Fréttablaðið - 13.09.2018, Síða 6

Fréttablaðið - 13.09.2018, Síða 6
H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla Umsóknarfrestur til 2. október Námsorlof Rannís auglýsir eftir umsóknum um námsorlof á framhalds- skólastigi fyrir skólaárið 2019-2020. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en þriðjudaginn 2. október næstkomandi, kl. 16:00. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla. Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís. Nánari upplýsingar veitir Jón Svanur Jóhannsson, jon.svanur.johannsson@rannis.is sími 515 5820. Þann 13. september gefur Íslandspóstur út ný frímerki. Efni frímerkjanna er tileinkað lífríki hafsbotnsins við Ísland, Háskólanum að Bifröst/Samvinnuskólanum 100 ára og upphafi dráttar vélaaldar á Íslandi. Einnig koma út Norðurlanda- og Sepac-frímerki. Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkja sölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Safnaðu litlum lis taverkum gæði... ending… ánægja. skoðaðu úrvalið á Weber.is DÓMSMÁL „Ég fer fram á að skjól- stæðingur minn verði ekki aðeins sýknaður heldur verði hann lýstur saklaus í forsendum dómsins,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, verj- andi Guðjóns Skarphéðinssonar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Munnlegur málflutningur fer fram í Hæstarétti í dag og á morgun. Þar sem bæði ákæruvaldið og ákærðu gera sýknukröfur í málinu er vand- séð að Hæstiréttur geti sakfellt á ný. Ragnar segir að þrátt fyrir það skipti miklu máli hvernig forsendur sýknudóms verði orðaðar. Málflutn- ingurinn í dag og á morgun snúist því um meira en sekt eða sýknu. „Sýkna þýðir auðvitað ekkert annað en að ekki hafi tekist að sanna sektina,“ segir Ragnar. Í dómi þyrfti líka að gagnrýna máls- meðferðina alla, á rannsóknarstigi, fyrir sakadómi Reykjavíkur og fyrir Hæstarétti. „Það þarf að loka þessu máli og senda boð til framtíðarinn- ar svo þetta gerist síður aftur.“ Hann segir að í málflutningi í dag verði fjallað um óheiðarlega og ómálefna- lega málsmeðferð og sönnunarmat; hvernig frásagnir voru fengnar fram og hvernig þær voru síðar metnar af dómstólunum. Oddgeir Einarsson, verjandi Sæv- ars Marinós Ciesielski, tekur undir með Ragnari. Hann segir dómþola og aðstandendur þeirra eiga rétt á því að horfst verði í augu við stað- reyndir. „Það er algjörlega augljóst að það sem byggt var á á sínum tíma gerðist aldrei og það á að koma skýrt fram í forsendum dóms.“ Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari í málinu, fer fram á sýknu á grundvelli sönnunarskorts. Hann segir að þrátt fyrir að aðilar máls séu sammála um sýknukröfur hafi menn ólík sjónarmið um hvaða rök séu mikilvægust í því sambandi og hvernig þau verði sett fram. Búast megi við að málflutningurinn snúist um þessi atriði. Enn er ekki útilokað að Hæsti- réttur vísi málinu frá á þeim grund- velli að úrskurður endurupptöku- nefndar sé ólögmætur. Verjendur telja þó ekki miklar líkur á frávísun enda hafi ekkert komið upp í undir- búningi málsins sem bendi til þess. Ragnar bendir þó á að rétturinn skammti málinu afar stuttan tíma í málflutningi og spyr sig hverju það sæti. „Það er óskiljanlegt að Hæstiréttur geti ekki lagt á sig örfáa klukkutíma í viðbót í þessu máli sem er skandall í sögu réttarins og reynt að rétta það við og ávinna sér traust meðal almennings.“ Þeir Oddgeir eru sammála um að málið hefði þarfnast mun ítarlegri umfjöllunar. Þannig hafði Odd- geir til dæmis óskað eftir 5 klukku- stundum til að gera grein fyrir máli Sævars, en aðeins fengið einn og hálfan tíma. adalheidur@frettabladid.is Sýkna dugar ekki til að mati verjenda málsins Munnlegur málflutningur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum hefst í Hæstarétti í dag. Verjendur vilja að sakleysi verði lýst yfir í nýjum dómi. Saksóknari segir ágreining um rökstuðning fyrir sýknu. Frávísun málsins er enn ekki útilokuð. Sævar Marinó Ciesielski gefur vitnisburð við aðalmeðferð í Hæstarétti árið 1980. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Það þarf að loka þessu máli og senda boð til framtíðarinnar svo þetta gerist síður aftur. Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Guðjóns Skarphéðinssonar Fá mál hafa fengið eins mikla athygli í íslenskra fjölmiðla fyrr og síðar. EVRÓPUSAMBANDIÐ Evrópuþingið samþykkti í gær, með 448 atkvæð- um gegn 197, að beita Ungverja for- dæmalausum refsiaðgerðum vegna meintra brota ríkisstjórnar Vikt- ors Orbán forsætisráðherra gegn grunngildum Evrópusambandsins. Orbán-stjórnin var sögð hafa ráðist gegn fjölmiðlum, minnihlutahóp- um og lögum og reglu en þessum ásökunum hafnaði Orbán. Tvo þriðju hluta greiddra atkvæða þurfti til að virkja sjöundu grein Evrópusáttmálans, sem felur í sér að svipta aðildarríki ákveðn- um réttindum. Það tókst og munu þjóðarleiðtogar nú þurfa að fara yfir málið. Þá kemur í ljós hvort eða hvaða refsiaðgerðum verður beitt en þetta er í fyrsta skipti sem Evr- ópuþingið samþykkir aðgerðir sem þessar gegn aðildarríki. Ákvörðun gærdagsins var tekin eftir harða gagnrýni undanfarinna missera á stefnu Orbáns í innflytj- endamálum. Ríkisstjórn hans hefur fylgt harðlínustefnu í málaflokknum, einkum gagnvart flóttamönnum. Meðal annars hefur verið gripið til þess að gera „aðstoð við ólöglega innflytjendur“ refsiverða. Þá hefur Orbán- stjórnin einnig bolað í burtu óháðum félagasam- t ö k u m s e m leggja áherslu á að hjálpa flótta- mönnum. O r b á n hélt sjálfur ræðu fyrir Evrópu- þinginu á þriðjudaginn. „Skýrslan sem þið hafið fyrir framan ykkur er móðgun við Ungverjaland og við heiður ungversku þjóðarinnar,“ sagði Orbán þá og bætti því við að aðförin gegn Ungverjum væri ósanngjörn. Ríkið hefði fullan rétt til þess að byggja stefnu sína á „kristi- legum fjölskyldugildum“. – þea Fordæmalausar aðgerðir gegn Ungverjum Viktor Orbán, forsætis- ráðherra Ungverja- lands. 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C E -5 8 5 C 2 0 C E -5 7 2 0 2 0 C E -5 5 E 4 2 0 C E -5 4 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.