Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2018, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 13.09.2018, Qupperneq 10
Á Íslandi hafa aldrei verið til lifandi strútar svo vitað sé, enda eiga þessir stærstu fuglar jarðar náttúruleg heimkynni í Afríku og eru lítt þolnir á kulda, rigningu og rok. Engu að síður kemur örnefnið Strútur fyrir víða á Íslandi og þá sem heiti á oddmjóum klettum og fjöllum. Telja fræðimenn að nafnið vísi fremur til höfuðbúnaðar eða fatnaðar fyrr á tímum heldur en fuglsins. Þekktasti Strúturinn á Íslandi er í Borgarfirði, enda sést fjallið víða að og hvergi betur en í Húsafelli. Strútur á Mælifellssandi (968 m) er ekki síður tignarlegt fjall, staðsett milli Torfajökuls og Mælifells. Strýtulaga toppurinn kallast Strútskollur, hallandi austurendinn Strútstagl en fleiri örnefni í nágrenninu vísa einnig til fjallsins, eins og Strútsgil, Strútsver, Strútsöldur og Strútslaug. Strúts- nafnið hefur einnig fest við Strútsstíg, skemmtilega 75 km langa gönguleið frá Sveinstindi við Langasjó að Hvanngili. Er þá gengið um Skælinga og Hólaskjól og síðan einstök öræfi Syðra Fjallabaks, þar með talda Álftavatnskróka og fram hjá fjallinu Strút. Skammt frá er snotur skáli Útivistar þar sem tilvalið er að gista eða slá upp tjöldum. Frá Strútsskála bjóðast ýmsar spenn- andi gönguleiðir, eins og inn að Krókagili en vant göngufólk getur þrætt litskrúðug en brött líparítgil alveg inn að Torfajökli. Einnig er gaman að nota daginn og ganga að Hólmsárlóni og Rauðabotni, eða toppa Strút sem tekur hálfan dag. Er þá haldið meðfram norður- og austurhlíðum hans og upp stíg suðaustan- megin í fjallinu. Af tindinum er frábært útsýni yfir Mýr- dalsjökul, Tindfjöll, Svartahnjúksfjöll, Hólmsá, Mæli- fellssand og Mælifell. Eftir að komið er niður af Strút er tilvalið að ganga nokkra kílómetra í austur að svoköll- uðum Hólmsárbotnum. Þar bíður sjóðheit Strútslaug sem er ein skemmtilegasta náttúrulaug á Íslandi. Við laugina er grasbali sem er frábært tjaldstæði, til dæmis fyrir þá sem ganga Strútsstíg eða eru á leiðinni í Jökulgil og Landmannalaugar. Eftir baðið kjósa þó flestir að halda aftur í Strútsskála og tekur það innan við klukkustund. Fleiri myndir má nálgast á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs- appinu eða í PDF-útgáfu blaðsins sem er aðgengi- leg á frettabladid.is. +PLÚS Strútur og Strútslaug Tómas Guðbjartsson læknir og nátt- úruunnandi og Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari fjalla um sér- stæðar perlur í íslenskri náttúru. Frá Strútsskála bjóðast ýmsar spennandi gönguleiðir, eins og inn að Krókagili en vant göngu- fólk getur þrætt lit- skrúðug en brött líparítgil alveg inn að Torfajökli. Hér sést frítt föruneyti slaka á í Strútslaug, einni skemmtilegustu náttúrulaug á Íslandi. Við sjóðheita laugina er grasbali, sem frábært er að tjalda á. MYNDIR/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON Hið tignarlega fjall Strútur á Mæiifellssandi er 968 metra hátt. Staðsett milli Torfajökuls og Mælifells. Í nágrenni Strúts eru frábærar gönguleiðir. 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 C E -6 7 2 C 2 0 C E -6 5 F 0 2 0 C E -6 4 B 4 2 0 C E -6 3 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.