Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 37
Jón Björnsson segir að það hafi verið mikilvægt í umskiptum á rekstri Festar að þátttakendur voru meðvitaðir um að breytingar taka tíma. Þær gerast ekki á hálfu ári eða einu ári. Þetta var tveggja, þriggja ára verkefni.“ FréttaBlaðið/Ernir
breytt í Krónubúðir. Við skildum
eina Nóatúnsbúð eftir af þeirri
ástæðu að Nóatún er sterkt og þekkt
vörumerki sem hefur verið lengi á
Íslandi. Mér þótti ekki rétt að fjar-
lægja vörumerkið af markaðnum
heldur var ákveðið að vernda það
með þessum hætti.
Við færðum rekstur Kjarvals,
sem rak verslanir á landsbyggðinni,
undir Krónuna og breyttum vöru-
merkinu í Kr., sem er skammstöfun
á Krónunni, enda eru þær verslanir
í raun Krónan aðlöguð að minna
markaðssvæði.
Í þriðja lagi vorum við meðvituð
um að breytingar taka tíma. Þær
gerast ekki á hálfu ári eða einu ári.
Þetta var tveggja, þriggja ára verk-
efni. Það er teiknuð sýn og sagt að
þangað ætlum við að fara. Því næst
þarf að átta sig á hver kjarninn í
fyrirtækinu er; hvar styrkleikar og
veikleikar liggja og ráða starfsfólk
sem passar vel inn í teymið.
Í fjórða lagi hefur skipt sköpum
að við fjárfestum ríkulega í inn-
viðum eins og verslunum, tækjum,
tölvukerfum og húsnæði. Um það
hefur ríkt einhugur á meðal hlut-
hafa og stjórnar. Það hefur gefið
fyrirtækinu vind í seglin.“
Fjárfest fyrir 700-800
milljónir á ári
Hve mikið var fjárfest í Festi?
„Það voru 700-800 milljónir
króna á ári fyrir utan beinar fjár-
festingar í fasteignum. Allt til að
styrkja undirstöður fyrirtækisins.
Um er að ræða hátt hlutfall af hagn-
aði eða um helming hvers árs. Fyrir-
tækið greiddi ekki arð fyrr en árið
2017 og það var vegna sölu á stærstu
byggingu fyrirtækisins.“
Til hve langs tíma er fjárfesting
hluthafa Festar hugsuð?
„Við höfðum ekki teiknað upp
hvernig best væri að selja eign-
ina við kaupin. Best heppnuðu
umbreytingarverkefnin eru oft
yfirtekin af keppinaut fyrirtækj-
anna því þeir sjá tækifæri á að
styrkja sinn rekstur. Að sjálfsögðu
kom til greina að skrá fyrirtækið á
hlutabréfamarkað. En það er ekk-
ert annað fyrirtæki á markaði sem
er samanburðarhæft sem flækir
málin.“
Væru Hagar ekki samanburðar-
fyrirtæki?
„Nei. Festi á langstærstan hluta
af því húsnæði sem það nýtir og er
raunar eitt stærsta fasteignafélag
landsins. Mun hærra hlutfall af
veltu Festar má rekja til sérvöru en
hjá Högum eða 25 prósent í okkar
tilviki. Rekstur fyrirtækisins er því
annars eðlis.“
Halda ekki óhollustu
að viðskiptavinum
Hvert er samkeppnisforskot Krón-
unnar?
„Við höfum lagt áherslu á fersk-
vöru, heilbrigðan lífsstíl og sam-
félagslega ábyrgð án þess að gleyma
að lágt vöruverð er forsenda þess að
við fáum að keppa á markaðnum.
Danskur kunningi minn skrifaði
eitt sinn á samfélagsmiðla að stór-
markaður hefði statt og stöðugt
reynt að ota að honum óhollustu.
Það vakti mig til umhugsunar. Við-
skiptavinir ráða hvað þeir kaupa
en það þarf ekki endilega að halda
óhollustu að þeim við hvert fót-
mál.“
Hvernig þróaðist markaðshlut-
deildin á meðan þú varst við stjórn-
völinn?
„Krónan var í sókn öll þau ár. Það
er reyndar erfitt að mæla markaðs-
hlutdeild á Íslandi því það eru ekki
til almennilegar tölur um það. En
við teljum okkur hafa vaxið hraðar
en aðrir.“
Hvað er það mikill vöxtur?
„Dagvörumarkaðurinn er ekki
vaxtarmarkaður. Fyrstu árin voru
tekjurnar flatar vegna þess að það
var verðhjöðnun í matvöru. Vísi-
tölur á dagvörumarkaði leiða í ljós
að verð hefur lækkað. Eftir breytta
samsetningu ferðamanna hefur
veltan aukist undanfarin tvö ár. Við
fundum lítið fyrir ferðamennsku á
árunum 2014 og 2015. Ég veit ekki
hvers vegna það var. Mögulega
fóru þeir einkum á veitingastaði á
þeim tíma. Mögulega hefur vöxtur
í Airbnb og aukin notkun bílaleigu-
bíla haft sitt að segja.“
Hörð samkeppni við veitingahús
Hve háu hlutfalli af veltu eru ferða-
menn að skila?
„Hlutfallið er ekki hátt. Við reikn-
um með að það sé um tvö til þrjú
prósent. En það er ágætis viðbót á
þroskuðum markaði. Það verður
jafnframt að hafa í huga að mat-
vöruverslanir keppa ekki eingöngu
sín á milli heldur er einnig mikil
samkeppni við veitingahús. Það er
alþjóðleg þróun að fólk fer meira
út að borða en áður. Árið 2016
veltu veitingahúsin 90 milljörðum
króna en dagvörumarkaðurinn 140
milljörðum króna. Markaðshlut-
deild veitingahúsa var því 40 pró-
sent. Fyrir 20 árum var hlutdeild
þeirra um 25 prósent. Þetta hefur
haft mikil áhrif á rekstur matvöru-
verslana.“
Við skildum
eina Nóatúns-
búð eftir af þeirri
ástæðu að Nóatún er
sterkt og þekkt vöru-
merki sem hefur verið
lengi á Íslandi.
Situr í stjórnum þriggja umsvifamikilla
fyrirtækja á Norðurlöndum
Jón situr í stjórnum þriggja fyrir-
tækja sem staðsett eru á hinum
Norðurlöndunum og tveimur
á Íslandi. „Ég er hluthafi í Joe &
the Juice á Íslandi með Bigga vini
mínum, Birgi Þór Bieltvedt, og sit
í stjórn þess,“ segir hann. Jón tók
nýverið sæti stjórnarformanns
Krónunnar eftir að hann sagði
starfi sínu lausu sem forstjóri
Festar.
„Ég hef setið í stjórn Boozt.com
frá árinu 2012. Það er nú stærsti
skandinavíski smásali með tísku-
fatnað á netinu og veltir nálægt 40
milljörðum króna. Ég hef starfað
með félaginu frá því það velti
einum milljarði króna. Fyrirtækið
var í fyrra skráð á hlutabréfamark-
að í Svíþjóð en selur alþjóðlega,“
segir hann. Forstjóri Boozt.com er
Íslendingurinn Hermann Haralds-
son sem ólst upp í Danmörku.
„Ég sit jafnframt í stjórn IC
Group, móðurfélags fjögurra
tískuvörumerkja, þar á meðal
sænska herrafatamerkisins Tiger
of Sweden.
Enn fremur sit ég í stjórn
sænska fyrirtækisins Åhléns sem
rekur 65 deildarskiptar verslanir í
Svíþjóð. Það er yfir 100 ára gamalt
fyrirtæki og framleiðir mikið af
eigin vörum.
Ég var einfaldlega fenginn til
að sitja í þessum stjórnum vegna
þekkingar minnar á smásölu-
rekstri í Skandinavíu. Ég var í sjö ár
forstjóri umsvifamikils smásala,
Magasin du Nord. Ég flýg alltaf
einu sinni í mánuði út til að sinna
stjórnarstörfunum. Nú eftir að ég
hætti sem forstjóri Festar hefur
skapast meiri tími til að sinna
þeim störfum betur eins og mig
hefur lengi langað.“
Freistar að reka eigið fyrirtæki?
„Já. Mjög. Sérstaklega ef það
gæti starfað í alþjóðlegu um-
hverfi.“
Ertu með hugmyndir á teikni-
borðinu?
„Já, ég er alltaf með einhverjar
hugmyndir.“
Hvort er líklegra að þú takir við
öðrum forstjórastóli eða farir í eigin
rekstur?
„Þetta er erfið spurning. Það
sem mestu skiptir er að vinna
að einhverju áhugaverðu, hvort
ég á meira í minna fyrirtæki eða
minna í stærra fyrirtæki, skiptir
ekki sköpum. Almennt séð þykja
mér umbreytingaverkefnin mest
spennandi. Þau geta bæði kallað
á uppbyggingu eða endurhugsun
á hlutverki og stefnu. Hluthafarnir
verða einnig að styðja dyggilega
við verkefnið og stjórnin þarf að
vera traust, vel skipuð og taka
virkan þátt í vegferðinni. Séu
þessir þættir fyrir hendi er hægt
að skapa stöðugleika til að ráðast
í umbreytingu. Ef hluthafar hafa
ólíka sýn og stjórnin vinnur ekki
sem teymi er líklegt að það skapist
ekki andrými fyrir breytingar til
langs tíma.
Álagning á matvöru jafn há eða lægri en í Evrópu
Jón segir að álagning á matvöru
á Íslandi sé jafn há eða lægri en í
öðrum löndum í Vestur-Evrópu. „Ég
rýni í ársreikninga vesturevrópskra
matvörufyrirtækja því mér þykir
það gaman. Þar má sjá að þeirra
álagning, launahlutföll og arðsemi
er álíka og hjá okkur. Verðmunurinn
í matvöruverslunum á Íslandi og
erlendis liggur í innkaupsverðinu. Í
flestum tilvikum er innkaupsverðið
sem erlendir birgjar bjóða okkur
hærra en annars staðar. Það helgast
af því að þeir þurfa jú jafn mikinn
mannskap til að þjónusta Ísland
og önnur lönd. Ef íslensk fyrirtæki
keyptu í jafn miklu magni og er-
lendis væri vöruúrvalið af skornum
skammti. Það væri einungis ein
hvít skyrta á boðstólum og ein blá.
Munurinn á stærð markaðanna er
það mikill.
Flutningar hafa alla jafna ekki
mikil áhrif á verðlag; yfirleitt um
5-15 prósent. Það fer eftir eðli
vörunnar, ef hún er lítil og verðhá
hefur flutningur lítil áhrif á verðið
en ef hún er stór í sniðum, eins og
klósettpappír eða ísskápur, hefur
hann vissulega töluvert að segja.“
„Við gerum
okkar plön með
bankanum“
360° samtal fyrirtækja er
tækifæri til að fara yfir reksturinn og
framtíðaráætlanir hjá þínu fyrirtæki.
Að auki færðu yfirsýn yfir öflugar og
sérsniðnar lausnir Landsbankans fyrir
fyrirtæki af öllum stærðum. Kynntu þér
360° samtal hjá fyrirtækjaþjónustu
Landsbankans.
markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . s e p t e M b e R 2 0 1 8 NN
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-4
C
0
8
2
0
E
A
-4
A
C
C
2
0
E
A
-4
9
9
0
2
0
E
A
-4
8
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K