Fréttablaðið - 26.09.2018, Page 4

Fréttablaðið - 26.09.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 RAM 3500. NÝ SENDING VAR AÐ LENDA. ramisland.is TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED. RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 5.960.000 ÁN VSK. KR. 7.390.400 MEÐ VSK. RAM 3500 LIMITED 40” BREYTTUR sjávarútvegur Skiptar skoðanir eru um veiðigjaldafrumvarp Krist- jáns Þórs Júlíus sonar sem kynnt var í gær. Þingmenn og talsmaður sam- taka sjávarútvegsfyrirtækja (SFS) lýsa vonbrigðum. Af ólíkum ástæðum. Frumvarpið á að taka gildi á nýju ári og mun að fullu verða virkt árið 2020. Vinnsla á sjávarafurðum, verður undanskilin veiðigjaldi þann- ig að afkoma veiðanna sjálfra verður aðeins gjaldskyld. Hið opinbera mun ekki leggja veiðigjald á afkomu fisk- vinnslanna í landi. Formaður Við- reisnar undrast að VG ætli að gleypa við þessum breytingum sem að hennar mati séu alfarið í þágu stórút- gerðar í landinu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir frum- varpið valda sér vonbrigðum. „Fljótt á litið eru þetta nokkur von- brigði. Verði frumvarpið að lögum verður veiðigjaldið áfram of hátt og ekki í takt við stöðu og horfur í sjáv- arútvegi. Talað er um í sáttmála ríkis- stjórnarinnar að það eigi að tryggja samkeppnishæfni sjávarútvegs. Það er umhugsunarefni að þegar sverfur nú að útflutningsgreinum telji menn leiðina til að tryggja samkeppnis- hæfni þeirra að viðhalda gjaldtöku úr hófi og langt umfram það sem keppinautar á erlendum mörkuðum búa við. Inni í frumvarpinu eru þó ljósir punktar eins og að færa gjald- töku nær í tíma, taka mið af raun- tölum í rekstri og að hætta að horfa til vinnslu sjávarafurða. Það eru allt sanngirnismál og vonandi hafin yfir pólitískt dægurþras.“ Kristján Þór segir mikilvægt að Sátt um gjöldin ekki í sjónmáli Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra kynnti nýtt veiðigjaldafrumvarp í gær. Fréttablaðið/EyÞór menn greiði aðeins veiðigjald af veiddum afla og að tekið sé tillit til ýmiss kostnaðar við að veiða fiskinn. Einnig sé mikilvægt að taka aðeins gjald af veiðum en ekki vinnslu. „Við getum sagt að það sé tekið til- lit til fjárfestinga í skipum og tækjum við útreikning á gjaldstofninum,“ segir Kristján Þór. „Við höfum ekki verið að velta fyrir okkur fjárhæðum í þessu sambandi heldur að sníða agnúa af núverandi kerfi og það ætti að geta nást góð sátt um aðferðina.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, vill að auð- lindagjaldið verði nýtt á þeim stöðum þar sem það verður til. „Ég hefði vilj- að sjá að gjaldið færi í uppbyggingu innviða þaðan sem gjaldið kemur, að mestu á landsbyggðinni, en það fylgir ekki. Í grunninn eru þetta æfingar sjávarútvegsráðherra að nýjum tekju- skatti þar sem menn geta dregið frá ýmsar fjárfestingar. Það er ekki sá þjóðarhlutur sem ég hefði viljað sjá,“ segir Þorgerður. „Það sem undrar mig er að VG haldi í þennan leiðangur og kokgleypi þessar breytingar sem eru fyrst og fremst í þágu sérhagsmuna. Af hálfu hinna stjórnarflokkanna er þetta frekar fyrirsjáanlegt.“ sveinn@frettabladid.is ✿ Inga sæland ✿ smári McCarthy „Það stingur í augu að veiðigjald eigi eingöngu að leggja á veiðar. Hagnaður fiskvinnslunnar á ekki að koma til út- reikninga eins og nú er. Fiskvinnslan er hluti af auðlindanýtingunni. Öll stærstu félögin, sem greiða sér arð og maka krókinn, eiga vinnslurnar og hagnast gríðarlega. Að aðskilja þetta tvennt gefur mönnum færi á að færa hagnað frá veiðum og yfir á vinnslu í landi og kostnaður við vinnslu verði færður á skipin til frádráttar á veiðigjöldum. Þetta er dapurt frumvarp.“ „Það eru ljósir punktar í þessu frumvarpi en aðalmálið er að Sjálfstæðismenn, sem telja sig vera markaðssinnaðan flokk á þingi, vilji ekki með nokkru móti láta markaðinn um að verðleggja aðgang að auðlindinni. Frumvarpið er ekki að laga þann stærsta galla við núver- andi kerfi. Einnig er ég hræddur um að menn muni nýta sér fjárfestingar til að lækka veiðigjöld og þar með það sem almenningur á að fá fyrir aðgang að auðlindinni.“ SFS gagnrýna veiði- gjaldafrumvarpið. Sé ekki í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um að tryggja samkeppnis- hæfni. Hægt að draga frá fjárfestingarkostnað og lækka þannig veiðigjöld. reykjavík Stærstur hluti innkaupa borgarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins án útboðs var vegna fram- kvæmda við Nauthólsveg 100, sem er betur þekktur sem bragginn í Naut- hólsvík. Mikið hefur verið fjallað um braggaframkvæmdina sem fór mörg hundruð milljónir fram úr áætlun. Kostnaður við hann endaði í 404 milljónum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að á fyrstu sex mánuðum ársins hefði Reykjavíkurborg keypt sérfræði- þjónustu og ýmis önnur vörukaup án útboðs fyrir ríflega 574 milljónir, sem samsvarar ríflega 7 prósentum af heildarinnkaupum á tímabilinu. Samkvæmt sundurliðuðu yfir- liti yfir innkaup borgarinnar yfir 1 milljón króna, sem blaðið hefur undir höndum, má sjá að af þessum 574 milljónum sem keypt var fyrir án útboðs, voru ríflega 102 milljónir vegna braggans umdeilda við Naut- hólsveg; tæpar níu milljónir í kaup á sérfræðiþjónustu frá Secur itas, verkfræðistofunni Eflu og arkitekta- stofunni Arkibúllunni. Mest munar um greiðslu til verk- taka og fyrirtækja vegna svokallaðra „annarra vörukaupa“ sem nema ríf- lega 93 milljónum. Hæstar greiðslur eru til Smiðsins þíns slf. upp á rúm- lega 31 milljón og Rafrúnar ehf. upp á rúmar 23 milljónir. Aðrar framkvæmdir sem útheimtu töluverð útgjöld hjá borginni utan útboðs á tímabilinu voru vegna breytinga á Perlunni, alls ríflega 58 milljónir. Hæsta greiðslan vegna kaupa á sérfræðiþjónustu þar er til verkfræðistofunnar Verkís hf. upp á tæpar 27 milljónir sem sér um fram- kvæmdirnar. – smj Rúmar 100 milljónir fóru í braggann í Nauthólsvík án útboðs Kostnaður við braggann fór yfir 400 milljónir. Fréttablaðið/anton brinK vIðskIptI Bandaríska kaffihúsakeðj- an Dunkin’ Donuts greindi frá því í gær að fyrirtækið hygðist fjarlægja orðið Donuts alfarið úr nafni sínu. Verður keðjan því sum sé bara þekkt sem Dunkin’ frá og með janúar. „Ráðist er í þessa nýju mörkun til þess að skerpa á því markmiði fyrirtækisins að bjóða upp á frábært kaffi en halda í okkar þekktu bleiku og appelsínugulu liti og leturgerð- ina frægu,“ sagði í tilkynningunni. Samkvæmt Reuters hefur sala á kaffi og morgunmat drifið fyrir- tækið áfram á undanförnum fjórð- ungum. Þessi stefnubreyting komi á sama tíma og fyrirtæki á borð við Starbucks eigi í erfiðleikum með að takast á við staðnandi eftirspurn eftir kaffi á bandarískum markaði. Dunkin’ Donuts rekur staði á Íslandi í Kringlunni, Hagasmára, Fitjum og í Leifsstöð. Fyrsta útibúið var opnað á Laugavegi árið 2015 og myndaðist þá mikil og fræg röð fyrir utan staðinn. Útibúinu á Laugavegi var þó lokað fyrir tæpu ári. – þea Bara Dunkin’ en ekki Donuts Frá opnun Dunkin’ á Íslandi. 2 6 . s e p t e M b e r 2 0 1 8 M I ð v I k u D a g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð 2 6 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E A -2 E 6 8 2 0 E A -2 D 2 C 2 0 E A -2 B F 0 2 0 E A -2 A B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.