Fréttablaðið - 09.10.2018, Page 30
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Í þennan fyrsta rétt er notað lambakjöt. Í rauninni er hægt að nota alls kyns parta, hvort
sem kjötið er á beini eða ekki. Bara
úrbeina það og skera í bita. Taco
súpan verður örugglega vinsæl þar
sem flestir eru hrifnir af mexík
óskum mat. Síðan er uppskrift að
mjög hollum og góðum pönnu
kökum ef fólk vill hafa eitthvað létt
í matinn.
Einfaldur lambaréttur
með spínati
2 laukar
6 hvítlauksrif
1 tsk. engifer, þurrt
½ tsk. chili-duft
1 msk. broddkúmen (cumin)
1 msk. kóríander, þurrt
1 kg lambakjöt, skorið niður
1 dós tómatar í bitum
Salt
Olía til steikingar
200 g ferskt spínat
Skerið niður lauk og hvítlauk.
Steikið lauk í olíunni og bætið svo
hvítlauk saman við. Gætið að því
að brenna ekki. Bætið öllu kryddi
á pönnuna og síðan kjötbitunum.
Blandið öllu vel saman. Lækkið
hitann og bætið tómötum saman
við. Notið dósina og hálffyllið hana
af vatni og bætið saman við. Látið
þetta malla í 10 mínútur og bragð
bætið með salti. Þá er spínatið sett
saman við.
Í þennan rétt má bæta við græn
meti eftir smekk, gulrótum,
tómötum eða hverju því sem til er í
ísskápnum.
Berið réttinn fram með hrísgrjón
um og mango chutney.
Taco súpa
Taco réttir eru alltaf vinsælir hjá
öllum í fjölskyldunni. Þetta er góð
og matarmikil súpa sem auðvelt
er að útbúa. Út í súpuna er gott að
setja sýrðan rjóma, guacamole og
tortillanasl, límónusafa og jafnvel
chilisósu eða allt eftir smekk hvers
og eins. Uppskriftin miðast við fjóra
til sex.
400 g nautahakk
1 laukur, smátt skorinn
3 hvítlauksrif, smátt skorin
1 tsk. broddkúmen (cumin)
1 tsk. kóríanderduft
¼ tsk. chili-duft
1 dós tómatar
1 lítri kjúklingasoð
1 dós svartar baunir
1 dós maísbaunir
1-2 msk. tómatmauk
Smávegis ólífuolía til steikingar
Salt og pipar
Byrjið á því að steikja kjöthakkið
upp úr olíu í góðum potti. Setjið
síðan laukinn saman við og steikið
áfram þar til hann verður mjúkur
en þá er hvítlauknum bætt út í.
Bætið kryddum saman við og
bragðbætið með salti og pipar.
Bætið þá tómötum út í ásamt
soðinu og látið suðuna koma upp.
Takið vökvann af baununum og
maísnum og setjið út í súpuna. Þá
er tómatmaukið sett saman við og
súpan látin malla í dálitla stund. Út
í súpuna er gott að setja lárperu
bita, sýrðan rjóma, guacamole og
tortillanasl, límónusafa og jafnvel
chilisósu eða allt eftir smekk hvers
og eins.
Hollar pönnukökur
Stundum vill maður bara hafa eitt
hvað létt og gott í matinn. Hvað með
að hafa skyr og þessar hollu pönnu
kökur sem líta út eins og amerískar,
sem sagt þykkari en íslenskar?
Pönnukökurnar eru bornar fram
með grískri jógúrt og berjum.
7 egg
3 dl hafragrjón
3 dl kotasæla
2 vel þroskaðir bananar
25 g smjör til að steikja upp úr
125 g bláber, jarðarber
eða önnur ber
2 dl grísk jógúrt
Hrærið saman eggjum, haframjöli,
kotasælu og banönum í mat
vinnsluvél þar til blandan verður
jöfn og kekkjalaus.
Setjið smávegis smjör á pönnuna
og bakið eins og amerískar pönnu
kökur.
Berið fram með grískri jógúrt og
berjum eða öðru því sem þið viljið.
Það má alveg vera smjör og ostur ef
einhver vill það frekar.
Hugmyndir að einföldum
og hollum kvöldmat
Bragðmikill lambapottréttur er góður á dimmu haustkvöldi. Hægt er að bæta út í hann grænmeti að vild.
Taco-súpa með lárperum og fleira góðgæti verður örugglega vinsæl.
Pönnukökur má vel borða í kvöld-
mat ef mann langar í eitthvað létt.
Oft kemur það
fyrir að fólk veit
ekkert hvað eigi
að kaupa matinn
hversdags. Hér
eru þrjár hug-
myndir að ein-
földum hvers-
dagsmat sem
hentar öllum.
Maturinn þarf
ekki endilega að
vera flókinn.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5429 / jonivar@ rettabladid.is
FYRIRtÆKJAGJAFIR
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um jólagjafir
fyrirtækja til starfsmanna viðskiptavina
kemur út 12. október.
T yggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
5
-F
1
F
0
2
1
0
5
-F
0
B
4
2
1
0
5
-E
F
7
8
2
1
0
5
-E
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K