Fréttablaðið - 13.09.2018, Page 4

Fréttablaðið - 13.09.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Sefitude — ný meðferð við kvíða og svefntruflunum Notkun Við vægum kvíða: fullorðnir, 1 tafla á dag allt að 3 á dag. 12–18 ára: 1 tafla á dag allt að 2 á dag. Við svefntruflunum: fullorðnir og eldri en 12 ára: 1 tafla ½–1 klukkustund fyrir svefn. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með börn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Fæst í öllum helstu apótekum án lyfseðils Ert þú að fást við svefntruflanir eða kvíða? Sefitude er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót garðabrúðu. Styttir tímann til að sofna og bætir gæði svefns. florealis.is/sefitude BANDARÍKIN Spáin fyrir fjórða stigs fellibylinn Florence, sem búist er við að gangi á land í Norður- og Suður-Karólínuríkjum Banda- ríkjanna aðfaranótt föstudags, er sögð hafa versnað í gær. Nú er útlit fyrir að stormurinn verði lengur yfir strandlengjunni áður en hann beygir í suðvestur í átt að Georgíu, ekki norður í átt að Virginíu. Veður- stofan Weather Channel sagði stefnubreytinguna fordæmalausa. Vindhraði í bylnum mældist um sextíu metrar á sekúndu í gær. Í umfjöllun Ars Technica var tekið fram að venjulega stafi þrenns konar hætta af fellibyljum. Það er að segja að sjávarborð hækki og valdi flóðum, að mikil úrkoma valdi flóðum og svo er það vind- urinn. Florence telst einstaklega hættulegur fellibylur þar sem útlit er fyrir að hann hafi alla fyrrnefnda þætti í för með sér. Chad Myers, veðurfræðingur CNN, spáði því í gær að stormur- inn muni styrkjast áður en hann gengur á land. Verði jafnvel fimmta stigs fellibylur með vindhraða upp á sjötíu metra á sekúndu. Í umfjöllun CNN í gær kom fram að það auki á hættuna að Florence gangi á land norðar en nokkur annar fjórða stigs fellibylur í skráðri sögu. Því séu íbúar óvanir því að takast á við hættu sem þessa. AP greindi frá því í gær að íbúar við strandlengjuna flýi nú í tugþús- undatali. Fólk hafi komið að tómum eldsneytisdælum og tómum hillum í matvöruverslunum á leiðinni.  – þea Florence gæti skollið á Bandaríkjunum með sögulegum veðurofsa Horft í auga stormsins úr Alþjóðlegu geimstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/NASA LÖGREGLUMÁL Erfið sakamál ein- kenndu árið 2017, segir lögreglu- stjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Ársskýrsla embættisins kom út í gær. Verkefnum fjölgaði um ríflega 13 prósent frá 2016. Lögreglustjórinn gerði mál Birnu Brjánsdóttur að umtalsefni og sagði málið hafa skekið þjóðina. Hún ræddi um #metoo og nauðsyn þess að stofna Bjarkarhlíð, móttökustöð fyrir þolendur ofbeldis, sem embættið tók þátt í að setja á laggirnar. 300 til kynn ing ar bárust um kyn ferðis brot sem er fjölg un frá 2016. – ósk Birna og #metoo í ársskýrslunni Sigríður Björk Guðjóns- dóttir, lögreglu- stjóri. 9.500 4.000 20% 1.300 hegn ing ar - laga brot. sérrefsi laga- brot. fjölgun fíkniefnabrota frá árinu á undan. skráð ofbeldisbrot. ALÞINGI „Ég sé fyrir mér að umverfis- og loftslagsmál verði eitt af flagg- skipum okkar utanríkisstefnu,“ sagði Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi. Hún vísaði til nýkynntrar aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem vitnisburðar um metnað ríkisstjórnarinnar í málaflokknum – áætlun sem vísa á veginn í átt að markmiðum Par- ísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og til endanlegs kolefnishlutleysis. „Við Íslendingar höfum sett okkur það markmið að verða kolefnis- hlutlaus ekki seinna en árið 2040 og þessir fyrstu áfangar sýna gjörla að okkur er full alvara með því verk- efni,“ sagði Katrín. Hún sagði sókn í uppbyggingu samfélagslegra innviða halda áfram í nýju fjárlagafrumvarpi – innspýt- ing sem sé langt umfram það sem nokkur stjórnmálaflokkur boðaði í málaflokkinn fyrir síðustu kosn- ingar. „Um leið er tíminn góður þar sem spár gera ráð fyrir minni hagvexti á komandi árum og því tækifæri fyrir hið opinbera til að koma með inn- spýtingu.“ Katrín sagði jafnframt að ríkis- stjórnin hefði sett í forgang að takast á við kynbundið ofbeldi. Sérfræðingahópur hefði skilað af Vill að Ísland verði fyrirmynd annarra í loftslagsmálum Forsætisráðherra gerði umhverfismálum hátt undir höfði í stefnu- ræðu. Formaður Við- reisnar segir ríkis- stjórnarflokkana hafa sameinast um „kyrr- stöðu og völd“. sér verkáætlun vegna baráttu gegn slíku ofbeldi. Þá kvaðst Katrín hafa ákveðið að láta vinna greiningu á áskorunum vegna fjórðu iðnbylt- ingarinnar. Niðurstöður þeirrar vinnu munu rata á borð Vísinda- og tækniráðs og nýrrar framtíðar- nefndar Alþingis. Katrín gerði heilbrigðismálin einnig að umtalsefni og sagði sjúkl- inga hér á landi hafa þurft að greiða meira fyrir heilbrigðisþjónustu en annars staðar á Norðurlöndum. „Fyrstu skrefin í því að lækka þennan kostnað voru stigin nú um mánaðamótin þegar dregið var úr kostnaði aldraðra og öryrkja við tannlækningar sem er löngu tíma- bær og mikilvæg aðgerð.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði stefnu- ræðu forsætisráðherra heldur rýra og fátt um fyrirheit inn í framtíðina. „Brellumeistarar og umbúða- hönnuðir stjórnarflokkanna hafa hér haft meira að segja en pólitískar hugsjónir og metnaður til raunveru- legra umbóta,“ sagði Þorgerður. Nú sé ljóst, að mati Þorgerðar, að ríkisstjórnarflokkarnir hafi ekki tekið höndum saman um gjörólíka hugmyndafræði, heldur um „kyrr- stöðu og völd“. „Litla ríkisstjórnarbarnið sem við hefðum svo gjarnan viljað sjá koma í heiminn og ná þessari breiðu skír- skotun um stór og mikilvæg mál, var í raun aldrei neitt meira en hug- mynd,“ sagði Þorgerður. kjartanh@frettabladid.is Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki „Þótt ekki eigi að taka neinu sem sjálfsögðum hlut er inni- stæða fyrir því að gera ríkar kröfur um lífskjör. Það er það veganesti sem þetta þing fær til að forgangsraða verkefnum.“ Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn „Hræðsla stjórnarinnar við aukna sam- keppni í mat- vælaframleiðslu er ein meginorsök hás matvælaverðs hér.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokki „Ríkisstjórn sem hefur aðeins starfað í 9 mánuði hefur nú, með nýju fjárlaga- frumvarpi, á 100 ára afmæli fullveldisins, slegið 100 ára met í útþenslu báknsins.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknar- flokki „Nú er farin af stað vinna við að móta fyrstu flugstefnu á Ís- landi sem mun taka á öllum þáttum er varða flugstarfsemi hér á landi.“ Halldóra Mogensen,  Pírötum „Vaxtarhagkerfið hefur skapað tálsýn. Tálsýnin er endalaus auður þegar raunveruleikinn er sá að við höfum safnað risavöxnum skuldum.“ Guðmundur Ingi Guðbrands- son, VG „Mörg munum við úr skóla hvernig sumir kennarar gáfu frest á skilum ritgerða og verkefna, meðan aðrir gerðu það ekki. Í loftslagsmál- unum þýðir ekki að fá fresti.“ Logi Einarsson, Samfylkingu „Við þurfum stórsókn í hús- næðismálum sem tryggir […] tekjulágu fólki hagkvæmar íbúðir til kaups og leigu á viðráðanlegum kjörum. Lengja fæðingarorlof eins og alltof lengi hefur verið lofað.“ Inga Sæland, Flokki fólksins „Ég hefði per- sónulega aldrei staðið hérna í kvöld til að monta mig af 4 prósenta hækkun á persónuafslætti.“  Við Íslendingar höfum sett okkur það markmið að verða kolefnishlutlaus ekki seinna en árið 2040. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C E -4 4 9 C 2 0 C E -4 3 6 0 2 0 C E -4 2 2 4 2 0 C E -4 0 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.