Fréttablaðið - 11.09.2018, Page 14
Fit Lady verkjaplástrarnir eru sérhannaðir til að hjálpa konum með túrverki,“ segir
Jónína Birna Björnsdóttir, vöru
merkjastjóri hjá ÍSAM. „Margar
konur finna fyrir miklum verkjum
í tengslum við blæðingar og nota
jafnvel mikið af verkjalyfjum. Það
er því full þörf á lausn sem hjálpar
konum með túrverki án þess að
valda óþægilegum aukaverkunum.
Fit Lady plástrarnir innihalda
engin lyf svo að notkun þeirra
fylgja sjaldnast aukaverkanir. Þeir
hjálpa líkamanum að hjálpa sér
sjálfum og klínískar rannsóknir
hafa sýnt fram á virkni þeirra,“
segir Jónína. „Plástrarnir
draga úr tíðaverkjum og
óþægindum, þeir eru vatns
heldir þannig að þeir haldast
á líkamanum í alla fimm
dagana sem þeir geta virkað,
þeir henta langflestum
konum og eru framleiddir úr
hágæða efnum og ofnæmis
prófaðir.“
Gott að losna við
verkjalyfin
Bryndís Hilmarsdóttir er 43
ára og hefur prófað vöruna
í fimm mánuði. Hún segir
þetta vera algjöra byltingu og
að bæði verkirnir og blæðing
arnar hafi minnkað til muna.
„Þetta er búið að reynast
mér rosalega vel. Ég þarf
eiginlega ekkert að taka inn
verkjalyf eftir að ég byrjaði að
nota plástrana. Þetta dugar
bara. Ég set þá á daginn sem ég
byrja á blæðingum og er með
þá í fimm daga,“ segir Bryn
dís. „Það er hægt að setja þá aftur á
eftir það, en mér hefur ekki fundist
þörf á því, þó ég sé stundum með
blæðingar í tólf daga.
Áður þurfti ég að fara í sturtu
tvisvar á dag og fá mér að meðal
tali fjórar verkjatöflur yfir daginn,“
segir Bryndís. „Það munar rosalega
miklu að vera núna laus við að
bryðja verkjalyf, því þau eru svo
óholl.
Ég finn að það er ekkert mál
núna að fara í göngutúr eða í
ræktina, en ég forðaðist það oft
áður þegar ég var á blæðingum því
ég óttaðist að finna fyrir verkjum
eða að það myndi blæða í gegn,“
segir Bryndís. „Núna hreyfi ég mig
meira og er meira á ferðinni, því
mér finnst ég öruggari. Ég er líka
betri í skapinu af því að verkirnir
hafa minnkað.
Ég mæli miklu frekar með þessu
en að nota verkjatöflur. Ég hef
barist lengi við mikla verki og
miklar blæðingar og prófað ýmis
legt annað, en ekkert hefur virkað
eins vel,“ segir Bryndís.
Fit Lady verkjaplástrarnir fást
í flestöllum apótekum. Nánari
upplýsingar eru hægt að nálgast á
www.isam.is/fit-therapy/fit-lady/.
Nú er haustið að skella á með skólasetningum og
tilheyrandi lúsapóstum
frá skólum og leikskólum,“
segir Jónína Birna Björns
dóttir, vörumerkjastjóri
hjá ÍSAM. „Margir kannast
við þessa pósta og halda
í vonina um að barnið
sleppi við lúsina í þetta
skiptið. En nú er hægt
að bregðast við póst
unum með fyrirbyggjandi
aðgerðum og minnka þann
ig líkurnar á því að barnið
fái lús.
ÍSAM hefur hafið sölu
á LeeLoop hárteygjum,
byltingakenndri vöru sem
verndar hárið gegn lúsa
smiti,“ segir Jónína. „Þessar
einstöku teygjur innihalda
100% náttúruleg efni og
ekkert skordýraeitur eða
gerviefni. Þær innihalda
efnasamsetningu (Phyto
Clear Complex) sem gefur
frá sér lykt sem minnir helst
á Eucalyptus og lúsin forðast
en börnum líkar. Hún er
auðveld í notkun og börn
geta notað hana sjálf.
Teygjan virkar strax sem
fyrirbyggjandi vörn gegn
lúsasmiti þegar hún er sett
í hárið og árangursprófanir
sem voru gerðar á óháðum
stofnunum sýna að í 95%
tilvika kemur teygjan í
veg fyrir lús,“ segir Jónína.
„Teygjan er örugg í notkun
fyrir öll börn frá þriggja ára
aldri og getur sparað bæði
tíma, peninga og áhyggjur. Hún
virkar hins vegar bara sem fyrir
byggjandi vörn, en ekki þegar lúsin
er komin í hárið.
LeeLoop teygjan er fáanleg
víða um land. Hún fæst í nær
öllum apótekum, verslunum
Nettó, Fjarðarkaupum, stærstu
verslununum Krónunnar, Þinni
verslun, Hlíðarkaupum, Pétursbúð
og verslunum Hagkaupa,“ segir
Jónína. „Hver pakki inniheldur
fjórar teygjur og hver teygja kostar
um 300400 krónur, þannig að
pakkinn kostar ekki svo mikið og
veitir forvörn í tvo mánuði.“
Bryndís Hilmarsdóttir segir að plástrarnir hafi verið algjör bylting og þeir hafi
minnkað bæði verkina og blæðingarnar til muna hjá henni. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Plástrar gegn túrverkjum
Fit Lady verkjaplástrarnir draga úr tíðaverkjum og óþægindum í tengslum við blæðingar. Þeir inni-
halda engin lyf, virka í allt að fimm daga, henta öllum konum og byggja á klínískum rannsóknum.
Framhald af forsíðu ➛
LeeLoop hárteygjurnar innihalda eingöngu náttúruleg efni og geta sparað bæði tíma, peninga og áhyggjur.
Þessar einstöku
teygjur innihalda
100% náttúruleg efni og
ekkert skordýraeitur
eða gerviefni.
Fit Lady plástrarnir fara á bakið og
sitt hvorum megin í nárann.
Þetta er búið að
reynast mér rosa-
lega vel. Ég þarf eiginlega
ekkert að taka inn
verkjalyf eftir að ég
byrjaði að nota plástr-
ana. Þetta dugar bara.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
6
-F
0
5
C
2
0
C
6
-E
F
2
0
2
0
C
6
-E
D
E
4
2
0
C
6
-E
C
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K