Fréttablaðið - 09.10.2018, Qupperneq 20
Spurt og svarað
Hvernig er dæmigerð helgi hjá
þér?
Dæmigerð helgi byrjar á
æfingu á föstudags-
kvöldi og síðan aftur
á laugardagsmorgni.
Síðan eyði ég oft
deginum í að lesa
eða hanga með
fjölskyldu og
vinum og reyni að
borða góðan mat.
Hvernig lítur drauma-
helgin út?
Draumahelginni væri eytt í
sumarbústað með góðu fólki og
góðum mat. Enginn sími og ekkert
áreiti.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Það er mjög misjafnt hvað ég borða
í morgunmat en oftast er það
Bláfjallabrauð með smjöri og
osti. Dagurinn klikkar
ekki þegar maður
byrjar á nýbökuðu
Bláfjallabrauði.
Hvað finnst þér gott
að fá þér í kvöld-
mat?
Uppáhaldskvöld-
maturinn er fiskur í
raspi með soðnum
kartöflum og remúlaði.
Hvað finnst þér gott að fá
þér í millimál?
Það eru vínber.
Ertu nammigrís?
Ég er lítill nammigrís en segi ekki
nei ef mér er boðið í Hagkaup á
laugardegi.
Áttu þér uppáhalds
æfingu?
Liðsæfingarnar sem
við höfum eftir leiki
eru uppáhaldsæfing-
arnar mínar. Þá erum
við oft bara að hafa
gaman og í virkri endur-
heimt.
Hver er efnilegasti leikmaður
deildarinnar?
Ég tel að Ásta Júlía Grímsdóttir, liðs-
félagi minn hjá Val, sé efnilegasti
leikmaður deildarinnar í dag.
Áttu þér einhverja uppáhaldsleik-
menn?
Ég á einn uppáhaldsleikmann
erlendis en það er systir
mín, Helena Sverrisdóttir,
sem spilar með Cegled í
ungversku deildinni.
Hvernig kemur þú þér í gírinn
fyrir leik?
Með því að hlusta á góða tón-
list. Smekkurinn er mismunandi
eftir leikdögum en oftast er það
Muse eða Kanye West sem koma
mér af stað.
Hvaða hæfileika hefur þú sem
fæstir vita um?
Ég veit ekki hvort það telst hæfileiki
en ég er klaufi af Guðs náð.
Guðbjörg
Sverris dóttir
í fyrsta leik
vetrarins gegn
Skallagrími.
Leikurinn vannst
og Guðbjörg
skoraði 18 stig.
MYND/EYÞÓR
Ég held að áhugi
innan fjölskyld-
unnar hafi hjálpað mjög
mikið við að halda manni
við efnið. Mamma og
pabbi koma á alla leiki
sem þau geta og er körfu-
bolti oftar en ekki aðal
umræðuefnið á heimil-
inu.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Domino’s-deild kvenna í körfubolta hófst í síðustu viku en silfurliði síðasta árs,
Val, er spáð öðru sæti í ár í árlegri
spá forráðamanna, fyrirliða og
þjálfara deildarinnar. Valskonur
hafa haft æft stíft í sumar og undir-
búið veturinn vel að sögn Guð-
bjargar Sverrisdóttur, fyrirliða og
eins af lykilmönnum liðsins, sem
átti góðan leik í fyrsta sigurleik
tímabilsins gegn Skallagrími og
skoraði 18 stig. „Við vorum mjög
duglegar að æfa í sumar enda
ætlum við okkur stóra hluti í vetur.
Liðið er með mjög flottan styrktar-
þjálfara auk þess sem við höfum
frábæra aðstöðu í Origo höllinni,
heimavelli Valsara, sem gerir okkur
kleift að æfa eins og atvinnumenn.
Fyrir tímabilið setti ég mér per-
sónuleg markmið sem ég held út
af fyrir mig en markmið liðsins í ár
er að enda í einu af í efstu fjórum
sætunum þannig að við náum inn í
úrslitakeppnina.“
Stuðningur að heiman
Guðbjörg kemur úr mikilli körfu-
boltafjölskyldu og var fimm ára
þegar hún hóf að æfa körfubolta,
þá með Haukum en hún ólst
Finnst gott að byrja daginn á
nýbökuðu Bláfjallabrauði
Fyrirliði kvennaliðs Vals í körfubolta, Guðbjörg Sverrisdóttir, kemur vel undirbúin til leiks fyrir
nýhafið tímabil. Hún gírar sig upp fyrir leik með góðri tónlist og segir að fiskur í raspi með soðn-
um kartöflum og remúlaði sé uppáhaldsmaturinn sinn. Liðið stefnir á úrslitakeppnina í vor.
Valur, Skallagrà mur, Valur -
Skallagrà mur, Dominos-deild
kvenna, körfubolti, körfuknatt-
leikur, 2018 XXXX
MYND/EYÞÓR
A basketball with a dark
background on a hardwood
gym floor Körfubolti
upp í Hafnarfirði. „Þá fylgdi ég
pabba mínum á æfingar en hann
þjálfaði flokkinn. Fyrst æfði ég
með stelpum sem voru tveimur
árum eldri en ég en þegar fjölgaði
í árganginum mínum gat ég loks
farið að æfa með jafnöldrum
mínum. Ég æfði einnig fótbolta á
sumrin en um þrettán ára aldurinn
tók ég þá ákvörðun að einbeita
mér alfarið að körfunni.“
Guðbjörg hefur leikið með
yngri landsliðum Íslands og á að
baki sextán leiki með A-landsliði
kvenna. Hún þakkar árangur sinn
m.a. stuðningi heiman frá. „Ég held
að áhugi innan fjölskyldunnar hafi
hjálpað mjög mikið við að halda
manni við efnið. Mamma og pabbi
koma alltaf á leiki þegar þau geta
og er körfubolti oftar en ekki aðal-
umræðuefnið á heimilinu. Einnig
skiptir miklu máli að huga vel að
andlegu hliðinni ef góður árangur
á að nást. Það er erfitt að spila vel
ef manni líður ekki vel.“
Utan körfuboltans er Guðbjörg
nýlega útskrifaður viðskipta-
fræðingur og hóf nýlega störf hjá
Landspítalanum.
Stendur undir nafni
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . o K tÓ B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
5
-E
D
0
0
2
1
0
5
-E
B
C
4
2
1
0
5
-E
A
8
8
2
1
0
5
-E
9
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K