Fréttablaðið - 09.10.2018, Síða 39
Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn
með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari
-8°
-6°
-7°
0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2
21° Tilfinning
BÍLASMIÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16
SÍMI: 567-2330
www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19Þ R i ð J U D A g U R 9 . o k T ó B e R 2 0 1 8
TónLisT
söngtónleikar
HHHHH
Verk eftir Jón Ásgeirsson. Flytj-
endur: Valdís gregory, Agnes
Thorsteins, Þorsteinn F. sigurðs-
son, Ágúst ólafsson og guðríður
st. sigurðardóttir.
Salurinn í Kópavogi
sunnudaginn 7. október
Mínar fyrstu minningar af Jóni
Ásgeirssyni tónskáldi eru úr Tón-
listarskólanum í Reykjavík. Hann
kenndi hljómfræði og ég var í tímum
hjá honum. Flygill var í kennslu-
stofunni og Jón spilaði tóndæmin
á hann. Ásláttur hans var óvanalega
þungur, svo mjög að gárungar töl-
uðu um að hinn endinn á flyglinum
lyftist alltaf upp þegar hann spilaði.
Kannski lá honum bara svona
mikið á hjarta. Nú þegar hann fagn-
ar níræðisafmæli er tónlist hans í
hávegum höfð. Á tónleikum í Saln-
um í Kópavogi á sunnudaginn var
birtur þverskurður af söngverkum
hans, sem oftar en ekki hafa slegið í
gegn hjá þjóðinni. Hver þekkir ekki
Maístjörnuna, Hjá lygnri móðu eða
Vísur Vatnsenda-Rósu? Jón hefur
samið músík síðan hann var barn
að aldri og bara einsöngslögin hans
eru um 90 talsins. Að meðaltali er
það eitt lag á ári síðan hann fæddist!
Á tónleikunum í Salnum komu
fram fjórir söngvarar. Þetta voru
þau Valdís Gregory sópran, Agnes
Thorsteins mezzósópran, Þor-
steinn F. Sigurðsson tenór og Ágúst
Ólafsson baríton. Þau sungu fyrst a
capella, þ.e. án undirspils, Vorvísu
við ljóð Halldórs Laxness. Heildar-
hljómurinn var tær og bjartur,
nákvæmur og agaður, túlkunin
gædd viðeigandi ferskleika og lífi.
Í næsta lagi steig píanóleikari
kvöldsins fram, sem var Guðríður
St. Sigurðardóttir. Hún spilaði í
flestum atriðum dagskrárinnar eftir
það. Leikur hennar var ávallt réttur
og fagmannlegur, allar nótur voru á
sínum stað og hún fylgdi söngvur-
unum af kostgæfni.
Valdís söng prýðilega. Hún hefur
skæra og fallega rödd, söngur henn-
ar var ætíð tilfinningaþrunginn og
sannfærandi. Agnes stóð sig líka vel,
þótt stundum hafi skort nákvæmni
í aríu Steinunnar í óperunni Galdra-
Lofti. Hún hefur kröftuga rödd og
glæsilega og söngur hennar hljóm-
aði í langflestum tilvikum ágætlega.
Karlmennirnir voru sömuleiðis
flottir. Eitt magnaðasta atriði tón-
leikanna var dúettinn Ertu reiðu-
búinn úr Galdra-Lofti. Tónlistin
var áleitin, þróttmikill söngurinn
var hnitmiðaður og dásamlegur;
útkoman var í fremstu röð.
Jón hefur ekki bara samið ein-
söngslög, hann á að baki fjórar óper-
ur og sú fimmta er á teikniborðinu.
Þrymskviða eftir hann var frumflutt
1974 og var fyrsta íslenska óperan í
fullri lengd. Gaman var að heyra
glefsur úr þremur óperum hans á
tónleikunum. Ég verð að viðurkenna
að ég hef ekki séð neina af þessum
óperum í heildarflutningi, en aríur
og kórar úr þeim hafa oft heyrst á
tónleikum.
Einkennismerki þeirra allra eru
grípandi laglínur. Þegar tónskáld
samtímans voru að eltast við ýmiss
konar stefnur sem féllu lítt í kramið
hjá almenningi fór Jón sínar eigin
leiðir og hélt sig við melódíuna.
Kannski uppskar hann fyrir vikið
ákveðna útskúfun hjá kollegum
sínum og ekki hjálpaði að hann var
öflugur tónlistargagnrýnandi, sem
skapar mönnum sjaldnast vinsældir.
En hvar er tískutónlist gærdagsins
nú? Hún er í mörgum tilvikum
gleymd og aðeins til í sögubókum.
Ólíkt henni held ég að tónlist Jóns
muni lifa á tónleikum um ókomna
tíð. Sunnudagskvöldið í Salnum þar
sem tónleikagestir stóðu á fætur til
að votta Jóni virðingu sína eru um
það sterk vísbending. Jónas Sen
niðURsTAðA: Vandaðir tónleikar
með dásamlegri tónlist.
Óslökkvandi sköpunarkraftur Jóns Ásgeirssonar
Jón Ásgeirsson. Meistarinn er orðinn níræður. Fréttablaðið/anton brinK
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
5
-C
F
6
0
2
1
0
5
-C
E
2
4
2
1
0
5
-C
C
E
8
2
1
0
5
-C
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K