær svar-greinar sem komið hafa við skrifum mínum um nauðgunarmenn-ingu. Þóra Kristín Þórsdóttir skrifaði fyrir
hönd Kvennahreyfingarinnar og
svo einnig Guðrún Ebba Ólafsdóttir
ásamt Kristínu I. Pálsdóttur. Það er
ekki vanþörf á samtali.
Í báðum greinum er lýst þeirri
hugsun að e.t.v. séu skrif mín sett
fram kynbræðrum og stéttar-
bræðrum mínum til varnar. Það skil
ég vel þar sem ég er, jú, miðaldra
karlprestur og DV hefur nýlega
verið með stóran greinaflokk undir
heitinu Syndir kirkjunnar. Eins er
rétt að taka fram, svo alls gagnsæis
sé gætt, að einn þeirra sem til
umfjöllunar hafa verið hjá DV,
Helgi Hróbjartsson, var móður-
bróðir minn. Mér er því vandi á
höndum að fjalla um þessi mál.
Í báðum greinum er mér borið á
brýn að ég telji ljótt af DV að fara í
skammarherferð gegn nafngreind-
um gerendum í kynferðisbrota-
málum. Ég er að segja annað. Ég
efast um gagnið af aðferð DV vegna
þess að hún gengur að mínum
dómi ekki nógu langt. Ég tel einmitt
að það eigi að gera það sem DV er
að gera; nafngreina opinberlega og
afhjúpa gerendur á forsendum þol-
enda með hagsmuni þolendanna
fyrir augum. En það þarf meira.
Ég hef lært það sem manneskja
og líka í samtölum við þolendur og
gerendur ofbeldis sem prestur í ára-
raðir að kjarni og inntak ofbeldis
er skömm sem er lifuð sem sterk
líkamleg tilfinning. Og með því að
lýsa ofbeldisverknuðum með þeim
orðum að þar sé skömm færð úr
einum líkama yfir í annan kemst
maður betur í tengsl við veruleika
ofbeldisins í eigin lífi og verður
færari um að horfa á það og viður-
kenna það sem þolandi eða gerandi
eða ástvinur. Þess vegna nota ég
þetta orðalag.
Önnur leið til að lýsa ofbeldi er sú
að tala um það sem stjórnun með
stjórnleysi. Ofbeldi er nefnilega
ekki bara stjórnleysi heldur skipu-
lagt stjórnleysi. Við huggum okkur
gjarnan með því að útmála ger-
endur sem brjálað fólk og hyllumst
til að skilgreina þá sem framandi
fyrirbæri. Það hjálpar ekki. Ofbeldi
er aðferð í samskiptum sem virkar
og er þ.a.l. útbreidd. Gerendur í
ofbeldismálum vita almennt hvað
þeir eru að gera. Þess vegna þarf að
skila skömminni.
Ég bendi hins vegar á að það
dugar ekki að skila skömminni og
láta þar við sitja. Við verðum að
finna leiðir til þess að auka kyn-
ferðisöryggi í samfélaginu og fækka
kynferðisglæpum því kynferðisof-
beldi er eins og kjarnorkusprengja;
geislunaráhrifin eru endalaus.
Hvernig fækkum við afbrotum?
Ekki með því að sýna ofbeldinu
skilning heldur með því að skilja
hvernig það virkar og finna leiðir til
að halda gerendum ábyrgum.
Ég vil meina að hugmyndin um
að refsa gerendum í kynferðisglæpa-
málum með opinberri og endan-
legri útilokun sé vond vegna þess
að hún viðheldur hinni langþróuðu
skammarmenningu sem fóðrar
ofbeldið. Aðferð unga snapparans
sem „afgreiddi perrann“ á bílastæð-
inu um daginn og farið hefur sem
eldur í sinu um samfélagsmiðlana
er öfgafull afurð þess hugarfars. Ég
er sammála Þóru Kristínu þegar
hún vill að við krefjumst „þess af
gerendum að þeir leiti sér hjálpar,
fari í gagngera sjálfsvinnu, til að þeir
beiti ekki fleiri ofbeldi í einhverju
formi og í tilfelli réttarkerfisins
[þurfi] að skylda þá til þess“. Þetta er
nákvæmlega það sem iðrun, yfirbót
og hugsanleg fyrirgefning er um.
Ofbeldið sjálft verður aldrei fyrir-
gefið eða réttlætt. Gerendur þurfa
leiðbeiningu við að sýna viðeigandi
iðrun og yfirbót og þeir verða jafn-
framt að vita að samfélagið muni
ekki refsa þeim með eilífri útilokun
heldur fái þeir viðeigandi rými
þegar þar að kemur eftir eðli máls.
Ef sá dagur síðan kemur í lífi
þolanda að persóna gerandans og
Samtal um kynferðisofbeldi
Bjarni Karlsson
prestur
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
KOLEOS
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn
og sparneytinn.
Renault Koleos, verð frá: 5.590.000 kr.
Staðalbúnaður í Koleos er m.a.: Virkur neyðarhemlunarbúnaður, Akreinavari, umferðarskiltaskynjun með viðvörun, aðalljós sem beygja um leið og beygt er,
LED stöðuljós með „Follow Me Home“ búnaði, leiðsögukerfi með Íslandskorti, R-Link margmiðlunarkerfi, Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin í reynsluakstur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
0
R
e
n
a
u
lt
K
o
le
o
s
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Þín eigin skrifborðskæling!
Kæli-, raka- og lofthreinsitæki, allt í einu tæki.
Kynningarverð aðeins kr. 37.227 m.vsk.
ofbeldisatburðurinn hefur ekki
lengur vald á lífi hans, m.a. vegna
þess að vel og faglega var á málum
tekið, þá getur verið að hann segi að
hann hafi fundið frið gagnvart mál-
inu eða að hann sé búinn að fyrir-
gefa ofbeldismanni sínum. En oftast
segir fólk einfaldlega „ég er bara
ekkert að hugsa um þetta lengur“.
Fyrirgefning er alltaf á forsendum
og valdi þolandans. Og já, Guðrún
Ebba og Kristín, sumum getur Guð
einn fyrirgefið.
Framganga DV er í mínum huga
mælir á getuleysi samfélagsins þar
sem ofbeldismál hafa fengið slæma
afgreiðslu og stofnanir eins og þjóð-
kirkjan oft verið svifaseinar og í vörn
þannig að þolendur, gerendur og ást-
vinir hafa lifað mikla berskjöldun.
Þess vegna hringsóla persónur og
leikendur á sviði þjáningarinnar og
sögurnar eru bara sagðar upp aftur
og aftur án þess að fullnægjandi
úrvinnsla eigi sér stað. Það er ljótt og
því þarf að breyta.
Ég er að segja annað. Ég efast
um gagnið af aðferð DV vegna
þess að hún gengur að mínum
dómi ekki nógu langt.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
6
-D
7
A
C
2
0
C
6
-D
6
7
0
2
0
C
6
-D
5
3
4
2
0
C
6
-D
3
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K