Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 26
Ég tala reglulega
við heilann eins og
minn besta vin.
Alda Karen Hjaltalín
Mig langaði alltaf að búa í New York, alveg síðan ég fór þangað með ömmu
Rósu í stelpuferð yfir helgi þegar ég
var sautján ára,“ segir Alda Karen
sem eftir helgarferðina með ömmu
sinni hengdi upp mynd af Empire
State-byggingunni á vegg í her-
berginu sínu.
„Sem er skondið í ljósi þess að
nú labba ég fram hjá Empire State
á hverjum einasta morgni á leið
í vinnuna,“ segir Alda Karen sem
hafði löngum verið með hugann
við það að flytja vestur um haf og
stökk til í fyrra þegar hún sá tæki-
færi til þess.
„Áður en ég vissi af hafði ég búið
hér í heilt ár. Ég elska alheimssuðu-
pottinn New York; hér er allt af öllu,
og nóg af því. Í borginni býr fólk
frá öllum heimshornum og margir
að gera svo skemmtilega hluti.
Drifkraftur New York-búa er líka
svakalegur og ég er í því að reyna að
halda í við þá. Undiraldan á þessum
stað er engri lík, hér eru allir á
hundrað, öllum stundum og alltaf.“
Besta en eitraðasta borgin
Í erli stórborgaryssins segist Alda
Karen þurfa að minna sig á að vera
sinn allra besti vinur.
„Svo margir hér eru mjög önnum
kafnir og að vinna í öllu og fólk á
það aðeins til að gleyma því að við
erum öll mannleg. Maður þarf því
að vera þess minnugur að skamma
sig sjálfan ekki um of fyrir að vera
ekki alltaf á fullri fart og minna vini
sína á að það er nóg pláss fyrir alla.“
Þegar kemur að geðheilsu telur
Alda Karen New York fara ýmist
mjög vel með hana eða mjög illa.
„New York er að mínu mati
besta borg í heimi en hún er líka
ein sú eitraðasta. Á einum stað
getur maður fengið subbulegasta
hamborgara í veröldinni og hinum
megin við götuna 100 prósent
lífrænan spínat-smoothie með
háklassa engiferskoti. Þetta er bara
spurning um að finna sitt jafnvægi
í borginni og búa til sitt eigið sam-
félag innan hennar.“
Komast í topphugarástand
Í New York starfar Alda Karen sem
ráðgjafi og fyrirlesari.
„Ég tek einstaklinga í persónu-
lega ráðgjöf og/eða lífseflingu,
ásamt því að þjónusta fyrirtæki
við markaðssetningu,“ upplýsir
Alda Karen sem einnig heimsækir
unglinga og ungmenni í samstarfi
við Kevin Williams sem setur upp
vinnusmiðjur sem taka á andlegri
heilsu krakka á aldrinum þrettán til
átján ára.
„Um þessar mundir er ég líka að
komast á fullan skrið með hug-
ræktunarstöðvar í New York. Ég er
afar spennt fyrir þeim og hef unnið
í hugræktunarstöðvum síðan við
settum þá fyrstu upp í apríl í Teach-
able-skrifstofunum á Manhattan,“
segir Alda Karen.
Hugræktunarstöð er andleg
heilsurækt, sérstaklega hönnuð
fyrir hugann.
„Í stað þess að vera með einka-
þjálfara erum við með sálfræðinga
og svokallaða „peppara“ (e. per-
formance enhancement coaches).
Tími hjá þeim er minna eins og
sálfræðitími en meira eins og
pepp tími til að komast í topp-
hugarástand fyrir daginn,“ útskýrir
Alda Karen.
Talar við heilann
Æfingaaðstaða hugræktunarstöðva
samanstendur ekki af lóðum heldur
sýndarveruleikagleraugum og
heyrnartólum.
„Með þeim tækjum setjum
við einstaklinga inn í ákveðnar
aðstæður. Ef manneskja hræðist
til dæmis að tala frammi fyrir fólki
látum við hana spreyta sig á að tala
frammi fyrir tíu þúsund áheyr-
endum, svo fimm þúsund og að
lokum tuttugu manns. Á meðan fær
maður að upplifa bestu mögulegu
viðbrögðin en líka þau verstu og
svo í meðallagi. Með því gerum við
það óþekkta þekkt fyrir heilann,“
útskýrir Alda Karen sem trúir því
að manneskjan sé sjálf sín stærsta
hindrun.
„Þar spilar heilinn stórt hlutverk
en með því að láta hann venjast
aðstæðum getum við hjálpað
honum að vinna með einstakl-
ingnum í stað þess að vinna gegn
honum. Við notum einnig spjald-
tölvur með alls kyns leikjum fyrir
minnið og gerum fleiri æfingar fyrir
heilann,“ segir Alda Karen sem er
líka með hóptíma og vinnusmiðjur.
„Þar tala ég við heilann og um hvað
hægt er að gera dagsdaglega til að
bæta hug okkar og sjá lífið út frá
nýju sjónarhorni.“
Hugarræktunarstöðvar eru hugs-
aðar fyrir alla þá sem vilja þjálfa
hugann.
„Stærsti hópurinn sem sækir til
okkar eru frumkvöðlar sem ætla sér
að ná langt í lífinu, sem og ungt fólk
sem gegnir háttsettum störfum,“
upplýsir Alda Karen sem hefur í
hyggju að stofna hugræktunarstöð
á Íslandi.
„Ég er alltaf með fallega Ísland á
bak við eyrað og með augun opin
fyrir tækifærum til að opna slíka
stöð heima. Í dag er þó hægt að fá
þjónustu okkar inn til fyrirtækja
þar sem við tökum kaffistofuna yfir
í nokkra tíma og breytum henni í
pop-up hugræktunarstöð.“
Tökum okkur of alvarlega
Geðræktarmál hafa lengi verið
Öldu Karen hugleikin.
„Þegar ég var sölu- og markaðs-
stjóri hjá Saga Film var ég iðulega
með ráðgjöf og fyrirlestra um sölu-
og markaðsmál. Þar áttaði ég mig
fljótt á að ég var í raun að spjalla
um líf og hugarfar fólks og áður en
ég vissi af voru geðræktarmál það
eina sem ég talaði um í fyrirlestrum
mínum,“ útskýrir Alda Karen sem
gætir þess að hlúa vel að eigin geð-
heilsu í annasömu lífi sínu í New
York.
„Eins og New York gefur mér
brjálæðislega orku er ekkert sem
jafnast á við fagra Ísland. Ég er svo
heppin að vera með viðskipta-
vini á Íslandi og fæ því að koma í
heimsókn á tveggja mánaða fresti
í nokkra daga í senn. Þá drekk ég í
mig náttúruna áður en ég fer aftur
heim í steypufrumskóginn,“ segir
Alda Karen sem hefur líka ætíð hug-
fast að vera sín eigin besta vinkona.
„Ég tala reglulega við heilann
minn um þær hugsanir og tilfinn-
ingar sem hann setur í huga minn
og gæti þess að tala við hann eins
og minn besta vin. Mér finnst líka
óskaplega gott að skrifa niður hugs-
anir mínar og tilfinningar og sitja
aðeins með þeim; bara leyfa mér að
líða vel með þeim og ímynda mér
að ég sé að horfa á þær eins og bíla
í umferðinni. Við tökum okkur oft
svo alvarlega, bæði hugsanir okkar
og líðan, en stundum er gott að
halla sér aðeins aftur og leyfa bíl-
unum að keyra aðeins um án þess
að reyna að stjórna traffíkinni.“
Alda Karen veit líka að hún er
alveg nóg.
„Það gefur svo ótrúlega góða
frelsistilfinningu að vita að ég sé
nóg og því endurtek ég það oft við
sjálfa mig. Ég þarf ekki að vera neitt
eða gera neitt sérstakt frekar en ég
vil. Ég er nóg. Alveg eins og ég er
akkúrat núna.“
Ég er nóg eins og ég er
Alda Karen Hjaltalín starfar við hugræktunarstöðvar í New York. Þar takast einstaklingar á við huga
sinn og framandi aðstæður í sýndarveruleika. Hún segir borgina góða og slæma fyrir geðheilsuna.
Alda Karen er einkar vinsæll fyrirlesari og troðfyllti Eldborg með LIFE Masterclass-fyrirlestri sínum fyrr á þessu ári. Hún stefnir að opnun hugræktarstöðvar á Íslandi. MYNDIR/ANTONÍA LÁRUSDÓTTIR
Öldu Karen líkar vel í New York.
6 GEðHjÁLp 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
5
-C
A
7
0
2
1
0
5
-C
9
3
4
2
1
0
5
-C
7
F
8
2
1
0
5
-C
6
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K