Verslunartíðindi - 01.09.1923, Blaðsíða 14
106
VERSLUNARTÍÐINDI
Útlönö
Danmörk.
Utdráttur úr frjettaskeytum, sem sendi-
herra Dana hefir sent Verslunarráðinu:
Grænlandsfarinn danski, L. Koch ma-
gister kom heim úr för sinni um Grænland
um miðjan september. Hafði hann rann-
sakað og gert uppdrætti af öllum nyrðri
hluta vesturstrandar Grænlands. Gerði
hann 8 uppdrætti af strandlengjunni og
er hún nú öll kunu. Þykist Koch hafa
fundið gögn fyrir því, að Eskimóar liafi á
ferðalögum sinum farið norður um Græn-
land á leið frá vesturströndinni til austur-
strandarinnar, en ekki suður um eins og
áður hefir verið álitið. Hann hefur safn-
að þýðingar miklum heimildum til jarð-
fræðissögu fandsins og fundið leifar hins
mikla kórallarifs frá þeim tíma er hita-
belti8Íoftslag var í Grænlandi.
Tala atvinnulausra í Danmörku er nú
farið að fækka að mun. Síðast í sept.
voru þeir taldir 19514, en voru um sama
leyti í fyrra 31500.
Næstsíðustu viku af sept. voru útfluttar
landbúnaðarafurðir 2,1 milj. kg. af smjöri,
16,8 milj egg og 3,8 milj. kg. af fleski.
Ungur flugfyrirliði, Crumline að nafni
og gerður er út af »American Army Air
Service« hefur lagt af stað til þess að
rannsaka skilyrði fyrir fluglendingarstöðum
fyrir flugbáta í fjörðunum á Suður-Græn-
landi og síðar rannsaka lendingarstaði á
Islandi og Færeyjum. Er tilgangurinn
sagðui' sá, að undirbúa flug umhverfis jöi'ð-
ina og jafnframt athuga möguleika þe3s
að koma á föstum póstferðum milli Ame
ríku og Evrópu þessa leið í stað leiðarinn-
ar um Azoreyjar.
Hagstofan danska hefir gefið út nýja
skýi’slu um uppskeruhorfur í Danmörku,
og byggist hún á skýrslum, sem ná til 15.
sept. Voru þá 8/r af uppskerunni komið
í hús. Rúguppskeran er áætluð tæplega
í meðallagi, en hveiti og vorsæði með
betra móti.
Dansk-franska sýningin í Khöfn var
opnuð nýlega af sendiherra Frakka, de
Fontenay greifa. 1 setningarræðu sinni
lagði sendiherrann áherslu á, hve ákjós-
anlegt það væri, að nýr verslunarsamn-
ingur yrði gerður rnilli Frakka og Dana,
skýrði frá því, að verslunarmálaráðherrann
franski og ýmsir meiri háttar fulltrúar og
verslunar og iðnaðar í Frakklandi, mundu
bráðlega koma í heimsókn til Kaupmanna-
hafnar.
Síðustu vikuna í sept. voru útfluttar
landbúnaðarafurðir frá Danmörku 2,100
þús. kg. af srnjöri 11396 þús. egg og 3,400
þús. kg. af fleski.
Franski verslunarmálaráðherrann, Dior,
sem kom til Khafnar vegna dansk-frönsku
sýningarinnar, hefur í viðtali við blöðin
minst á verslunarsamning milli Dana og
Frakka, og leggur þar áherslu á að það
sje stjórnarstefna Frakka, að koma aftur
á heilbrigðum og eðlilegum vöruskiftum
á milli landanna og greiða götu alþjóð-
legum viðskiftum á grundvelli frjálsar
verslunar að miklu leyti.
Samkvæmt siðustu vikuskýrslu þjóð-
bankans bafði málertryggiug seðla lækkað
úr 51% niður í 46,6%, með því að upp-
hæð seðla í umferð hafði aukist um 40
milj. upp í 450 milj. kr. Þessi hækkun
er venjuleg um það leyti árs.
Tala atvinnulausra hækkaði fyrstu vik-
una af október um 500, upp í 20,264, en
var í fyrra um sama leyti 30,800.
Meðal útfluttra landbúnaðarafurða fyrstu
vikuna af október voru 2,379,500 kg. af
smjöri, 15,478,000 egg og 20,100 kg. af
fleski.
Heildsöluvísitala Finanstidinda fyrir sept-
ember var 205, en var 202 mánuðinn á