Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 3 8 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8
Stöndum með stelpunum!
Tökum sameiginlega ábyrgð á þátttöku kvenna í
skimun með kaupum á Bleiku slaufunni
Að ríkisstjórnarfundi loknum settist sjávarútvegsráðherra niður með forsætisráðherra til að fara yfir mál tengd fiskeldi. Ljóst er að leyfi og rekstur fiskeldisfyrirtækja er hitamál og skiptar
skoðanir eru til að mynda innan VG um hvernig skuli ganga fram í málinu. Umhverfisráðherra VG hefur áður lýst því yfir að hann vilji fara með mikilli gát í laxeldi. Fréttablaðið/Ernir
alÞingi Kristján Þór Júlíusson sjáv-
arútvegsráðherra mun í dag leggja
fram frumvarp til breytingar á lögum
um fiskeldi til að tryggja að fyrirtæki
í laxeldi á Vestfjörðum, Fjarðalax og
Arctic Fish, geti haldið áfram starf-
semi þrátt fyrir úrskurði og aftur-
köllun starfsleyfa fyrirtækjanna.
Í frumvarpi Kristjáns Þórs kemur
fram að ráðherra sé heimilt, að
undangenginni umsögn Matvæla-
stofnunar, að veita fyrirtækjum í
laxeldi bráðabirgðaleyfi til allt að
tíu mánaða.
„Frumvarpinu er ætlað að lagfæra
með almennum hætti annmarka á
lögum um fiskeldi til framtíðar. Sá
annmarki birtist í því að samkvæmt
gildandi lögum er eina úrræði Mat-
vælastofnunar í þeim tilvikum sem
rekstrarleyfi fiskeldisstöðvar er fellt
úr gildi að stöðva starfsemi hennar.
Þannig hafa stjórnvöld engin úrræði
til að koma í veg fyrir mögulega óaft-
urkræfa og óþarfa sóun verðmæta né
heldur gæta meðalhófs,“ segir í til-
kynningu frá sjávar útvegsráðherra.
Drög að frumvarpinu voru samþykkt
á aukafundi ríkisstjórnarinnar í
hádeginu í gær og kynnt hinum
stjórnmálaflokkunum síðdegis í gær.
Því er fyrirtækjunum, Arctic Fish
og Fjarðalaxi, gefinn frestur til að
fara yfir umhverfismat fyrirtækjanna
til að tryggja að umsókn þeirra um
aukið laxeldi á sunnanverðum Vest-
fjörðum verði samkvæmt lögum og
reglum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
voru fulltrúar Arctic Fish kallaðir
á fund viðskiptabanka síns þegar
rekstrarleyfi þeirra var afturkallað
og gerð grein fyrir að afturköllun á
leyfinu gæti þýtt riftun á lánasamn-
ingum við félagið. Fréttir síðustu
daga um inngrip stjórnvalda hafi
róað bankann. Hins vegar hafi litlu
mátt muna um tíma. – sa / sjá síðu 4
Fyrirtækin fái tíu mánaða fresti
Frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um fiskeldi lagt fram í dag. Með því getur ráðherra
veitt fyrirtækjum bráðabirgðaleyfi. Arctic Fish fundaði með banka sínum þegar starfsleyfið var afturkallað.
bandarÍkin Fellibylurinn Michael
stefnir á Flórída. Spár gera ráð fyrir
því að hann gangi á land sem annars
stigs fellibylur á morgun. Neyðar-
ástandi lýst yfir. „Þessi stormur
ógnar lífi okkar og verður gífurlega
hættulegur,“ segir ríkisstjórinn Rick
Scott. Kosningar eru fram undan
í Flórída; um annað sæti ríkisins í
öldungadeild þingsins og um ríkis-
stjóra þann 6. nóvem-
ber svo fátt eitt sé
nefnt. Vegna storms-
ins hafa frambjóð-
endur flestir aflýst
fyrirhuguðum kosn-
ingafundum sínum.
þea / sjá síðu 8
Neyðarástandi
lýst yfir í Flórída
Stjórnin samþykkti drög að frum-
varpi sjávarútvegsráðherra í gær.
rick Scott er
ríkisstjóri í Flórída.
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
5
-B
B
A
0
2
1
0
5
-B
A
6
4
2
1
0
5
-B
9
2
8
2
1
0
5
-B
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K