Fréttablaðið - 13.09.2018, Page 22
Margir bundu þær vonir við Viðreisn að hugað yrði að þörfum atvinnulífsins
í borginni. Mörg fyrirtæki sligast
undan háum fasteignasköttum
sem hafa hækkað mikið. Lofað er
lækkun um 0,05% en bara í lok kjör-
tímabilsins. Gagnast fólki kannski
á næsta kjörtímabili en þangað til
hækkar fasteignamat og húsaleiga.
Fáir möguleikar eru fyrir stofnanir
og fyrirtæki á að fá lóðir í Reykjavík.
Íslandsbanki fór í Kópavog. Sýslu-
maðurinn á höfuðborgarsvæðinu
fór í Kópavog. WOW er að fara í
Kópavog.
Skiptir þetta máli? Já. Í fyrsta lagi
missum við störf annað og veikjum
þar með borgina sem búsetukost.
Í öðru lagi missir borgin tekjur. Í
þriðja lagi eykur þetta enn á sam-
gönguvandann sem er í eðli sínu
skipulagsvandi. Við lögðum til að
Keldnalandið yrði skipulagt fyrir
stofnanir og fyrirtæki. Þannig getum
við endurheimt samkeppnishæfni
borgarinnar í atvinnumálum sem
hefur hrakað á síðustu árum. Ekk-
ert slíkt er að finna í stefnu þeirra
flokka sem nú fara með völd.
Það sem vantar
Það er ekki bara að helsta kosninga-
loforð Samfylkingarinnar „Mikla-
braut í stokk“ hafi horfið. Lítið er
að finna um áherslur Viðreisnar í
skólamálum, en fyrir kosningar var
þessu lofað: „Við ætlum að draga úr
miðstýringu og auka faglegt frelsi
grunnskólakennara til að gera til-
raunir með ólík kennsluform.“ Nú
er sagt: „Megináhersla verður lögð
á borgarreknar menntastofnanir.“
Ekki er að sjá að auka eigi faglegt
frelsi og styrkja sjálfstæða skóla.
Ekki er að finna nein markmið um
skuldalækkun. Eða markmið um
hagræðingu. Engin markmið eru
um skilvirkari stjórnsýslu. Hvað þá
um árangur í skólamálum. Mark-
mið í ferðatíma og um minnkun
tafatíma finnast ekki. Við borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lögðum fram tillögu um að loftgæði
fari ekki yfir heilsufarsmörk. Það
var samþykkt sem markmið. Við
munum áfram stunda málefnalega
baráttu fyrir bættri borg og benda
á ágalla. Koma með málefnalegar
tillögur til lausna. Það er okkar
hlutverk.
Hvert stefnir Reykjavík?
Íslenska heilbrigðiskerfið hefur í alltof langan tíma einkennst af skorti á yfirsýn. Sá skortur á yfir-
sýn er hvorki góður fyrir sjúkling-
ana né samfélagið í heild, og leiðir
af sér of mikla þjónustu á sumum
sviðum og biðlista á öðrum stöðum.
Móta þarf stefnu fyrir heilbrigðis-
kerfið allt. Ábendingar þess efnis
komu meðal annars fram í skýrslu
McKinsey frá árinu 2016 (Lykill að
fullnýtingu tækifæra Landspítalans)
og í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá
því í febrúar 2018 (Sjúkratryggingar
Íslands sem kaupandi heilbrigðis-
þjónustu frá febrúar), auk þess sem
gerð heilbrigðisstefnu felur í sér
viðbrögð við ákalli samfélagsins
um skýra heildarsýn í heilbrigðis-
málum.
Með gerð heilbrigðisstefnu svör-
um við spurningum á borð við þær
hvernig heilbrigðiskerfi við viljum
að í boði sé á Íslandi, hverjir veiti
þjónustu, hvenær og hvar og hvaða
gildi við viljum að heilbrigðiskerfið
okkar endurspegli. Hingað til hefur
þessum spurningum verið ósvarað,
og kerfið þar af leiðandi verið brota-
kennt. Nú er unnið að gerð heil-
brigðisstefnu innan velferðarráðu-
neytisins, sem ég hyggst leggja fyrir
Alþingi á komandi vetri.
Brátt líður að endalokum gildis-
tíma rammasamninga Sjúkratrygg-
inga Íslands um kaup á þjónustu
sérgreinalækna utan sjúkrahúsa,
en rammasamningurinn gildir
til 31. desember 2018. Vinna við
endur skoðun samninganna stendur
nú yfir innan velferðarráðuneytis-
ins. Í þeirri vinnu skiptir heildar-
sýnin meginmáli, líkt og við gerð
heilbrigðisstefnu.
Í fyrrnefndri McKinsey-skýrslu
kemur einmitt fram að skilgreina
þurfi hlutverk ólíkra veitenda heil-
brigðisþjónustu og í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar segir meðal ann-
ars að velferðarráðuneyti þurfi að
marka heildstæða stefnu um heil-
brigðisþjónustu sem Sjúkratrygg-
ingar Íslands geta byggt á við samn-
inga um kaup á heilbrigðisþjónustu.
Ákveða þurfi hvaða þjónustu heil-
brigðisstofnanir ríkisins eiga að
veita og hvaða þjónustu eigi að
kaupa af öðrum aðilum og í hvaða
magni.
Endurskoðun rammasamninga
við sérfræðilækna mun einmitt
taka mið af þessum athugasemdum.
Við þurfum að fara úr brotakenndu
kerfi, þar sem tilviljun ein ræður
því hvaða þjónusta er veitt hvar og
af hverjum, og yfir í kerfi þar sem
heildarsýn ríkir. Með því að skýra
samninga um kaup á heilbrigðis-
þjónustu gegnum SÍ og gæta þess
að markmið samninganna, árangur
þeirra og gæðakröfur séu öllum ljós,
og kveða á um það hvaða þjónustu
skuli veita og hvar skuli inna hana
af hendi nálgumst við heildstæðara
kerfi og markvissari og betri þjón-
ustu fyrir alla, þar sem aðgengi að
heilbrigðisþjónustu er jafnt; óháð
efnahag og búsetu.
Heilbrigðiskerfi þar sem
ríkir heildarsýn
Eyþór Arnalds
borgarfulltrúi
Ekki er að finna nein mark-
mið um skuldalækkun. Eða
markmið um hagræðingu.
Engin markmið eru um skil-
virkari stjórnsýslu.
Endurskoðun rammasamn-
inga við sérfræðilækna mun
einmitt taka mið af þessum
athugasemdum. Við þurfum
að fara úr brotakenndu kerfi,
þar sem tilviljun ein ræður
því hvaða þjónusta er veitt
hvar og af hverjum, og yfir
í kerfi þar sem heildarsýn
ríkir.
Svandís
Svavarsdóttir
heilbrigðis
ráðherra
1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040
VW Caravelle T6
Highline 2.0 TDI
VW Golf VII
Comfortline 1.4 TGI
2016 20175.990.000 2.990.000
114.000 21.000Ekinn Ekinn
30
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Fleiri bílar og myndir á netinu: hnb.is
Nokkrir góðir
inn í haustið
VW Golf Variant
Trendline 1.4 TSI MT
Citroen C3
Picasso Seduction 1.6
2015 2014
48 43
Opel Astra
Cosmo
2016
35
2.190.000
Audi A6 Limo
2.0 TDI 190Hö S-line
VW Passat
Variant Highline 1.6 TDI
Audi Q7
Quattro 4.2 V8
20152015 2006
1953 119
Ford B-Max
Titanium 1.6 AT
1.940.0002013
22
1.590.000 2.040.000 1.250.000TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
1.690.000TILBOÐ
5.980.000TILBOÐ 1.990.000TILBOÐ
6.870.0003.890.000 2.490.000
2.490.000 1.590.000
Ford Focus
Edition STW 1.6 MT
2014
93
1.650.000
1.350.000TILBOÐ
VW Passat Alltrack
2.0 TDI 4motion 170hö
2012
84
2.940.000
2.640.000TILBOÐ
1
3
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
E
-6
2
3
C
2
0
C
E
-6
1
0
0
2
0
C
E
-5
F
C
4
2
0
C
E
-5
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K