Fréttablaðið - 26.09.2018, Side 14
E inar Bárðarson athafnaskáld fagnar um þessar mundir 20 ára höfundarafmæli en í apríl voru 20 ár frá því lagið „Farin“ með hljómsveitinni Skítamóral kom út. Það var
fyrsta lagið sem Einar samdi og gefið
var út og vinsældir lagsins urðu slíkar
að það varð aldrei aftur snúið. Lögin
urðu nokkur í kjölfarið en það var svo
ekki fyrr en lagið Birta eftir Einar vann
forkeppni Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva að Einar varð „heims-
þekktur“ á Íslandi en í framhaldi af því
upphófst mikil og dramatísk deila við
Útvarpsráð um það á hvaða máli yrði
sungið í keppninni erlendis.
Um og upp úr síðustu aldamótum
var Einar Bárðarson fyrirferðarmikill
laga- og textahöfundur. Hann samdi
mörg af vinsælustu lögum Skítamórals,
Á móti sól og Nylon flokksins. Þá samdi
hann vinsæl lög fyrir flytjendur á borð
við Stjórnina, Björgvin Halldórsson,
Jóhönnu Guðrúnu, Ingó og Veðurguð-
ina, Hvanndalsbræður, Garðar Thór
Cortes, og fleiri.
Í ár fagnar Einar Bárðarson 20 ára höf-
undarafmæli en núna í júní eru 20 ár frá
því að lagið Farin með Skítamóral kom
út, fyrst laga hans. Farin náði 1. sæti
íslenska vinsældalistans í sama mánuði
og sat þar í þrjár vikur. Svo komu lögin
eitt af öðru sem heimsóttu þann ágæta
lista; Birta, Spenntur, Myndir, Ennþá,
Ég sé þig og fleiri og fleiri. Einar hefur þó
nokkuð fágæta stöðu í hópi dægurlaga-
höfunda á Íslandi þar sem hann er einn
örfárra höfunda á Íslandi sem aldrei hefur
flokkast sem flytjandi enda hefur hann
aldrei gefið út efni undir eigin nafni eða
komið fram sem slíkur.
Einar stendur í fleiri stórræðum því
hann stendur í miðjum stormi með konu
sinni gegn Orkuveitunni. Þar hefur hann
verið ötull talsmaður konu sinnar og
staðið sem klettur henni við hlið.
Í tilefni áfangans er verið að vinna
hljómplötu með vinsælustu lögum
Einars þar sem hann mun taka þátt í
flutningnum. Þá verða útgáfutónleikar í
tengslum við útgáfu plötunnar sem fara
fram í nóvember en þar mun Einar koma
fram ásamt völdu tónlistarfólki og nokkr-
um valinkunnum söngvurum sem bæði
hafa unnið með Einari áður og öðrum
sem aldrei hafa tekist á við efni höfundar
áður. Á tónleikunum mun Einar fara yfir
sögurnar á bak við sín vinsælustu lög og
flytja þau með sínu nefi ásamt vinum og
félögum. benediktboas@frettabladid.is
Sækir orku í gamla slagara
Tuttugu ár eru frá því lagið „Farin“ fór í fyrsta sæti. Einar Bárðarson athafnaskáld ætlar að
fagna því á 20 ára höfundartónleikum í Bæjarbíói með sögustund og sing-along. Í miðri
skipulagningu stendur kappinn svo í stórræðum við að styðja við bakið á konu sinni.
Á tónleikunum mun Einar Bárðarson fara yfir sögurnar á bak við sín vinsælustu lög. Myndir/Arnold Björnsson
5. janúar 1996; hin vinsæla hljómsveit skítamórall með tónleika á Gauki á stöng.
1580 Francis Drake lýkur hnattsiglingu sinni þegar Gullna
hindin kemur til hafnar í Plymouth.
1915 Við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík er afhjúpaður
minnisvarði um Kristján 9. konung á afmælisdegi Kristjáns
10. Styttan, sem er eftir Einar Jónsson, sýnir konung með
stjórnarskrána í framréttri hendi.
1939 Við Raufarhöfn neyðist bresk Catalina-sjóflugvél til að
lenda vegna þoku.
1942 Ríkið leggur niður einkasölu sína á bifreiðum, sem
það hefur haft í sjö ár.
1950 Vegna mengunar í lofti er dimmt fram eftir degi á
landinu og virðist sólin vera bláleit. Talið er að þetta stafi
frá eldgosi á Filippseyjum eða af skógareldum í Norður-
Ameríku.
1960 Á leið sinni vestur um haf kemur Harold Macmillan,
forsætisráðherra Breta, við á Keflavíkurflugvelli og ræðir við
starfsbróður sinn, Ólaf Thors, um landhelgismálið.
1969 Ellefta breiðskífa Bítlanna, Abbey Road, kemur út í
London.
1970 Íslensk flugvél ferst á Mykinesi í Færeyjum. Þetta
var Fokker Friendship farþegavél frá Flugfélagi Íslands og
voru 30 farþegar um borð auk fjögurra manna áhafnar. Átta
manns fórust, þar af einn Íslendingur.
2006 Á bilinu 10-15 þúsund manns ganga mótmælagöngu
niður Laugaveg til að mótmæla stóriðjustefnu ríkisstjórnar-
innar. Þetta eru talin vera fjölmennustu mótmæli á Íslandi
frá 24. maí 1973.
2008 Gengisvísitala íslensku krónunnar fer upp í 183,91
stig og hefur þá aldrei verið hærri. Krónan hafði aldrei verið
lægri gagnvart evrunni (1/140,96) og ekki lægri gagnvart
Bandaríkjadal síðan árið 2002 (1/96,80).
Tímamót
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristrún Ellertsdóttir
Eyjabakka 14, Reykjavík,
lést á kvenlækningadeild
Landspítalans laugardaginn
22. september. Útför hennar verður frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 2. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Kolbrún Þorsteinsdóttir Matthías Loftsson
Þorsteinn R. Kjartansson
Lilja Björg Kjartansdóttir Erlendur Ingi Jónsson
og langömmubörn.
Ástkæri maðurinn minn,
pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Árni Guðmundsson
Lyngprýði 2, Garðabæ,
lést á krabbameinsdeild LSH að
kvöldi fimmtudagsins 20. september
umkringdur ástvinum sínum.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn
3. október kl. 13.00. Sérstakar þakkir færum við öllu því
frábæra starfsfólki sem annaðist hann af alúð.
Sigríður Huld Konráðsdóttir
Guðmundur Örn Árnason Elísabet Mary Arnaldsdóttir
Erla María Árnadóttir Róbert Karl Hlöðversson
Íris Björk Árnadóttir Kristján Jón Jónatansson
Unnur Svanborg Árnadóttir
Sigríður Hulda Árnadóttir Sveinbjörn Claessen
Árni Konráð Árnason Birgitta Björt Garðarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
dóttir og systir,
Jóhanna Rós F. Hjaltalín
Stekkjartúni 28, Akureyri,
lést sunnudaginn 23. september
á heimili sínu. Útför hennar fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn
28. september kl. 13.30.
Dagur Magnússon
Fannar Magnússon Helga Margrét Ólafsdóttir
Friðgeir V. Hjaltalín Salbjörg S. Nóadóttir
Eydís F. Hjaltalín
Jófríður Friðgeirsdóttir Steinar Þór Alfreðsson
og fjölskylda.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, mömmu, tengdamömmu,
ömmu og langömmu,
Lucindu Gígju Möller
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki og
íbúum Skógarhlíðar á Akureyri fyrir alla alúð og hlýju í
hennar garð. Guð blessi ykkur öll.
Halldór Hallgrímsson
Helga Halldórsdóttir
Halla Halldórsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
Svövu Sjafnar
Kristjánsdóttur
Ásvegi 1, Hvanneyri.
Pétur Jónsson
Ómar Pétursson Íris Björg Sigmarsdóttir
Kristján Ingi Pétursson Anna Sigríður Hauksdóttir
Kristín Pétursdóttir Øyvind Kulseng
og barnabörn.
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-2
9
7
8
2
0
E
A
-2
8
3
C
2
0
E
A
-2
7
0
0
2
0
E
A
-2
5
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K