Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 34
Nemendur við Hönnunar- og nýsköpunarbraut Tækni-skólans sækja átta verk-
stæðisáfanga í námi sínu og er
áfanginn Rafmagn einn þeirra.
Þar fá þeir m.a. kennslu í lýsingu,
lampagerð og rafhönnun og er
afrakstur áfangans afskaplega
litfögur og fjölbreytt flóra ljósa og
lampa sem vekja jafnan nokkra
athygli að sögn Tómasar Jónsson-
ar, kennara í Raftækniskólanum
sem er einn átta skóla Tækni-
skólans. „Það hefur tekist nokkuð
vel að efla og styrkja sköpunar-
hæfileika nemenda. Þeir fá hug-
myndir og koma stundum sjálfir
með eigin hráefni í lampana, t.d.
plast, gler, textíl og margt fleira.
Þetta er síðan litað til þess að fá
fram skemmtileg og fjölbreytt
áhrif af lýsingunni. Við reynum
einnig að endurnýta sem mest,
þar má nefna plastumbúðir, bæði
litaðar og ólitaðar, gler, málma,
afskrifaðan tölvubúnað, afklippur
og afganga af rafmagnsvírum og
margt fleira sem nýtist til þess að
skapa framsækin lýsingarlista-
verk.“
Ýmsar áherslur
Hann segir áherslurnar í rafmagns-
áfanganum vera þrenns konar. „Í
fyrsta lagi að kynna nemendum
grunneiginleika rafmagns, ein-
faldar tengingar, kló, perustæði
og fjöltengi, ásamt notkun helstu
verkfæra. Í öðru lagi að kynna
mismunandi lýsingarmöguleika
hinna ýmsu ljósgjafa, hitamyndun
og varúðarráðstafanir í þröngum
líkönum. Hér hefur LED-lýsing
komið mjög sterkt inn, byltingar-
kennd nýjung sem býður upp á ótal
möguleika. Í þriðja lagi er það hug-
myndavinna, hönnun og sköpun
fullbúins ljósgjafa eða líkans.“
Framsækin lýsingarlistaverk
Eins og sjá má á sýnishornum af verkefnum nemenda eru ljósin og lamparnir litfögur og falleg. MYNDIR/ÞóRDís Zoëga
Tómas Jónsson er kennari við Raftækniskólann sem er einn af átta skólum Tækniskólans. MYND/aNToN BRINK
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Í einum áfanga sem nemendur við
Hönnunar- og nýsköpunarbraut
Tækniskólans sækja fá þeir kennslu í
lýsingu, lampagerð og rafhönnun. Af-
rakstur áfangans er afskaplega litfög-
ur og fjölbreytt flóra ljósa og lampa.
Mikilvæg kynning
Auk rafmagnsáfangans sækja
nemendur áfanga í silfursmíði,
fatasaumi, trésmíði, prenti, tækni-
teikningu og ljósmyndun og graf-
ískri miðlun. „Hver áfangi stendur
yfir í fimm vikur og þeir dreifast
yfir tveggja ára tímabil. Þeim er
ætlað að kynna nemendum fag-
lega vinnu sem kennd er innan
Tækniskólans enda mikilvægt að
nemendur sem eru á hönnunar- og
nýsköpunarbraut kynnist af eigin
raun hvernig unnið er í faginu.“
Hönnunar- og nýsköpunarbraut
Tækniskólans er sex anna braut
til stúdentsprófs og líka tveggja
anna nám sem kallast Fornám og
er fyrir þá nemendur sem hyggja
á áframhaldandi háskólanám í
skapandi greinum.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
SMART FÖT,
FYRIR SMART KONUR
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
FLOTT FÖT,
FYRIR FLOTTAR KONUR
6 KYNNINgaRBLaÐ FóLK 2 6 . s E p T E M B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
A
-5
F
C
8
2
0
E
A
-5
E
8
C
2
0
E
A
-5
D
5
0
2
0
E
A
-5
C
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K