Fréttablaðið - 26.09.2018, Síða 6
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 27. september
kl. 17.00 í Víkingasal Icelandair hótel Reykjavík Natura.
Á fundinum verður farið yfir framkvæmdir á lóð Landspítala
við Hringbraut vegna byggingar nýs Landspítala.
Allir velkomnir!
Framkvæmdir á Landspítalalóð
Nýr Landspítali ohf. heldur kynningarfund
vegna framkvæmda á Landspítalalóð
SKIPULAGSMÁL „Það hlýtur að vera
sameiginlegt einkenni heiðurs-
borgara að þykja vænt um borgina
og vilja henni allt gott. Ef eitthvað
kemur upp á sem okkur líst ekki á,
held ég að það sé gott að við getum
bundist samtökum um að gera eitt-
hvað. Það er sterkara en að standa
einn,“ segir Friðrik Ólafsson, fyrsti
stórmeistari Íslands í skák og heið-
ursborgari Reykjavíkur.
Friðrik hefur ásamt þremur
öðrum heiðursborgurum, Vig-
dísi Finnbogadóttur, fyrrverandi
forseta, Þorgerði Ingólfsdóttur,
tónlistarkennara og kórstjóra, og
myndlistarmanninum Erró, sent
borginni og byggingar aðilum hót-
els á Landsímareit áskorun um að
láta af áformum um að reisa hótel
í Víkurgarði.
Segir í áskoruninni að það sé
óverjandi að hótel verði reist í
einum elsta kirkjugarði landsins
og helgistað í borginni. Ljóst sé að
skipulag og bygging hótels á þessum
stað eigi sér rætur í vanþekkingu á
sögu Víkurgarðs og mistökum við
gerð deiliskipulags. Hagnaðarvon
og stundarhagsmunir ryðji burt
virðingunni og helginni.
Friðrik, Vigdís og Þorgerður áttu
í gær fund með Degi B. Eggertssyni
borgarstjóra og Þórdísi Lóu Þór-
hallsdóttur, formanni borgarráðs.
„Ég veit ekki hversu miklu við feng-
um áorkað en við lifum í voninni að
borgin sjái að sér. Það eru margir
veikir blettir í þessu. Ég er með á
hreinu að það hafa verið framdar
margar lögleysur í þessu máli af
hálfu borgaryfirvalda og fleiri sem
að þessu koma,“ segir Friðrik.
Dagur segir fundinn hafa verið
góðan. „Ég skil áhyggjur af upp-
byggingu á þessum lykilstað í hjarta
borgarinnar. Við létum fara vel yfir
þetta. Garðurinn var aflagður 1837.
Það er með hliðsjón af því sem borg-
in hefur tekið ákvarðanir.“
Hann segir mikilvægt að hafa
í huga að tekist hafi að tryggja
endurgerð Nasa-salarins og gömlu
húsanna sem snúa út að Ingólfs-
torgi. Uppbygging fari ekki inn í
gamla kirkjugarðinn. „Við munum
fara yfir áskorunina og leggja hana
fram í borgarráði.“
Þórdís Lóa segist ánægð með að
borgarar láti sig mál varða með
þessum hætti. „Málið er komið
langt. Það liggja fyrir byggingar-
heimildir og deiliskipulag þannig
að við stoppum þetta ekki svo glatt.“
Þórdís Lóa segir að sitt sýnist
hverjum um hvort verið sé að byggja
í Víkurgarði. „Borgin metur það sem
svo að ekki sé verið að byggja ofan á
sjálfum garðinum heldur á bílastæði
sem var fyrir framan Landssíma-
húsið.“ sighvatur@frettabladid.is
Fyrirhuguð bygging hótels eigi
sér rætur í vanþekkingu á sögu
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og þrír aðrir heiðursborgarar Reykjavíkur skora á borgina og
byggingaraðila að láta af áformum um byggingu hótels í Víkurgarði. Skipulagið og bygging hótelsins eigi sér
rætur í mistökum í skipulagi. Borgarstjóri segist ætla að skoða áskorunina og leggja hana fram í borgarráði.
Heiðursborgarar afhentu áskorun um að hætt yrði við fyrirhugaða hótelbyggingu í Víkurgarði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
FJÖLMIÐLAR „Það er mjög skýrt að
samkvæmt fjórðu grein laga um
Ríkisútvarpið ber RÚV að stofna
dótturfélög um samkeppnis-
rekstur sinn. Ég tel brýnt
að hrinda því í fram-
kvæmd og stjórn RÚV og
stjórnendur hafa verið
að vinna að því. Það er
stjórnar RÚV að fylgja
þessu eftir,“ segir Lilja
Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra.
Samtök iðnaðarins
sendu stjórn RÚV nýver-
ið bréf þar sem hvatt
er til þess að allur
samkeppnis-
rekstur RÚV
verði settur
í d ó t t u r -
félög. Það
sé forsenda
heilbrigðs
markaðar
og frjálsrar samkeppni að allir aðilar
á markaði starfi eftir sömu reglum.
„Mér finnst mikilvægt að
tryggja aðskilnað á milli
almannahlutverks og
samkeppnisreksturs
RÚV. Það er í takt við
tillögurnar sem ég
kynnti nýverið og
miða að því að styðja
við einkarekna fjöl-
miðla. Það er ljóst að
RÚV er þjóðinni kært
og ég vil hafa öflugan
miðil í almanna-
þágu.“
Það sé hagur allra að hér sé öfl-
ugur miðill í almannaþágu en líka
að það séu öflugir einkareknir fjöl-
miðlar. „Við þurfum að stuðla að
auknu jafnræði á íslenskum fjöl-
miðlamarkaði.“
Lilja segir að í kjölfar umræddra
tillagna hafi verið sett af stað
vinna í ráðuneytinu sem tengist
RÚV. Meðal þess sem verið sé að
skoða sé auglýsingamarkaður-
inn. – sar
RÚV vinni að því að framfylgja lögum
Við þurfum að
stuðla að auknu
jafnræði á íslenskum fjöl-
miðlamarkaði.
Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráð-
herra
DóMSMÁL Landsréttur staðfesti í
gær fjögurra ára skilorðsbundinn
fangelsisdóm yfir El Mustapha
Bkhibkhi, karlmanni á sextugsaldri,
fyrir að áreita fjórtán ára stúlku kyn-
ferðislega í mars í fyrra.
Var El Mustapha ákærður fyrir
brot gegn barnaverndarlögum en
hann kom aftan að stúlkunni á
öskudag í fyrra í rúllustiga í Kringl-
unni. Tók hann utan um hana, sagði
henni að hann elskaði hana, kyssti
hana, hélt um axlir hennar og snerti
brjóst hennar utan klæða.
Bar maðurinn því við að í heima-
landi hans þætti eðlilegt að faðma
ókunnug börn og sýna þeim vænt-
umþykju.
Var El Mustapha einnig gert að
greiða stúlkunni 300 þúsund krónur
í miskabætur. – smj
Káfaði á stúlku
í Kringlunni
DóMSMÁL Aðalmeðferð í Aurum-
málinu hófst í gær í Landsrétti og
heldur áfram í dag. Málið snýst um
meint um boðs svik og hlut deild í
tengslum við sex milljarða króna
lán veitingu Glitnis til fé lagsins FS38
ehf. árið 2008, en félagið var í eigu
Pálma Haralds sonar.
Þrír eru á kærðir. Lárus Welding,
fyrr verandi banka stjóri Glitnis, og
Magnús Arnar Arn gríms son, fyrr-
verandi fram kvæmda stjóri fyrir-
tækja sviðs bankans, fyrir um boðs-
svik. Jón Ás geir Jóhannes son, sem
var einn aðal eig andi Glitnis, er á-
kærður fyrir hlut deild í meintum
um boðs svikum Lárusar og Magn-
úsar. Lárus og Magnús voru sak-
felldir í héraði í nóvember 2016 en
Jón Ás geir og Bjarni Jóhannes son,
fyrr verandi við skipta stjóri Glitnis,
sýknaðir.
Þetta er í fjórða sinn sem málið er
tekið fyrir. Það var fyrst tekið fyrir í
héraði 2014. Allir voru sýknaðir en
málinu áfrýjað. Í apríl 2015 ó gilti
Hæsti réttur dóm héraðs dóms vegna
um mæla eins með dómara. Málið var
tekið fyrir aftur í nóvember 2016.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, segir að vissulega lendi
hann í því nú að endurtaka sig. „En
það er ekki málið að vorkenna mér
eða dómurunum. Þetta er verra fyrir
fólkið sem hefur verið ákært.“
– þea, dfb
Segir endurtekninguna erfiða fyrir ákærðu í málinu
Gestur Jónsson flytur Aurum-málið í fjórða sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Málið er komið
langt. Það liggja
fyrir byggingarheimildir og
deiliskipulag þannig að við
stoppum þetta ekki svo glatt.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður
borgarráðs
TAnSAníA Ríkisstjórn Tansaníu
hefur afhent fjölskyldum þeirra
sem fórust er ferju hvolfdi á Vikt-
oríuvatni í síðustu viku alls um sex
milljónir króna. Isaac Kamwele
samgöngumálaráðherra afhenti
embættismönnum á svæðinu ávís-
un í gær en fjölskyldur hinna látnu
ferðuðust til eyjunnar Ukara, sem
ferjunni hvolfdi við, til þess að sækja
peninginn. Um er að ræða hluta af
þeim 20 milljónum sem íbúar Tans-
aníu, trúfélög og félagasamtök hafa
safnað fyrir fjölskyldurnar.
Tala látinna stóð í gær í 227. Það
þýðir að fjármagnið skiptist í fjöl-
marga hluta. Samkvæmt hinu opin-
bera eiga fjölskyldur rétt á rúmum
40.000 krónum fyrir hvern ástvin
sem fórst í slysinu. Björgunarstarfs-
fólk og þau sem lifðu slysið af eiga
rétt á sömu upphæð.
Samkvæmt fjölmiðlum í Tansaníu
mátti einungis flytja 100 með ferj-
unni. Ljóst er af tölu látinna að farið
var langt fram úr þeim fjölda. – þea
Stjórnin bætir
fjölskyldum
látinna tjónið
2 6 . S e P T e M b e R 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R6 F R é T T I R ∙ F R é T T A b L A Ð I Ð
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-4
2
2
8
2
0
E
A
-4
0
E
C
2
0
E
A
-3
F
B
0
2
0
E
A
-3
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K