Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 30
Íslenskir starfsmenn alþjóð-legra endurskoðunarfyrirtækja taka reglulega þátt í fjöl- breyttum verkefnum erlendis og þá gjarnan í samvinnu við systurstofur sínar í Evrópu. Einn þeirra starfsmanna er Lára Óskarsdóttir, sérfræðingur á sviði endurskoðunar og reiknings- skila hjá De loitte á Íslandi. Hún tók þátt, ásamt öðrum íslenskum starfsmönnum, í verkefni sem var unnið í samvinnu við Deloitte í Danmörku á bilinu apríl 2017 til janúar 2018. Hún segir verkefnið og reynsluna hafa verið mjög skemmtilega og lærdómsríka. „Þetta byrjaði allt saman þegar Sunna Dóra Einarsdóttir, fjár- málastjóri hjá Deloitte á Íslandi, hafði samband við mig í mars 2017 til að kanna áhuga minn á að taka þátt í verkefni á vegum Deloitte í Danmörku. Ég vinn við endurskoðun og reikningshald á Íslandi en þetta verkefni var á á sviði Viðskiptalausna Deloitte. Við hjá Deloitte á Íslandi höfum unnið mikið með Deloitte skrif- stofum á hinum Norðurlöndun- um en þetta er í fyrsta skipti sem ég hef tekið þátt í slíku samstarfi. Mér finnst sjálfri mjög nytsam- legt að við höfum möguleikann á því að nýta sérhæfða þekkingu frá samstarfsfólki annars staðar í heiminum.“ Vann mest frá Íslandi Lára vann stærstan hluta tíma- bilsins heima á Íslandi en fór þó þrisvar sinnum til Kaupmanna- hafnar í nokkra daga í senn. „Því var vinna mín frábrugðin því hvernig svipuð verkefni fara fram en danskir samstarfsmenn sem unnu fyrir sama viðskiptavin unnu mest á skrifstofu viðskipta- vinarins í Kaupmannahöfn.“ Þau skipti sem hún heimsótti Kaupmannahöfn vann hún hjá viðskiptavini og fundaði með eigendum verkefnisins og öðrum starfsmönnum sem voru bæði frá Deloitte í Kaupmannahöfn og Malmö í Svíþjóð. „Í þessu verkefni vann ég að viðskiptamanna- og lánardrottnabókhaldi viðskipta- vinar okkar og vann einnig að ferlavinnu tengdri þeim liðum. Nýtt fjárhagskerfi var tekið í notkun á meðan á verkefninu stóð og fékk ég að taka þátt í innleiðingunni á því. Ég var í fullu starfi í verkefninu og var í daglegum samskiptum við starfs- menn viðskiptavinarins í gegnum Skype og önnur samskiptaforrit. Þar sem ég vann ekki á skrif- stofunni sjálfri var tíminn vel nýttur í vinnu og fundi þegar ég fór til Kaupmannahafnar. Skemmtileg borg Þótt Lára hafi bara stoppað nokkra daga í senn meðan hún dvaldi þrisvar sinnum í Kaup- mannahöfn á þessu tímabili var sá tími mjög lærdómsríkur. „Mér fannst lítið mál að aðlagast vinnu- menningunni en hún var alls ekki ólík því sem maður kynnist á Íslandi. Helsti munurinn sem ég upplifði var meira skipulag og tíð- ari fundir en ég er vön á Íslandi. Ég er ekki nógu sterk í dönskunni en var heppin að enska var mikið töluð á skrifstofunni sem ég vann á. Það var helst erfitt að lifa úr ferðatösku á hóteli í þeim ferðum sem ég fór til Kaupmannahafnar. Ég var mest í Kaupmannahöfn um vorið og haustið og fannst æðislegt að geta labbað í vinnuna í góðu veðri og rölt aðeins um bæinn eftir vinnu. Mér var boðið að starfa í Kaupmannahöfn á meðan á verkefninu stóð en ég var nýbyrjuð í mastersnámi í reikningshaldi og endurskoðun þannig að það hentaði ekki á þeim tíma. Ef mér býðst tækifæri í framtíðinni gæti ég alveg hugsað mér að dvelja erlendis í nokkra mánuði.“ Skemmtileg reynsla Hún segir tímann fara í reynslu- bankann. „Þetta var skemmtileg reynsla sem þróaði mig í starfi og stækkaði tengslanetið mitt víða, einnig á Íslandi þar sem ég fékk tækifæri til að vinna með fjármálastjóranum heima sem var helsti tengiliður minn við eiganda verkefnisins. Það er ákveðin þróun að hoppa svona út í djúpu laugina og vinna með nýju fólki sem vinnur öðruvísi en ég er vön. Ég bætti enskukunnáttuna og lærði margt nýtt um viðskiptalausnir og tækni sem ég var óvön að nota frá samstarfsfólki í Deloitte í Dan- mörku.“ Hoppað út í djúpu laugina Lára Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Deloitte á Íslandi, vann í tíu mánaði að spennandi verkefni með dönskum kollegum sínum hjá Deloitte í Kaupmannahöfn í Danmörku. Hún segir verkefn- ið hafa verið skemmtilega reynslu sem þróaði hana í starfi og stækkaði tengslanetið töluvert. Höfuðstöðvar Deloitte í Kaup- mannahöfn eru sérlega glæsi- legar. Lára Óskarsdóttir, sérfræðingur á sviði endurskoðunar og reikningsskila hjá Deloitte á Íslandi, lærði mikið á þessu tíu mánaðar tímabili. mynD/DeLoitte Þetta var mjög skemmtileg reynsla sem þróaði mig í starfi og stækkaði tengslanetið mitt töluvert. 6 KynninGARBLAÐ 2 6 . S e p t e m B e R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RenDuRSKoÐun oG BÓKHALD 2 6 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 E A -3 8 4 8 2 0 E A -3 7 0 C 2 0 E A -3 5 D 0 2 0 E A -3 4 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.