Fréttablaðið - 09.10.2018, Page 38
með áleggjunum frá Stjörnugrís
Eini íslenski framleiðandinn sem framleiðir
eingöngu úr íslensku grísakjöti
Þú finnur áleggin frá Stjörnugrís í öllum betri matvöruverslunum um land allt. www.svinvirkar.is
Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði hefur lengi lagt sérstaka áherslu á sýningar fyrir ungmenni. Þar er Björk Jakobsdóttir
í forgrunni en segja má að hún hafi
sérhæft sig í leikstjórn sýninga sem
ætlaðar eru ungmennum. „Þarna
finnst mér skemmtilegast að vera.
Ég virðist ná ágætlega til ungmenna
og í leikhúsflórunni er vöntun á
sýningum fyrir þennan hóp,“ segir
Björk. „Gaflaraleikhúsið er atvinnu
leikhús og það er meðvituð stefna
okkar að vinna með ungmennum.
Við höfum náð að byggja upp góðan
áhorfendahóp og erum að fá í kring
um tíu þúsund unglinga í leikhús á
ári. Aðsóknin er mikil og sömuleiðis
skynjum við mikla eftirvæntingu
þegar líða fer að sýningum. Við
viljum skapa sterkt og vandað ung
mennaleikhús.“
Leikhúsið fékk nýlega styrk frá
Leiklistarráði og Björk segir það
skipta miklu máli. „Ég er mjög mont
in vegna þess að við fengum þennan
styrk sem mér finnst vera viðurkenn
ing á þörfinni fyrir verk sem höfða
til ungmenna. Þetta var líka viður
kenning á að við séum í atvinnu
mennsku, en stundum fær maður
skilaboðin: Já, hún er bara að vinna
með unglingum. Alveg eins og sagt er
við barnabókahöfunda: Hann/hún er
bara að skrifa fyrir börn. Nú fengum
við þennan góða og mikilvæga styrk
og erum þakklát fyrir hann.“
Líka fyrir gamla settið
Næstkomandi sunnudag, 14. októ
ber, frumsýnir Gaflaraleikhúsið leik
ritið Fyrsta skiptið sem samið er af
hópi ungmenna sem fara jafnframt
með hlutverk í sýningunni. Þar er
meðal annars fjallað um fyrsta koss
inn, fyrsta stefnumótið, fyrstu ástar
sorgina og svo framvegis. Höfundar
verksins eru Arnór Björnsson, Berg
lind Alda Ástþórsdóttir, Inga Stein
unn Henningsdóttir, Mikael Emil
Kaaber og Óli Gunnar Gunnarsson,
sem öll eru um tvítugt. Mikael og Óli
Gunnar eru, ásamt Halli Ingólfssyni,
höfundar frumsaminna laga sem
flutt eru í sýningunni.
„Þetta er sýning fyrir alla sem eru
byrjaðir að hugsa um fyrsta skiptið,
áttunda bekk og upp úr,“ segir
Björk sem hvetur foreldra einnig til
að mæta. „Auðvitað vilja ekki allir
unglingar fara með foreldrum sínum
í leikhús en ef þeir treysta sér til að
taka gamla settið með þá er sýningin
ekki síður fyrir þá. Það er líka gott
fyrir þá fullorðnu að fá sýn inn í heim
sem er skrifaður af unglingum.“
Með húmorinn að leiðarljósi
Þegar kemur að íslenskum leik
verkum fyrir ungmenni hefur verið
stefna Gaflaraleikhússins að fá ungt
fólk til að skrifa verkin og leika í
þeim. „Þjóðfélagið breytist svo hratt
og við fullorðna fólkið eigum til að
skrifa með uppeldislegum forvarnar
áherslum af því að við viljum unga
fólkinu svo óskaplega vel. Það er í
hugarfari okkar eldri kynslóða að
heimurinn sé um það bil að farast
með komandi kynslóð. Ef við fjöllum
um kynlíf þá stöldrum við oft við þar
sem eitthvað er að, fjöllum um erfið
efni eins og nauðgun og tölvufíkn og
skilaboðin eru: Passið ykkur krakkar!
Það er annar tónn í verki sem er
samið af ungmennum. Í þessu verki
tókum við meðvitaða ákvörðun um
að fjalla ekki um nauðganir og ekki
sérstaklega um kynhneigð, heldur er
umfjöllunarefnið það að elska,“ segir
Björk.
Björk, sem er leikstjóri sýningar
innar, segist einnig vera eins konar
handritsstýra. „Varðandi þetta hand
rit þá bað ég krakkana að hugsa ekki
um leikritalega uppbyggingu heldur
skrifa allt sem kæmi upp í huga
þeirra. Þessum púslum röðuðum við
síðan saman og þar nýttist reynsla
mín mjög vel.
Í þessu verki viljum við vera með
húmorinn að leiðarljósi, það þarf að
vera gaman. Um leið megum við ekki
svíkja málefnið þannig að við þurf
um að þora. Svo þarf að vera þarna
ákveðin einlægni. Síðan langaði mig
til að setja á svið verk um efni eins
og þetta án þess að vera með nítján
ára börn sem fækkuðu fötum eða
færu í sleik. Persónulega dett ég út
ef það er mikil nekt á sviði. Maður
þarf að spyrja sig hvað maður eigi að
vera djarfur og einlægur án þess að
ganga of langt. Það hefur verið glíma
að finna þennan tón. Ég held að við
höfum fundið hann.“
Sterkt ungmennaleikhús
„Ég virðist ná ágætlega til ungmenna,“ segir Björk en vinur hennar Grímur stillti sér upp með henni. FrÉttaBLaðið/anton Brink
Þetta var líka
viðurkenning á að
við séum í atvinnumennsku,
en stundum fær maður
skilaboðin: Já, hún er bara
að vinna með unglingum.
björk Jakobsdóttir
er leikstjóri sýn-
ingarinnar fyrsta
skiptið. verkið er
samið af ungmenn-
um sem einnig fara
með hlutverkin.
frumsamin lög
flutt í sýningunni.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D A G U r18 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
menning
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
5
-C
0
9
0
2
1
0
5
-B
F
5
4
2
1
0
5
-B
E
1
8
2
1
0
5
-B
C
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K