Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 47
Leikhús
svartlyng
HHH H
Tjarnarbíó
Leikhópurinn Gral
Höfundur: Guðmundur
Brynjólfsson
Leikstjóri og hljóðmynd: Bergur
Þór Ingólfsson
Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnars
son, Sólveig Guðmundsdóttir,
Benedikt Karl Gröndal, Þór Tulinius,
Valgerður Rúnarsdóttir og Ragn
heiður Eyja Ólafsdóttir
Leikmynd, búningar og gervi:
Eva Vala Guðjónsdóttir
Ljósahönnun: Magnús Arnar Sig
urðsson og Hafliði Emil Barðason
Sviðshreyfingar: Valgerður Rúnars
dóttir
Ættartengslin sem yfirgnæfa
íslenskt samfélag. Einstaklingar sem
virðast vera með puttana í öllum
kökum. Skúffufyrirtæki sem rekin
eru af fjölskyldumeðlimum ráða
manna. Dularfull gögn sem hverfa í
skjóli nætur. Afsökunarbeiðnir sem
hljóma eins og ávítur. Hljómar eitt
hvað af þessu kunnuglega? Ef ekki
þá býður Leikhópurinn Gral upp
á hressilega upprifjun á íslenskum
raunveruleika í Tjarnarbíói þar sem
leikverkið Svartlyng var frumsýnt
síðastliðinn föstudag.
Fyrir rúmu ári riðaði þáver
andi ríkisstjórn til falls. Ástæðan
var trúnaðarbrestur en rótin var
ótrúlegt hugrekki ungra kvenna
andspænis yfirgnæfandi stjórn
sýslukerfinu. Höfundur verksins,
Guðmundur Brynjólfsson, tæklar
fólkið í fílabeinsturninum með
súrrealismann að vopni. Margt gott
er að finna í verkinu sem blandar
saman sápuóperu, súrum húmor
og hádrama. Textinn hittir stundum
beint í mark en er óþarflega langur,
persónur þróast takmarkað og
hlutverk sögumannsins hefði mátt
úthugsa betur.
Um leikmynd, búninga og gervi
sér Eva Vala Guðjónsdóttir sem
gætir þess að leikritið fái að njóta
sín með því að einfalda umgjörðina,
einungis fimm stóla og tvo plexí
glerkassa má finna á sviðinu. Rýmið
er síðan fyllt af klósettrúllum sem
þjóna bæði sem leikmunir af ýmsu
tagi og myndlíking fyrir drullu
svaðið sem stjórnmálafólk veður.
Sveinn Ólafur Gunnarsson leikur
ráðherra ónefnds stjórnmálaflokks,
sem allir áhorfendur ættu að geta
nefnt með nafni. Sýninguna byrjar
hann vel þegar kómíkin er allsráð
andi en dalar þegar dramað tekur
yfir eftir hlé. Síðustu árin hefur Sól
veig Guðmundsdóttir verið að sækja
í sig veðrið á sviðinu. Með sanni er
hægt að segja nú að hún sé ein besta
leikkona starfandi á íslensku sviði
um þessar mundir. Hún er óttalaus,
bráðfyndin og einlæg í sinni nálgun
á hlutverki skrifstofustjórans sem
hefur afneitunina að atvinnu.
Skrifstofublókina og millistjórn
anda innan flokksins sem enginn
man hvað heitir leikur Benedikt
Karl Gröndal. Örvæntingarfullar
tilraunir hans til að ganga í augun
á ráðherranum gerir hann vel og
líkamsbeitingin er smellin. Allt
of langt er síðan Þór Tulinius sást
á sviði og hefur hans verið sárt
saknað. Hann hefur engu gleymt
en fær því miður of lítið að gera sem
undirmálsmaðurinn sem flokkur
inn ræður til að þvo glugga í nafni
gagnsæis. Valgerður Rúnarsdóttir
fer með hlutverk blaðakonu en fær
líka fátt að gera. Þó á hún heiðurinn,
í samvinnu við Sólveigu, af einu
fyndnasta dansatriði sem dúkkað
hefur upp á sviðinu í langan tíma.
Að lokum er nauðsynlegt að nefna
hina ungu Ragnheiði Eyju Ólafs
dóttur sem fer með smátt hlutverk
en kannski það mikilvægasta í sýn
ingunni sem hún leysir á afskaplega
áhrifamikinn hátt.
Líkt og handritið spilar Bergur
Þór fram mörgum hugmyndum í
sýningunni, kannski of mörgum.
Svo virðist sem allar hugmyndir
sem lagðar voru á borðið hafi endað
á sviðinu. Grunnurinn er súrrealísk
kómík brotinn upp með nístandi
ádeilu. Húmorinn er allsráðandi
bróðurpartinn af sýningunni sem
hittir stundum í mark en hefði þolað
agaðri nálgun. Dramatískari augna
blik eru römmuð inn þannig að
áhrifin fjölfaldast. Sýningin er upp
á sitt besta þegar Bergur Þór leggur
hjartað á sviðið. Höggið út í sal er
nánast líkamlegt þegar ráðherrann
les upp úr bókinni dularfullu.
Svartlyng er einstaklega gott
dæmi um hversu mikilvæg sjálf
stæða senan er í leiklistarflórunni.
Sýningin er kannski köflótt að
gæðum en mikilvægt og skjótt við
bragð við þeim súrrealíska sýndar
leik sem íslensk pólitík er orðin.
Sigríður Jónsdóttir
NiðursTaða: Bútasaumur af bráð
skemmtilegum senum og skerandi
ádeilu sem skortir agaðri nálgun.
Gagnsæi og gegndarlaus spilling
„Svartlyng er einstaklega gott dæmi um hversu mikilvæg sjálfstæða senan er í leiklistarflórunni,“ segir í dómnum.
Rými Ofnasmiðjan | Urðarhvarfi 4 | 203 Kópavogi | s. 511 1100 | www.rymi.is | rymi@rymi.is
Rafmagnsstaflarar
Lyftigeta: 1000 kg
Lyftihæð: 2,4 m og 3 m
Verð: 589.000 kr. m/vsk
Rafmagnstjakkar
Lyftigeta: 1500 kg
Verð: 282.897 kr. m/vsk
Brettatjakkar
Lyftigeta: 2500 kg
Verð: 43.179 kr. m/vsk
Hillur
í bílskúrinn,
geymsluna
og lagerinn
Lyftarar og léttitæki
ára
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðN N N r a a 19m i ð V i k u D a g u r 2 6 . s e p T e m B e r 2 0 1 8
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-5
0
F
8
2
0
E
A
-4
F
B
C
2
0
E
A
-4
E
8
0
2
0
E
A
-4
D
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K