Fréttablaðið - 13.09.2018, Side 21
Sannleikurinn er sá að hótel-
stoppið í Kvosinni er nokk-
urra ára gamalt. Sama er að
segja um miklar skorður sem
hafa verið reistar við bygg-
ingu hótela og stærri gisti-
staða í íbúðarhverfum.Reykjavík – Lýðræði á nú undir högg að sækja víða um heim, einnig í nálægum löndum
þar sem sízt skyldi. Ógnin blasir við
í Bandaríkjunum og einnig sums
staðar í Evrópu. Þetta gerðist ekki í
einu vetfangi heldur smám saman.
Stjórnmálamenn og flokkar daðra
nú sumir opinskátt við fasisma og
dásama einræðisseggi. Sums staðar
hafa slíkir menn og flokkar náð
völdum, t.d. í Póllandi og Ungverja-
landi. Annars staðar sækja þeir í sig
veðrið í stjórnarandstöðu, jafnvel
í Svíþjóð. Sagnfræðingar og stjórn-
málafræðingar í Bandaríkjunum
senda frá sér bók eftir bók til að
vara fólk við. Hér eru fjórar slíkar
frá 2014-2018:
l Um harðstjórn (Timothy Snyder í
Yale-háskóla, On Tyranny)
l Lýðræði í Bandaríkjunum? (Benja-
min Page í Northwest ern-háskóla
og Martin Gilens í Princeton-
háskóla, Democracy in America?)
l Hvernig lýðræðisríki líða undir
lok (Steven Levitsky og Daniel
Ziblatt í Harvard-háskóla, How
Democracies Die)
l Fólkið andspænis lýðræðinu:
Hvers vegna frelsi okkar er í hættu
og hvernig við getum staðið vörð
um það (Yascha Mounk í Harvard-
háskóla, The People vs. Democracy:
Why Our Freedom Is in Danger and
How to Save It).
Finnar og Norðmenn með fullt
hús stiga
Mörgum kann að bregða við vitnis-
burði framangreindra höfunda og
annarra um hnignun lýðræðis í
Bandaríkjunum sem margir hafa
litið á sem forusturíki hins frjálsa
heims. Skýrslur Freedom House í
Bandaríkjunum, óháðrar stofnunar
sem hefur fylgzt með lýðræði um
allan heim og kortlagt það sam-
fleytt frá 1972, sýna þó að þessi
hnignun hefur átt sér aðdraganda.
Frá aldamótum hefur Bandaríkin
vantað talsvert upp á fullt hús stiga
(100) á lýðræðiskvarða Freedom
House þar eð talsvert skortir þar á
óskoruð stjórnmála- og borgara-
réttindi. Frá 2010 til 2018 lækkaði
lýðræðiseinkunn Bandaríkjanna
úr 94 í 86 (Pólland fær 85). Noregur
hefur alltaf fengið fullt hús stiga,
100, og einnig Finnland frá 2005.
Svíar duttu niður í 99 stig 2014 og
2015 vegna óblíðrar meðferðar á
flóttamönnum. Danir hafa nú 97
stig af sömu ástæðu og Hollend-
ingar 99. Ástralía og Nýja-Sjáland
hafa 98 stig þar eð frumbyggjar
landanna þykja ekki búa við sömu
réttindi og aðrir borgarar.
Fimm ástæður
Ísland hafði fullt hús stiga hjá
Freedom House 2004-2009 og datt
af ótilgreindum ástæðum niður í
99 stig eftir hrun 2010-2012, fékk
síðan aftur 100 stig 2013, 2014
og 2016 og hefur síðan þá fallið
niður í 19. sæti listans með 95 stig.
Þau hjá Freedom House tilgreina
fimm ástæður þess að Ísland tapar
stigum:
l Of náið samband stjórnmála-
manna við ýmsa viðskiptahags-
muni.
l Ónógar varnir gegn spillingu.
l Ónógt gegnsæi (formaður Sjálf-
stæðisflokksins er nefndur sérstak-
lega í skýrslunni).
l Ónógt frelsi fjölmiðla (lögbannið
gegn Stundinni er nefnt sérstaklega
og formaður Sjálfstæðisflokksins
einnig í því sambandi).
l Ill meðferð á flóttamönnum.
Stjórnarskrá í salti
Til samanburðar hafa Finnland,
Noregur og Svíþjóð 100 stig á lýð-
ræðislista Freedom House. Holland
og Kanada hafa 99 stig, Lúxemborg
og Úrúgvæ 98 eins og Ástralía og
Nýja-Sjáland. Danmörk, Portú-
gal og San Marínó hafa 97 stig,
Andorra, Barbados, Írland, Japan
og Sviss 96 og Belgía og Ísland 95.
Ætla má að Ísland færist lengra
niður listann þegar þau hjá Free-
dom House kynnast Alþingi betur
og komast að því að þingið hefur
m.a. látið undir höfuð leggjast að
rannsaka einkavæðingu bankanna
og staðfesta nýju stjórnarskrána
sem tveir þriðju hlutar kjósenda
lýstu sig fylgjandi í þjóðaratkvæða-
greiðslunni sem Alþingi hélt 2012.
Fólkið í landinu þarf að vakna –
aftur! – og taka í taumana.
Ísland tapar stigum
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Í leiðara Fréttablaðsins í síðustu viku sagði Kolbrún Bergþórs-dóttir að meirihluti borgar-
stjórnar hefði svifið um í „hálfgerðu
svefnástandi“ og gefið verktökum
lausan tauminn. Það er fjarri sanni.
Tilefni leiðarans virðist vera frétt
um að borgaryfirvöld segi nú stopp
við meiri uppbyggingu hótela í mið-
borginni. Kolbrún fagnar því en
telur að stoppið sé of seint á ferð-
inni. Um það má deila en borgar-
yfirvöld hafa verið glaðvakandi
undanfarin misseri.
Sannleikurinn er sá að hótel-
stoppið í Kvosinni er nokkurra ára
gamalt. Sama er að segja um miklar
skorður sem hafa verið reistar við
byggingu hótela og stærri gististaða
í íbúðarhverfum. Hvort tveggja
hefur gert borgaryfirvöldum kleift
að neita mörgum umsækjendum
um hótelleyfi síðustu árin.
Ein nýjung í Aðalskipulagi Reykja-
víkur, samþykkt 2014, er ákvæði
sem takmarkar verulega rekstur
hótela og stærri gististaða í íbúðar-
hverfum. Ári síðar var tillagan um
kvóta á hóteluppbyggingu í Kvos-
inni samþykkt. Hótelstarfsemi má
ekki vera á meira en 23 prósentum
byggðra fermetra. Slík kvótasetning
mun vera sjaldgæf í borgum en hún
hefur haft tilætluð áhrif í Reykjavík.
Hún kemur til að mynda í veg fyrir
að hinu mikla húsnæði Landsbank-
ans við Austurstræti og Hafnarstræti
verði breytt í hótel þegar Lands-
bankinn flytur í nýjar höfuðstöðvar
við Austurhöfnina.
Hótelkvótanum hefur verið mót-
mælt harðlega og lögmæti hans
dregið í efa. En borgin hefur ekki
gefið sig og bætt um betur. Nú er
kominn sambærilegur kvóti við
Laugaveg og Hverfisgötu. Stefna
borgarinnar er að hóteluppbygging
eigi sér stað austar í borginni.
Í byrjun þessa árs var svo sam-
þykkt í borgarstjórn aðalskipulags-
breyting þannig að nú er lagt blátt
bann við því að breyta íbúðar- eða
skrifstofuhúsnæði í miðborginni í
hótel. En auðvitað eru margir ferða-
menn í miðborginni. Sem betur fer.
Hún hefur að mínu mati sjaldan
verið líflegri og skemmtilegri en nú.
Nei – verktakar
ráða ekki ferðinni
Hjálmar
Sveinsson
borgarfulltrúi
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni
Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við
þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð
myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. Slakaðu á. EyeSight er staðalbúnaður í Subaru Forester LUX, bensín.
Subaru Forester Premium, sjálfskiptur. Verð frá: 5.190.000 kr.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
9
5
S
u
b
a
ru
F
o
re
s
te
r
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
s
e
p
t
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8
1
3
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
E
-5
D
4
C
2
0
C
E
-5
C
1
0
2
0
C
E
-5
A
D
4
2
0
C
E
-5
9
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K