Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 2
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), hefur ákveðið að sækja ekki um starf for- stjóra SÍ á ný, en Svandís Svavars- dóttir heilbrigð- isráðherra ákvað í vor að starf for- stjóra yrði auglýst laust til umsókn- ar. Steingrímur Ari gerði starfs- mönnum SÍ grein fyrir ákvörðun sinni á fundi í gærmorgun. „Það liggur fyrir hver vilji ráðherrans er. Ég hef haft tvo mánuði til þess að hugleiða mína stöðu og niðurstaðan er að það er þá líka minn vilji að hætta sem for- stjóri Sjúkratrygginga,“ sagði Stein- grímur Ari í samtali við Morgun- blaðið í gær. Steingrímur Ari segir að skip- unartími hans sem forstjóri SÍ renni út í lok október í haust og það sé síðan bara samkomulagsatriði hvort hann hætti fyrr eða ekki. Steingrímur Ari var spurður hvort það hefði komið honum á óvart í vor, þegar ljóst varð að heilbrigðis- ráðherra ákvað að auglýsa starf hans: „Í rauninni skiptir það ekki öllu máli. Það sem skiptir máli er að vilji ráð- herra er augljós. Það liggur fyrir að hann vill skipta um forstjóra. Ég hef kallað eftir ákveðnum svörum og ver- ið í samskiptum við ráðuneytið og í framhaldi þess er það mín niðurstaða að ég vil hætta. Með því að tilkynna þetta núna er ég auðvitað að auðvelda mönnum að sækja um og vil nota tækifærið til þess að hvetja alla góða menn til að sækja um starfið og tryggja að Sjúkratryggingarnar blómstri og dafni,“ sagði Steingrímur Ari. Vilji ráð- herra er augljós Steingrímur Ari Arason  Forstjóri SÍ sækir ekki um starfið á ný Morgunblaðið/Hjörtur SÍ Starf forstjóra verður auglýst. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Veiðigjöld rædd eftir helgi  Útlit fyrir að þingstörf standi lengur en áætlað var  Frumvarp rætt á þriðjudag Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég myndi gera ráð fyrir því að það verði mælt fyrir því í þinginu á þriðjudag,“ segir Birgir Ár- mannsson, formaður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, þegar hann er spurður um stöðu tillögu meirihluta atvinnuveganefndar um breytingu á veiðigjöldum. Deilt hefur verið um málið á Alþingi í vikunni og ekki náðist samstaða um að veita því flýtimeðferð. Því gildir hin almenna fimm daga regla, að þar sem málið var lagt fram á miðvikudegi á að vera hægt að setja það á dagskrá eftir helgi. Þar sem ráðgert er að eldhúsdagsumræður fari fram á mánudag býst Birgir við því að það verði rætt á þriðjudag. Það er semsagt útlit fyrir að það teygist á þingstörfum? „Já, það liggur í loftinu að það verði einhverjir dagar. Það er ekki þannig að þingforseti sé búinn að taka ákvörðun um breytingu á starfsáætlun en það leiðir af eðli máls, þegar töf verður með þessum hætti, að það geti bæst einhverjir dagar við. Það gerist oft að starfsáætlun tekur breytingum á síðustu dögunum. Ég reikna með að Steingrímur [J. Sig- fússon, forseti Alþingis] taki þetta upp í forsætis- nefnd á mánudag.“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, sagði í samtali við mbl.is að tillaga meirihluta nefndarinn- ar um veiðigjöld hefði ekki verið rædd á fundi nefndarinnar í gær. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá er stefnt að því að leggja fram frumvarp að nýjum lögum um veiðigjöld við upphaf þings í haust, en áður- nefndu frumvarpi sem lagt var fram á þingi í vik- unni er ætlað að brúa bilið til áramóta. Að óbreyttu er ekki heimild í gildandi lögum um veiði- gjald til álagningar veiðigjalds á landaðan afla í botnfiskstofnum eftir upphaf næsta fiskveiðiárs, 1. september, en lögin falla úr gildi um næstu ára- mót. Birgir Ármannsson Í Reykjavík mældist úrkoma alla daga í maí og hefur ekki mælst eins mikil úrkoma þar í maí frá upphafi mælinga. Þetta kemur fram í tíðarfarslýsingu maímánaðar á vef Veðurstofu Íslands. Óvenju úrkomusamt var sérstak- lega vestanlands, en nokkur mánaðar- úrkomumet voru sett á nokkrum stöðvum í maí. Alhvítt varð einn dag í Reykjavík og víða sunnan- og vestan- lands í byrjun maí. Einnig varð alhvítt víða vestan- og norðvestanlands síðar í mánuðinum, en autt var á Akureyri allan mánuðinn. Svalt var í veðri í maí um landið suð- vestanvert en hlýtt á Norðaustur- og Austurlandi. Meðalhitinn á Akureyri, 7,4 stig, var mun hærri en meðalhitinn í Reykjavík, 5,7 stig, sem er óvenju- legt, en meðalhitinn í Reykjavík var talsvert undir meðallagi síðustu tíu ára á meðan meðalhitinn á Akureyri var yfir meðallagi. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 5,2 stig og 7,3 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhiti mánaðarins var hæstur 7,8 stig á Egilsstaðaflugvelli. Lægst- ur var meðalhitinn -0,7 stig á Ás- garðsfjalli í Kerlingarfjöllum. Sólskinsstundir í Reykjavík mæld- ust 41 stund undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Vindhraði á landsvísu var um einum metra á sekúndu yfir meðallagi. Sunnanáttir voru ríkjandi í mánuðinum og hvassast var dagana 6. og 20. maí. ernayr@mbl.is Mesti rigningarmánuður í sögu mælinga í Reykjavík  Meðalhiti á Akureyri var yfir meðalhita í Reykjavík í maí Morgunblaðið/Eggert Rigningarbælið Reykjavík Á hlaupahjóli á Ingólfstorgi í bleytu. Hér sést Katrín Jakobsdóttir hrinda af stað átak- inu „Poki fyrir poka“ þegar hún kaupir fyrsta taupokann af þeim 2.000 sem Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur hefur látið framleiða. Myndin sem skreytir pokann er teiknuð af listakonunni Hörpu Einarsdóttur. Á myndinni á pokanum má sjá konu sem ver ungann sinn fyrir utanaðkom- andi ágangi, meðal annars frá snáki. Styrkurinn og staðfestan sem þarf til að halda velli í lífsins ólgusjó var innblásturinn að mynd- inni en einnig verða til sölu bollar með sömu mynd. Vörurnar verða til sölu víða um borgina en átakið er haldið í tilefni af 90 ára afmæli Mæðra- styrksnefndar. »14 Forsætisráðherra styrkti Mæðrastyrksnefnd Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Katrín Jakobsdóttir tók við fyrsta taupokanum í Melabúðinni í gær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.