Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 18
Þetta eru fullorðinsnámskeið fyrir alla þá sem langar að prófa að læra að skauta.
Það hefur komið þarna fólk sem
hefur varla þorað að stíga inn á
ísinn og það er farið að gera alls
konar æfingar,“ segir Eva Dögg
Benediktsdóttir sem hefur tekið
þátt í námskeiðunum síðustu
tvö ár. „Æfingarnar eru rosalega
skemmtilegar, við erum með góða
þjálfara sem hafa reynslu af því að
þjálfa fólk á öllum getustigum og
félagsskapurinn er alveg frábær
enda hlæjum við mikið á æfing-
unum.“
Skautafélag Reykjavíkur stendur
fyrir skautanámskeiðunum sem
haldin eru í Skautahöllinni í
Laugardal. Þau eru ætluð bæði
konum og körlum á öllum aldri.
„Ástæðan fyrir því að farið var af
stað með þessi námskeið var ein-
lægur áhugi hjá fólki sem sóttist
eftir því að fá að læra á skauta.
Þeirra á meðal voru foreldrar
barna sem eru að æfa skauta en
þetta er frábær leið fyrir þá að
kynna sér betur út á hvað íþrótt
barnanna gengur. Þá er líka frá-
bært að foreldrar geti notið þess
að skauta með börnunum sínum,“
segir Eva Dögg.
En hvernig eru námskeiðin upp-
byggð?
„Við byrjum á að hita upp fyrir
utan ísinn. Förum svo í skautana
og hitum upp inni á ísnum áður
en við gerum æfingar. Byrjað er á
að kenna okkur að skauta áfram,
detta og standa upp. Í hópnum
er fólk á mismunandi getustigum
og þeir lengra komnu gera bara
aðeins flóknari æfingar.“ Til að
iðkendur hafi að einhverju að
stefna eru tekin stigspróf líkt og
í skautaskóla barnanna. „Maður
lærir grunninn og svo er byggt
ofan á. Oftast er það þannig að
maður heldur að maður geti ekki
lært meira en svo bara kemur það.
Við erum farin að fara fram og
aftur á bak, krossa, hoppa og gera
snúninga. Ef þú hefðir sagt mér
fyrir tveimur árum að ég væri að
gera þetta hefði ég ekki trúað þér,“
segir Eva Dögg og hlær.
Hægt er að velja milli þess að
æfa einu sinni eða tvisvar í viku, á
sunnudögum og miðvikudögum.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af
búnaði því skauta og slíkt má fá
lánað á staðnum. „Ég mæli með
þessu fyrir alla sem vilja hafa
gaman,“ segir Eva Dögg.
Nánari upplýsingar má nálgast á
skautafelag.is eða gegnum list@
skautafelag.is.
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442
Undanfarin ár hafa 9. og 10. flokkar kvenna og karla í körfuboltanum í Grindavík
skipst á að fara í körfuboltabúðir
erlendis. Í flestum tilfellum hafa
hóparnir farið til Bandaríkjanna
en einnig hefur Spánn orðið fyrir
valinu. Síðasta sumar var komið að
stelpunum að fara og hélt hópur
24 stelpna á aldrinum 14-15 ára
til Philadelphiu í Pennsylvaníu-
ríki í Bandaríkjunum þar sem þær
sóttu æfingabúðir hjá Philadelphia
76ers sem leikur í NBA-deildinni.
Með í för voru einn þjálfari,
tveir fararstjórar og tvennir for-
eldrar. Kristjana Jónsdóttir, annar
fararstjóranna, segir ferðina hafa
heppnast afar vel og að stelpurnar
hafi lært mikið af dvölinni ytra.
„Þetta eru rótgrónar körfubolta-
búðir sem 76ers hafa haldið síðan
1985 og ætlaðar krökkum á aldr-
inum 5-17 ára. Stelpurnar stóðu
sig mjög vel og unnu leikmenn frá
okkur m.a. nokkur einstaklings-
verðlaun. Það sem stóð þó líklegast
upp úr hjá þeim var að læra ýmsar
nýjar æfingar og að kynnast síðan
stelpum frá öðrum löndum en
á búðunum í sumar voru m.a.
stelpur frá Spáni og Portúgal.“
Þétt dagskrá
Dagskráin var þéttskipuð alla daga
en búðirnar sjálfar stóðu yfir í
fimm daga, frá sunnudegi til föstu-
dags. „Dagurinn hófst snemma hjá
stelpunum en þær fóru á fætur kl. 7
og byrjuðu daginn á morgunmat.
Klukkan níu var allur hópurinn
mættur inn í íþróttahús þar sem
stelpurnar hittu þjálfarana sína og
farið var yfir dagskrá dagsins.“
Milli kl. 9 og 11.30 tóku stelp-
urnar yfirleitt þátt í fjölbreyttum
stöðvaræfingum. Að þeim loknum
var hádegismatur tekinn á milli
kl. 11.30 og 12.45. „Dagskráin eftir
hádegi, frá kl. 13 til 16, samanstóð
af ýmsum æfingum og svo var
skipt í lið og þær spiluðu nokkra
leiki. Þá tók við frjáls tími fram
að kvöldmat sem þær nýttu til að
fara í sund eða í afþreyingarsalinn
þar sem hægt var að gera sér ýmis-
legt til skemmtunar. Eftir kvöld-
mat hélt dagskráin áfram og voru
ýmist spilaðir leikir eða farið í
ýmsar keppnir eins og vítakeppni,
4 á 4 og skotkeppnir. Dagskránni
lauk loks kl. 22 en þá var farið
að undirbúa sig undir svefninn.
Stelpunum var skipt upp í fimm
hópa strax á fyrsta degi og þann-
ig blönduðust þær saman með
stelpum frá öðrum löndum. Þessir
hópar kepptu sem lið í æfinga-
búðunum og síðasta daginn var
úrslitaleikur þar sem við áttum
m.a. margar stelpur.“
Langur undirbúningur
Undirbúningur og fjáröflun fyrir
ferðina stóð yfir í tvö ár að sögn
Kristjönu. „Bæði foreldrar og
stelpurnar komu að fjáröfluninni
á þessu tímabili sem gekk nokkuð
vel. Hópurinn tók að sér ýmis
verkefni þessi tvö ár, t.d. að sjá
um sjoppuna á leikjum og í fjöl-
liðamótum, við bárum út blöð,
héldum kökubasara og seldum
ýmsan varning til vina, vanda-
manna og bæjarbúa.“
Mikill hiti var í Philadelphiu á
þessum tíma og fór hitinn mest í
33 stig á Celsíus. „Þar sem æfing-
arnar fóru að mestu fram utandyra
var þetta ansi heitt fyrir stelpurnar
og þurftu þær að vera duglegar að
bera á sig sólarvörn og drekka vatn.
Engu að síður var þetta lærdóms-
ríkur og skemmtilegur tími sem
þær munu lifa á um ókomin ár.“
Eva Dögg Benediktsdóttir (t.v.) hefur æft skauta í tvö ár og kemur sjálfri sér
stöðugt á óvart. Með henni á myndinni er Alida Ósk Smáradóttir. MYND/EYÞÓR
Skautanámskeið
fyrir fullorðið fólk
Skautafélag Reykjavíkur stendur fyrir skautanámskeiðum
fyrir fullorðna í Skautahöllinni í Laugardal í vetur. Nám-
skeiðin eru ætluð konum og körlum á öllum aldri.
Hitinn fór mest í 33 gráður á Celsíus sem gat verið erfitt því flestar æfingar voru utandyra hjá stelpunum.
Við erum farin að
fara fram og aftur á
bak, krossa, hoppa og
gera snúninga. Ef þú
hefðir sagt mér fyrir
tveimur árum að ég væri
að gera þetta hefði ég
ekki trúað þér.
Framhald af forsíðu ➛
Alþjóðlegir skólar, góð aðstaða og hagnýt þjálfun. Námskeiðin
hefjast vikulega og hægt er að velja um almennt nám, eða
sérhæft, málfræði og ritun, auðgun orðaforða, betra sjálfs-
traust og samskiptahæfni. Samstarfskólar Lingó eru þekktir
fyrir fagmennsku og byggja á áratuga þekkingu og reynslu.
Tungumál
& háskólanám
erlendis
Tungumálanám erlendis
er lykill að skilningi og samskiptum
2 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RNÁMSKEIÐ
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
6
-F
F
2
C
2
0
C
6
-F
D
F
0
2
0
C
6
-F
C
B
4
2
0
C
6
-F
B
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K