Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 39
 Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2 21° Tilfinning BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19Þ R i ð J U D A g U R 9 . o k T ó B e R 2 0 1 8 TónLisT söngtónleikar HHHHH Verk eftir Jón Ásgeirsson. Flytj- endur: Valdís gregory, Agnes Thorsteins, Þorsteinn F. sigurðs- son, Ágúst ólafsson og guðríður st. sigurðardóttir. Salurinn í Kópavogi sunnudaginn 7. október Mínar fyrstu minningar af Jóni Ásgeirssyni tónskáldi eru úr Tón- listarskólanum í Reykjavík. Hann kenndi hljómfræði og ég var í tímum hjá honum. Flygill var í kennslu- stofunni og Jón spilaði tóndæmin á hann. Ásláttur hans var óvanalega þungur, svo mjög að gárungar töl- uðu um að hinn endinn á flyglinum lyftist alltaf upp þegar hann spilaði. Kannski lá honum bara svona mikið á hjarta. Nú þegar hann fagn- ar níræðisafmæli er tónlist hans í hávegum höfð. Á tónleikum í Saln- um í Kópavogi á sunnudaginn var birtur þverskurður af söngverkum hans, sem oftar en ekki hafa slegið í gegn hjá þjóðinni. Hver þekkir ekki Maístjörnuna, Hjá lygnri móðu eða Vísur Vatnsenda-Rósu? Jón hefur samið músík síðan hann var barn að aldri og bara einsöngslögin hans eru um 90 talsins. Að meðaltali er það eitt lag á ári síðan hann fæddist! Á tónleikunum í Salnum komu fram fjórir söngvarar. Þetta voru þau Valdís Gregory sópran, Agnes Thorsteins mezzósópran, Þor- steinn F. Sigurðsson tenór og Ágúst Ólafsson baríton. Þau sungu fyrst a capella, þ.e. án undirspils, Vorvísu við ljóð Halldórs Laxness. Heildar- hljómurinn var tær og bjartur, nákvæmur og agaður, túlkunin gædd viðeigandi ferskleika og lífi. Í næsta lagi steig píanóleikari kvöldsins fram, sem var Guðríður St. Sigurðardóttir. Hún spilaði í flestum atriðum dagskrárinnar eftir það. Leikur hennar var ávallt réttur og fagmannlegur, allar nótur voru á sínum stað og hún fylgdi söngvur- unum af kostgæfni. Valdís söng prýðilega. Hún hefur skæra og fallega rödd, söngur henn- ar var ætíð tilfinningaþrunginn og sannfærandi. Agnes stóð sig líka vel, þótt stundum hafi skort nákvæmni í aríu Steinunnar í óperunni Galdra- Lofti. Hún hefur kröftuga rödd og glæsilega og söngur hennar hljóm- aði í langflestum tilvikum ágætlega. Karlmennirnir voru sömuleiðis flottir. Eitt magnaðasta atriði tón- leikanna var dúettinn Ertu reiðu- búinn úr Galdra-Lofti. Tónlistin var áleitin, þróttmikill söngurinn var hnitmiðaður og dásamlegur; útkoman var í fremstu röð. Jón hefur ekki bara samið ein- söngslög, hann á að baki fjórar óper- ur og sú fimmta er á teikniborðinu. Þrymskviða eftir hann var frumflutt 1974 og var fyrsta íslenska óperan í fullri lengd. Gaman var að heyra glefsur úr þremur óperum hans á tónleikunum. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð neina af þessum óperum í heildarflutningi, en aríur og kórar úr þeim hafa oft heyrst á tónleikum. Einkennismerki þeirra allra eru grípandi laglínur. Þegar tónskáld samtímans voru að eltast við ýmiss konar stefnur sem féllu lítt í kramið hjá almenningi fór Jón sínar eigin leiðir og hélt sig við melódíuna. Kannski uppskar hann fyrir vikið ákveðna útskúfun hjá kollegum sínum og ekki hjálpaði að hann var öflugur tónlistargagnrýnandi, sem skapar mönnum sjaldnast vinsældir. En hvar er tískutónlist gærdagsins nú? Hún er í mörgum tilvikum gleymd og aðeins til í sögubókum. Ólíkt henni held ég að tónlist Jóns muni lifa á tónleikum um ókomna tíð. Sunnudagskvöldið í Salnum þar sem tónleikagestir stóðu á fætur til að votta Jóni virðingu sína eru um það sterk vísbending. Jónas Sen niðURsTAðA: Vandaðir tónleikar með dásamlegri tónlist. Óslökkvandi sköpunarkraftur Jóns Ásgeirssonar Jón Ásgeirsson. Meistarinn er orðinn níræður. Fréttablaðið/anton brinK 0 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 0 5 -C F 6 0 2 1 0 5 -C E 2 4 2 1 0 5 -C C E 8 2 1 0 5 -C B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.