Fréttablaðið - 09.10.2018, Page 27
Geðhjálp 7
Pólverjar eru langfjölmennasti hópur innflytjenda hérlendis eða um fjórtán þúsund talsins.
Geðhjálp stendur að sjálfshjálpar-
hópi fyrir Pólverja af fyrstu kynslóð
og einstaklingsviðtölum með styrk
úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
Katarzyna Kudrzcka sálfræðingur
leiðir starf hópsins. „Sjálfshjálpar-
hópurinn hóf göngu sína fyrir rúm-
lega ári og hittist tvisvar í mánuði á
fimmtudögum kl. 18.30. Fundirnir
fara fram á pólsku og eru auglýstir
á icelandnews.is/, gedhjalp.is og
á Facebook-síðunum polacy na
islandi og depresja i fibromalgia
na islandi. Við viljum auðvitað ná
til sem flestra landa okkar,“ segir
Katarzyna.
Fyrir hverja er sjálfshjálpar-
hópurinn?
„Hann er hugsaður fyrir fólk sem
þjáist af þunglyndi og/eða kvíða
eða hefur strítt við mikla erfiðleika
eða mótlæti í lífinu. Hann er einnig
hugsaður fyrir þá sem vilja ein-
faldlega hitta annað fólk og tala. Í
hópnum fær fólk stuðning hvert frá
öðru, getur opnað sig og rætt um það
sem því liggur á hjarta hverju sinni.
Oft er hjálplegt að tala við aðra sem
standa í svipuðum sporum og maður
sjálfur,“ segir Katarzyna og bætir við
að eftir formlega fundi sé nokkuð um
að fólk hittist og spjalli saman.
Ekki hentar öllum að vera í hópi
og því stendur fólki einnig til boða
að koma í einstaklingsviðtöl hjá
Katarzynu. „Einstaklingsviðtölin
eru hugsuð fyrir þá sem telja sig
þurfa sérstaka sálfræðiaðstoð eða
eiga erfitt með að tjá sig í hópi,“ segir
hún.
En hvað brennur helst á fólki?
„Það er þunglynt, því líður illa,
er oft mjög einmana og hefur mikla
þörf fyrir að hitta fólk sem skilur það
og hvernig því líður,“ segir Katar-
zyna.
Fylgir því andlegt álag að setjast að
í nýju landi?
„Já, að sjálfsögðu fylgir því oft
mikið álag að flytja til nýs lands. Það
getur tekið mikla orku frá fólki að
læra inn á nýja menningu sem getur
verið frábrugðin þeirri sem það
þekkir frá heimalandinu. Það getur
verið strembið að læra nýjar reglur,
nýtt tungumál og kynnast nýju fólki.
Sumir sem hingað koma eru einnig
neyddir til að segja skilið við fjöl-
skyldur sínar vegna efnahagslegra
ástæðna,“ segir Katarzyna.
Þann 3. nóvember næstkomandi
verður opinn viðburður í sendi-
ráði Póllands á Íslandi og hvetur
Katarzyna pólskumælandi fólk til
að mæta á hann. „Þar verður fjallað
um ýmislegt sem fylgir því að flytja
til nýs lands. Ég mun segja aðeins frá
sjálfshjálparhópnum og út á hvað
hann gengur. Svo ætlar Lukasz Piotr
Filipowicz geðlæknir að fjalla um
andlegt álag samhliða því að flytja til
nýs lands og Joanna Marcinkowska,
sérfræðingur í málefnum innflytj-
enda hjá Reykjavíkurborg, mun m.a.
fjalla um þjónustu sveitarfélagsins
við íbúa. Áður en dagskráin hefst
mun sendiherra Pólverja á Íslandi
flytja stutt ávarp. Við viljum að
málþingið verði frekar óformlegt,
bjóðum upp á veitingar og jafnvel
tónlist. Málþingið fer allt fram á
pólsku og allir eru velkomnir,“ segir
Katarzyna.
Upplýsingar um fundina er hægt að
nálgast á icelandnews.is/, gedhjalp.
is og á Facebook-síðunum polacy
na islandi og depresja i fibromalgia
na islandi. Fundirnir og einstaklings-
hóparnir fara fram á pólsku.
Sjálfshjálparhópur
fyrir pólverja á Íslandi
Katarzyna segir sjálfshjálparhópinn hugsaðan fyrir þá sem þjást af þunglyndi
og/eða kvíða eða hafa strítt við erfiðleika og mótlæti í lífinu. MYND/STeFáN
Katarzyna
Kudrzcka sál-
fræðingur leiðir
sjálfshjálparhóp
og býður upp á
einstaklingsviðtöl
fyrir fólk af fyrstu
kynslóð Pólverja
á Íslandi. Hvort
tveggja fer fram
í húsakynnum
Geðhjálpar í
Borgartúni og er
endurgjaldslaust.
Svipmyndir úr starfi Geðhjálpar
peysupartý Útmeð’a var haldið í listasafni Reykjavíkur. partýið var vel sótt og
þau elín ebba ásmundsdóttir og einar Þór jónsson létu sig ekki vanta.
Útmeð’a peysuverkefni Geðhjálpar og hjálparsíma Rauða krossins fékk tals-
verða athygli í fjölmiðlum. Bætur Viktors Weisshappel vöktu sérstaka athygli.
hrannar jónsson, formaður Geðhjálpar, og Vigdís jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Virk, fyrir málþing Geðhjálpar og Virk, Þegar kona brotnar.
Dainius puras, sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna í geðheil-
brigðismálum hélt áhugavert erindi á málþinginu Vatnaskil.
Ríflega 400 manns sóttu barnageð-
heilbrigðisráðstefnu Geðhjálpar.
Þorsteinn Guðmundsson fundar-
stjóri og Óttarr proppé, þáverandi
heilbrigðisráðherra, í góðum gír á
ráðstefnunni Börnin okkar.
Þ R I ðj U DAG U R 9 . o K tó B e r 2 0 1 8
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
5
-D
9
4
0
2
1
0
5
-D
8
0
4
2
1
0
5
-D
6
C
8
2
1
0
5
-D
5
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K