Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.09.2018, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.09.2018, Qupperneq 24
Mörg stéttarfélög- veita félagsmönnum styrki til að sækja nám- skeið eða endurmenntun. Ljúfur þeytingur úr skyri og berjum er tilvalinn orkugjafi á námskeiðum. Á námskeiðum er nauðsynlegt að hafa meðferðis næringar-ríka hressingu sem hægt er að grípa til þegar hlé gefst. Dæmi um bragðgott, hollt og saðsamt nesti sem bæði örvar hugsun og úthald er heimagerður þeytingur úr berjum, skyri og chia-fræjum. Blandið saman vanilluskyri eða bláberja- og jarðarberja- skyri, ferskum bláberjum og jarðarberjum, chia-fræjum, jafnvel banana, og svo ísmolum í blandara og þeytið þar til áferðin verður mjúk og auðveld að sötra. Setjið þá á flösku. Hægt er að útbúa slíkan ljúfling kvöldið fyrir námskeið og geyma í ísskáp. Ljúfling á námskeiðið Margir láta sig dreyma um að sækja námskeið í nýju tungumáli, söng, bútasaumi, ræðumennsku eða matreiðslu til að bæta við sig þekkingu og eiga um leið ánægju- legan tíma fyrir sjálfa sig. Kostnað- ur við námskeið getur þó stöðvað suma í að láta drauminn rætast. Mörg stéttarfélög veita félags- mönnum styrki til að sækja nám- skeið eða endurmenntun og vert er að kynna sér vel hvernig reglum um úthlutun er háttað. Oftast þarf að skila inn ýmiss konar gögnum á borð við launaseðla og er gott að huga að slíkum atriðum í tíma. Þá veita mörg fyrirtæki starfsfólki styrki til að stunda heilsurækt og er um að gera að nýta sér þá. Styrkir til náms Marga dreymir um að læra nýtt tungumál eða fara á matreiðslunámskeið. Í öllu námi er mikilvægt að temja sér gott skipulag og öguð vinnubrögð til að fá sem mest út úr náminu. Margir skólar bjóða upp á námskeið í námstækni þar sem farið er yfir skipulagningu námsins, hvernig bæta má minnið, lestur og glósur, eða greina í sundur aðalatriði og aukaatriði. Einnig er farið yfir hvernig gott er að undirbúa sig fyrir próf og hvern- ig draga má úr prófstressi. Nám- skeiðin hjálpa flestum við að finna út hvernig námsmenn þeir eru og hvernig þeir geta bætt sig til að verða enn betri námsmenn. Því er óhætt að mæla með að sækja nám- skeið í námstækni strax í upphafi náms til að létta sér þann tíma sem fram undan er, sama hvort sest er á framhaldsskólabekk, háskólabekk eða farið í endurmenntun. Góð námstækni mikilvæg Námskeið í námstækni koma sér mjög vel strax í upphafi námsins. Kramhúsið ORKUSTÖÐ Í MIÐBÆNUM SKRÁNING HAFIN Á NÝ NÁMSKEIÐ Sími 551 5103 · kramhusid.is Gengið inn frá Bergstaðastæti – Litríkt port við hliðina á Rauða Kross búðinni. Tryg gðu þér pláss! Sérsniðnir einkatímar í hópefli og dansstuði fyrir vina- og vinnuhópa, steggi og gæsir – og allt þar á milli. ORKA Y Pilates Y Yoga Y Herra Yoga Y Zumba Y Danspartý Y Músikleikfimi DANS Y Afró Y Ballett Y Beyoncé Y Burlesque Y Broadway Y Bollywood Y Balkan Y Contemporary Y Flamenco Y Jazzballett Y Magadans Y Tangó Y Hip Hop BÖRN & UNGLINGAR Y Break Y Skapandi dans Y Spuni, tónlist og dans Y Leikur og skapandi hreyfing Y Afró GLEÐI-GLEÐI-GLEÐI 8 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RNÁMSKEIÐ 1 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 C 7 -0 4 1 C 2 0 C 7 -0 2 E 0 2 0 C 7 -0 1 A 4 2 0 C 7 -0 0 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.