Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 12
VIÐ SÉRHÆFUM
OKKUR Í
ASÍSKRI
MATARGERÐ.
HOLLUR OG
LJÚFFENGUR
MATUR.
Vietnamese restaurant
Laugavegi 27 og
Suðurlandsbraut 8
sími: 588 6868
pho.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Fótbolti Þór/KA sækir Wolfsburg
heim í seinni leik liðanna í 32 liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu kvenna síðdegis í dag,
en leikið verður á AOK Stadion,
heimavelli þýska liðsins.
Norðankonur fara með ágætis
veganesti í leikinn, en fyrri leik
liðanna, sem leikinn var á Þórsvell-
inum fyrir tveimur vikur, lyktaði
með 1-0 sigri Wolfsburg. Þar var það
danski landsliðsframherjinn Per-
nille Harder sem skoraði sigurmark
Wolfsburg.
Það var hins vegar ekki gott vega-
nesti fyrir Þór/KA að mexíkósku
landsliðskonurnar Ariana Cald eron,
Bianca Sierra og Sandra Stephany
Mayor geta ekki ferðast með liðinu
og spilað þennan leik vegna verkefna
sinna með landsliði Mexíkó.
Leikmannahópur Þórs/KA er
fámennur en góðmennur, en ein-
göngu 14 leikmenn munu skipa
hópinn í leiknum í dag. Það er hins
vegar feikinóg þar sem 11 leikmenn
hefja leik og aðeins er heimilt að
skipta þremur leikmönnum inn á í
leiknum. Það má hins vegar lítið sem
ekkert út af bregða í undirbúningi
liðsins fram að leik.
„Undirbúningur hefur bara gengið
vel og þær fjórtán sem eru til staðar
eru allar leikfærar. Við værum vissu-
lega í vondum málum ef við yrðum
fyrir skakkaföllum. Það hefur hins
vegar ekki gerst þannig að við
mætum til þessa leiks af fullum
krafti. Við gerum okkur fulla grein
fyrir því að þetta verður mjög erfitt,
en við erum fyrst og fremst mjög
spenntar fyrir því að mæta einu
sterkasta liði heims. Þetta verður
mjög lærdómsríkt fyrir leikmanna-
hópinn og það væri geggjað að ná
að slá þær út,“ segir Sandra María
Jessen, fyrirliði Þórs/KA, í samtali við
Fréttablaðið umkomandi verkefni.
„Við höfum aðallega verið að fara
yfir varnarfærslurnar hérna úti og
ætlum að hafa það alveg á hreinu.
Það má búast við því að þær verði
mun meira með boltann eins og í
leiknum á Akureyri, en við náðum
að komast í fín færi þar eftir skyndi-
sóknir og stefnan er að gera slíkt
hið sama í þessum leik. Við förum
inn í þennan leik eins og alla aðra
með það að markmiði að vinna,“
segir hún enn fremur um stöðu mála
hjá liðinu og nálgun liðsins að þeirri
miklu áskorun sem það tekst á við.
Wolfsburg sem fór alla leið í úrslit
keppninnar á síðustu leiktíð, þar
sem liðið laut í lægra haldi fyrir Lyon,
kemur að öllum líkindum fullt sjálfs-
trausts inn í þennan leik. Þýska liðið
vann 5-0 stórsigur á Essen í síðasta
leik sínum, en það var annar deildar-
leikur liðsins á yfirstandandi leiktíð
og spilaði Sara Björk Gunnarsdóttir,
fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins
í knattspyrnu, allan tíman í þeim
leik.
Wolfsburg hefur haft betur í
fyrstu fjórum leikjum sínum í öllum
keppnum á þessari leiktíð, en liðið
hefur aukinheldur ekki fengið á sig
mark í þessum leikjum og skorað
20 mörk á andstæðinga sína. Það er
því ljóst að verkefni Þórs/KA er ærið
og það verður erfitt að snúa taflinu
við. Lið hafa hins vegar margoft sýnt
fram á það að Davíð geti lagt Golíat
að velli í fótboltanum. En ef allt er
eðlilegt mun Sara Björk vera með far-
seðil í 16 liða úrslitin í farteskinu um
sexleytið að íslenskum tíma.
hjorvaro@frettabladid.is
Wolfsburg ekki enn fengið á sig mark
Sara Björk Gunnarsdóttir, leikmaður Wolfsburg, einbeitt í fyrri leiknum gegn Þór/KA á Akureyri. Liðin mætast að nýju í Wolfsburg í dag. FréttABLAðið/Auðunn
Þór/KA ræðst á ansi
háan garð þegar liðið
mætir þýska stórliðinu
Wolfsburg í seinni leik
liðanna í 32 liða úr-
slitum Meistaradeildar
Evrópu í Þýskalandi
síðdegis í dag. Wolfs-
burg hefur leikið fjóra
leiki í öllum keppnum
á leiktíðinni án þess að
fá á sig mark. Það verður
því við ramman reip að
draga hjá norðankonum.
Við gerum okkur
fulla grein fyrir því
að þetta verður mjög erfitt,
en við erum fyrst og fremst
mjög spenntar fyrir því að
mæta einu sterkasta liði
heims.
Sandra María Jessen
Fótbo lti Landsliðskonurnar
Fanndís Friðriksdóttir og Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir eru á leiðinni
í afar spennandi verkefni en þær
eru búnar að samþykkja að ganga
til liðs við Adelaide United í ástr-
ölsku kvennadeildinni á láni fyrir
komandi tímabil.
Tæpur mánuður er í að deildin
hefjist í Ástralíu og lýkur deildar-
keppninni í febrúar. Verða þær því
báðar komnar aftur til liða sinna,
Vals og Utah Royals, áður en tíma-
bilin hefjast.
Kemur þetta því í staðinn fyrir
langt undirbúningstímabil, eitt-
hvað sem þekkist í bandarísku
NWSL-deildinni sem Gunnhildur
leikur í. Styðja liðin þar við bakið
á leikmönnum sem kjósa að leika
í Ástralíu yfir vetrartímann þegar
bandaríska deildin er ekki í gangi.
„Það eru fimm mánuðir á milli
tímabila í Bandaríkjunum og ég var
alltaf með það í hausnum að fara til
Ástralíu eins og margar í deildinni
kjósa að gera. Ég ræddi það við
þjálfarann þegar ég skrifaði undir og
hann studdi þá ákvörðun en ég vildi
ekki taka neina ákvörðun fyrr en
það væri allt komið á hreint hvort
það væru leikir með landsliðinu á
þessum tíma. Ég hefði ekki farið ef
þetta hefði komið í veg fyrir lands-
liðsverkefni,“ segir Gunnhildur.
Gunnhildur fékk tilboð frá nokkr-
um liðum í Ástralíu.
„Auðvitað er þetta að einhverju
leyti ævintýraþrá og það hefði verið
erfitt að segja nei við þessu tækifæri.
Þetta er sterk deild og í staðinn fyrir
undirbúningstímabil fæ ég að æfa
og spila leiki í sterkri deild.“
Hún verður ekki eini Íslendingur-
inn í liðinu og það líst henni vel á.
„Það er mikill kostur að hafa
Fanndísi, við vorum saman í liði í
Noregi en náðum aldrei leik saman
því ég var meidd. Ég var mjög
ánægð að heyra að hún væri tilbúin
að stökkva á þetta tækifæri. Liðið
vantaði framherja og ég stakk upp
á Fanndísi og þeir vissu hver hún er
og voru strax spenntir,“ segir Gunn-
hildur og heldur áfram:
„Ég á ekki von á fleiri Íslending-
um, það hefði verið flott að fá fleiri
en það er búið að semja við fjóra
erlenda leikmenn sem er hámark-
ið,“ segir hún létt í lund aðspurð
hvort von sé á fleiri Íslendingum í
liðið. – kpt
Var alltaf með augastað á Ástralíu
Í staðinn fyrir
undirbúningstíma-
bil fæ ég að æfa og spila í
sterkri deild í fimm mánuði.
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m i Ð V i K U D A G U r12 s p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð
sport
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-3
D
3
8
2
0
E
A
-3
B
F
C
2
0
E
A
-3
A
C
0
2
0
E
A
-3
9
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K