Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Stutta sagan er svona: við hittumst öll í gegnum internetið. Langa sagan er hins vegar sú að þetta voru einhver átta ár lík-lega, af fólki sem sótti tón-
listarspjallborð, var vafið saman af
YouTube-algóritmum og tengdist í
gegnum Facebook. Í byrjun ársins
2016 var stór hluti okkar búsettur
í London þar sem við ákváðum að
henda í verkefni saman – það var þá
sem við gerðum lagið Something for
your M.I.N.D. Í því ferli hittum við
söngkonuna okkar, Orono Noguchi.
Við höfðum líka samband við Soul
sem þá bjó í Ástralíu og fengum
hann til liðs við okkur. Þarna vorum
við í raun bara að fíflast, við bjugg-
um í þremur mismunandi heims-
álfum og fannst ekkert endilega
að það yrði að koma eitthvað út úr
þessu. Orono fékk demóið og sendi
til baka texta hálftíma síðar og við
hugsuðum bara „Þetta er sjúkt! Við
verðum að koma þessu út!“ – lagið
fékk mikla athygli og við áttuðum
okkur á að þetta væri ekki „verkefni“
heldur hljómsveit.“
Þar með fæddist hljómsveitin
Superorganism sem er skipuð
þeim Orono Noguchi, Harry, Emily,
Tucan, Robert Strange, Ruby, B
og Soul. Þetta eru hressir krakkar
sem, eins og Ruby segir hér að ofan,
hittust öll í gegnum internetið á
einn eða annan hátt. Hluti þeirra
var í hljómsveitinni The Eversons
og fundu Orono á SoundCloud –
þau hittust síðar og segjast hafa
tengst í gegnum ást sína á inter-
net-„memes.“ Fyrsta lagið þeirra,
Something for your M.I.N.D., var
notað í tölvuleiknum FIFA 2018 og
Superorganism fékk plötusamning
og fór að ferðast um heiminn.
Allir meðlimir hljómsveitarinnar
búa saman í London – nema Soul
býr reyndar einn í íbúð sem er þó að
sögn Ruby í grenndinni og að hann
hoppi oft yfir í tesopa.
„Við erum í raun ekkert að vinna
neitt öðruvísi áður en við fluttum
öll inn saman. Við höfum alltaf
unnið í gegnum netið – við leigjum
aldrei stúdíó þar sem við hittumst
og spilum saman. Yfirleitt er þetta
þannig að ein manneskja fær grunn-
hugmyndina sem er svo rædd, tekin
upp og send á milli. Kannski skellir
einhver „sampli“ í lagið og Orono
semur mögulega texta og málar
málverk, síðan fáum við B það og
setjum bakgrunnsraddir og Robert
fær það svo á endanum og hugsar
upp myndheim fyrir tónlistarvídeó
og tónleika. Þannig að það hefur
ekki breyst neitt þó að við búum
öll saman – við vinnum „sóló“ inni í
herbergjunum okkar. Það eina sem
hefur breyst er að það er enginn
tímamunur á milli okkar.“
Ef skoðað er á Wikipedia hvert
hlutverk hvers meðlims hljóm-
sveitarinnar er sést glögglega hvað-
an nafn sveitarinnar kemur – hver
meðlimur hefur nokkur hlutverk
auk þess sem Robert Strange er
sjónlistamaður sem sér um allt sem
tengist lúkki myndbanda og fleira,
Orono er söngkonan en líka málari
sveitarinnar og svo eru B, Ruby og
Soul öll bakraddir og dansarar.
Ruby segir tónlist sveitarinnar
vera eins konar elektróníska popp-
tónlist – en tekur það fram að það
sé einungis orð sem hún hafi heyrt
aðra nota yfir sveitina. Hún sjálf sé
alls ekki viss um hvaða orð skuli
nota enda komi hver og einn með-
limur með sín sérstöku áhrif inn í
allt starf sveitarinnar.
„Við erum öll algjörlega hug-
fangin af hinum og þessum tón-
listarstefnum héðan og þaðan – en
það sem við eigum sameiginlegt
er að við elskum öll popptónlist.
Tónlistin er allavega elektrónísk
og kannski smá … sérviskuleg? Það
er allavega það sem ég heyri aðra
segja,“ segir Ruby hlæjandi.
Enginn meðlimur sveitarinnar
segist hafa komið til Íslands áður
og auðvitað eru allir gríðarlega
spenntir fyrir því. Ruby er sérstak-
lega spennt að vita hvar er hægt að
fá „chips“ og hefst þá smá misskiln-
ingur milli blaðamanns og hennar
um merkingu orðsins (blaðamaður
heldur að um frönskur sé að ræða
en það eru víst kartöfluflögur). En
þrátt fyrir það allt saman lofar Ruby
miklu fjöri á Airwaves.
„Við leggjum mikla vinnu í tón-
leikana okkar og það sem við
vonum að fólkið fái út úr því sé
algjörlega alltumlykandi upplifun.
Ég vona að fólk geti yfirgefið tón-
leikana brosandi vegna þess að það
hafi getað dansað smá, grátið smá,
hlegið og verið togað inn í sjón-
rænan heim okkar. Við erum að fara
með ykkur í rússíbana, baby, komið
með!“ stefanthor@frettabladid.is
Nútímaleg ofurlífvera
pumpar út poppi
Superorganism nefnist fjörug poppsveit sem spilar á komandi
Airwaves-hátíð. Sveitin er skipuð nokkrum krökkum sem eins og
nafnið gefur til kynna mynda saman ofurlífveru sem pumpar út list.
Allar litlu lífverurnar sem mynda ofurlífveruna hittust í gegnum netið, eins og gengur og gerist í dag.
TóNlisTiN er alla -
vega elekTr óNísk
og kaNNski smá … sérvisku-
leg? Það er allavega Það
sem ég heyri aðra segja.
Ruby
Vinsælir viðburðir
framundan
Miðakaup á www.midi.is
Jóhanna Guðrún og
Eyþór Ingi
Háskólabíó 23. og 25. nóv.
Jólin til þín
Um land allt 12. des - 22. des.
Jón Jónsson - Þessir árlegu
Háskólabíó 21. des.
Ilmur af Jólum -
Í borg og bæ
Um land allt 30. nóv - 21. des.
9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D A G U r26 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
5
-C
F
6
0
2
1
0
5
-C
E
2
4
2
1
0
5
-C
C
E
8
2
1
0
5
-C
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K