Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 12
KA - Grótta 21-22
KA: Dagur Gautason 5, Sigþór Gunnar
Jónsson 4, Allan Norðberg 4, Áki Egilsnes 4,
Sigþór Árni Heimisson 2.
Grótta: Bjartur Guðmundsson 4, Sveinn
Jose Rivera 4, Jóhann Reynir Gunnlaugsson
4, Alexander Jón Másson 3, Magnús Öder
Einarsson 3.
Efri
Valur 7
FH 7
Afturelding 5
Selfoss 5
Haukar 5
KA 4
Neðri
Grótta 3
ÍBV 3
Fram 3
Akureyri 2
ÍR 2
Stjarnan 0
Nýjast
Olís-deild karla
Framkvæmdir hafnar í Kópavogi
Breyttir tímar Hafist var handa við að grafa upp hluta Kópavogsvallar í gær í aðdraganda þess að framkvæmdir eru að hefjast við að leggja gervi-
gras á völlinn fyrir næsta tímabil. Bæði Breiðablik og Víkingur Reykjavík stefna á að vera komin á gervigras á næsta ári sem þýðir að sex lið í
Pepsi-deild karla og fimm lið í Pepsi-deild kvenna, eða annað hvert lið í efstu deild, munu leika á gervigrasi á næsta tímabili. FréttAblAðið/StEFáN
Golf Axel Bóasson, atvinnukylf-
ingur úr GK, mun í dag hefja leik á
fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evr-
ópumótaröðina á næsta ári. Kylf-
ingar þurfa að komast í gegnum þrjú
stig til að komast inn á Evrópumóta-
röðina. Haraldur Franklín Magnús,
GR, hefur þegar tryggt sér þátttöku-
rétt á öðru stigi og mun Birgir Leifur
Hafþórsson, GKG, einnig taka þátt
á öðru stigi.
Er þetta í fimmta sinn sem Axel
reynir við úrtökumótið fyrir Evr-
ópumótaröðina sem er næst sterk-
asta mótaröð heims. Keppti hann í
Áskorendamótaröðinni, næststerk-
ustu mótaröð Evrópu, á nýafstöðnu
tímabili en náði aldrei flugi þar. – kpt
Axel hefur leik í
Portúgal í dag
Axel slær með járni á EM atvinnu-
kylfinga í sumar. NOrdicphOtOS/GEtty
frjálsar íþróttir Spjótkastarinn
Ásdís Hjálmsdóttir fékk loksins
svör við bakmeiðslunum sem hafa
verið að plaga hana undanfarna
mánuði. Neðst í mjóbakinu er
sprunga vegna álags og hefur hún
því æft og keppt að undanförnu
með brot í bakinu.
„Ég fór nýlega í skoðun þar sem
kom í ljós að ég hef fengið álags-
brot í bakið, líklegast síðasta sumar.
Þetta er í þeim hluta hryggjarins að
ég finn aðeins fyrir þessu þegar ég
kasta spjótinu en ekki við styrkt-
aræfingar,“ sagði Ásdís og hélt
áfram:
„Verkurinn hvarf eftir tímabilið í
fyrra þegar ég hætti að kasta og tók
sig upp á ný í vor en ég reyndi að
halda honum niðri í ár með sjúkra-
þjálfun. Hvenær nákvæmlega þetta
álagsbrot tók sig upp þori ég ekki
að segja en þetta er gamalt brot,
það sást við skoðunina að þetta er
allavega sex mánaða gamalt. Það er
líklegt að þetta hafi gerst í fyrra og
að það hafi opnast á ný í ár þegar
álagið jókst og fékk ekki að gróa.“
Óvíst er hvenær hún getur kastað
spjóti á ný en hún þarf að fara var-
færnislega í það.
„Það er erfitt að segja með álags-
brot, þau taka oft lengri tíma en
beinbrot að gróa og það fer eftir
álagi á svæðið. Ég fékk sprautu til
að minnka bólguna til að flýta fyrir
endurhæfingunni og þarf ekki að
fara í aðgerð og núna er bara verið
að bíða eftir endurhæfingu. Ég geri
ráð fyrir að fara aftur í sömu skoðun
áður en ég kasta spjóti á ný til að
vera örugg um að beinið sé búið að
gróa. Ég vill ekki taka kastæfingu og
lenda í því að brotið opnist á ný.“
Hún segir það vissan létti að
þetta sé loksins komið á hreint eftir
margra mánaða óvissu.
„Það var mjög góð tilfinning og
mikill léttir að heyra loksins hvað
var að og hvernig hægt væri að tak-
ast á við það. Ég tók þessi meiðsli
ekkert alvarlega í byrjun, hélt að
þetta myndi fara innan skamms
og reyndi að halda þessu niðri. Það
gekk vel að æfa í vetur og ég kast-
aði mjög vel þegar ég hóf það í vor
en þegar þetta tók sig aftur upp þá
lá þetta afar þungt á mér. Ég fann
alltaf fyrir óþægindum og yfirleitt
nístandi sársauka þegar ég kastaði
og það tók á andlega. Ég vissi ekki
hvort ég yrði með tárin í augunum
þegar ég kæmi heim af æfingu,“
segir Ásdís sem sagði að það hefði
komið sá tími að hún óttaðist um
ferilinn.
„Það kom tímapunktur, í sumar
gat ég kastað en fann alltaf fyrir
óþægindum, og maður hugsaði
hvað yrði um ferilinn. Þegar ég
hugsa til baka er það klikkun að
hafa verið að halda áfram með brot
í baki. Við reyndum hvað sem hægt
var en okkur tókst aldrei að finna
út hvað þetta var og það reyndi á,
það var ekki hægt að sjá neina lausn
þegar við þekktum ekki vandamál-
ið. Það hefðu eflaust margir tekið
þessum fregnum illa en ég var bara
fegin.“
Hún rétt missti af úrslitunum
á EM í Berlín þar sem hún lenti í
13. sæti og átti flott köst þrátt fyrir
meiðslin.
„Það er ótrúlegt að hugsa til baka
að hafa náð 13. sæti á EM með
brot í baki en á sama tíma ótrú-
lega svekkjandi. Á fyrstu æfingum
sumarsins var ég að kasta það vel
að ég hefði komist á verðlaunapall
í Berlín. Ég þurfti líka að horfa á
eftir sæti í úrslitunum í lokakast-
inu þegar æfingafélagi minn gerði
út um vonir mínar í annað sinn,
það var ótrúlega svekkjandi,“ sagði
Ásdís. kristinnpall@frettabladid.is
Mikill léttir að fá loksins svör
þótt að það sé brot í bakinu
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir fékk að vita það á dögunum að hún væri með álagsbrot í neðsta hryggj-
arliðnum og hafi verið með það á Evrópumótinu í sumar. Ásdís segist vera fegin að loksins sé búið að greina
vandamálið sem hefur verið að plaga hana undanfarið ár og að hún núna unnið í endurhæfingunni.
ásdís undirbýr hér kast á EM í berlín í sumar þar sem hún kastaði með brot í
baki 58,64 metra en Íslandsmet hennar er 63,43 metrar. NOrdicphOtOS/GEtty
9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 þ r i Ð j U D a G U r12 s p o r t ∙ f r É t t a b l a Ð i Ð
sport
fótbolti Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu skipað leikmönnum
19 ára og yngri tryggði sér í gær
sigur í riðli sínum í undankeppni
EM 2019 með því að vinna öruggan
5-1 sigur á Belgíu í Armeníu.
Ísland var, líkt og Belgía, búið að
tryggja sæti sitt í milliriðlum fyrir
leik dagsins með sigrum á Armeníu
og Wales á síðustu dögum.
Hlín Eiríksdóttir, leikmaður Vals,
skoraði tvö marka íslenska liðsins,
Alexandra Jóhannsdóttir, sem leikur
með Blikum og Keflvíkingurinn
Sveindís Jane Jónsdóttir skoruðu
sitt markið hvor. Leikmaður Belga
varð svo fyrir því óláni að skora
sjálfsmark. Belgum tókst að klóra
í bakkann á 94. mínútu leiksins en
lengra komust þær ekki.
Dregið verður í milliriðlana þann
23. nóvember næstkomandi og fara
leikirnir fram í apríl og júní næst-
komandi. Verða fjögur lið í hverj-
um riðli og kemst aðeins eitt lið úr
hverjum riðli inn í lokakeppnina
sjálfa sem fram fer í Skotlandi á
næsta ári. – hó
Unnu stórsigur
gegn Belgíu
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
5
-B
B
A
0
2
1
0
5
-B
A
6
4
2
1
0
5
-B
9
2
8
2
1
0
5
-B
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K