Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
✝ Sveinn ArnarDavíðsson
fæddist á Patreks-
firði 3. mars 1927.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Vesturlands í
Stykkishólmi 26.
maí 2018.
Foreldrar hans
voru Davíð Frið-
laugsson, f. 20.8.
1885, d. 1934 og
Sesselja Guðrún Sveinsdóttir,
f. 25.9. 1892, d. 11.5. 1985.
Systkini Sveins voru Jóhanna
Davíðsdóttir, f. 3.9. 1920, d. 4.1.
2003, maki Pétur Hafliði Ólafs-
son, og Kristján Davíðsson, f.
28.7. 1917, d. 27.5. 2013, maki
Svanhildur Björnsdóttir.
Sveinn kvæntist 27.12. 1952
Guðrúnu Björnsdóttur, f. 8.7.
1934, d. 26.3. 2009. Foreldrar
hennar voru Björn Hildimund-
arson, f. 1906, d. 1983, og El-
ísabet Magnúsdóttir, f. 1912, d.
1984.
Sveinn eignaðist soninn Örn
Snævar, f. 1948, maki Margrét,
f. 9.4. 1950, d. 10.1. 2018. Börn
þeirra eru: a) Vignir, f. 1971,
maki Helga Birna, f. 1971, b)
Steinar, f. 1973, maki Marion, f.
Rósa Kristín, f. 1989, c) Silja
Katrín, f. 1997.
5) Vignir, f. 1960, var kvænt-
ur Heiðrúnu Leifsdóttir. Börn
þeirra eru: a) Ragnheiður, f.
1979, maki Gottskálk, f. 1972, b)
Lýður, f. 1980, c) Halla, f. 1987.
6) Hera, f. 1963, maki Hauk-
ur Lárus Hauksson, f. 1957, d.
2010. Börn þeirra eru: a) Arin-
björn, f. 1984, maki Lára Sigríð-
ur, f. 1986, b) Edda Þöll, f. 1989,
maki Haraldur Þór, f. 1986.
Sveinn Arnar ólst upp á Pat-
reksfirði. Eftir að faðir hans
lést árið 1934 dvaldi hann í
sveit á sumrin á Rauðasandi, fór
ungur að vinna og vann við
vegavinnu og sjómennsku, þar
til hann fluttist með móður
sinni til Reykjavíkur. Hann
fluttist svo til Stykkishólms
1952, þar sem hann starfaði
lengst af sem verkstjóri í fiski-
mjölsverksmiðjunni og síðan við
hönnun, smíði og rekstur skel-
véla hjá Sigurði Ágústsyni hf.
eftir að hörpuskel fór að veið-
ast. Einnig starfaði Sveinn lengi
vel með slökkviliði Stykk-
ishólms. Sveinn byggði fjöl-
skyldu sinni hús í Lágholti 3 og
héldu þau Guðrún þar stórt og
líflegt heimili. Sveinn hætti
störfum 74 ára gamall.
Alls lætur Sveinn eftir sig 68
afkomendur.
Útför Sveins fer fram frá
Stykkishólmskirkju í dag, 2.
júní 2018, og hefst athöfnin kl.
14.
1972, c) Guðbjörg,
f. 1976, maki Bene-
dikt Páll, f. 1973, d)
Björgvin, f. 1980,
maki Eva Lind, f.
1977.
Börn Sveins og
Guðrúnar eru:
1) Birna Elísa-
bet, f. 1951, maki
Árni Árnason, f.
1953. Börn þeirra
eru: a) Guðríður, f.
1970, maki Grétar Þórarinn, f.
1973, b) Þórunn, f. 1982, maki
Kristinn, f. 1981, c) Elísabet Aa-
got, f. 1988, maki Zach Elliot, f.
1990.
2) Sesselja Guðrún, f. 1954,
maki Sigurður Kristinsson, f.
1951. Börn þeirra eru: a) Finn-
ur, f. 1976, maki Erla, f. 1979, b)
Guðrún Arna, f. 1980, maki
Hreiðar, f. 1973, c) Hildur, f.
1981, maki Bjarni, f. 1979.
3) Hilmar, f. 1955, maki Pála
Annalísa Vilhjálmsdóttir, f.
1956. Sonur þeirra er Kristján
Emil, f. 1975.
4) Davíð, f. 1956, maki Anna
María Rafnsdóttir, f. 1959. Börn
þeirra eru: a) Unnur Edda, f.
1984, maki Hlynur, f. 1982, b)
Sveinn Arnar, f. 1986, maki
Minningin sem ég á um föður
minn er hve vinnusamur hann
var. Hugsaði hlutina upp á nýtt
til að einfalda og létta vinnuna.
Ég hafði ánægju af að vinna með
honum við smíðar, t.d. gróður-
húsin, bílskúrinn og Lágholt 19a.
Karlarnir í Lágholtinu skömm-
uðu hann fyrir gróðurhúsin því
konurnar heimtuðu eins. Fyrir
utan magasár var hann heilsu-
hraustur og varð ekki gamall
fyrr en ári fyrir andlátið. Pabbi
vildi alltaf vera með dýr og talaði
mikið við köttinn Kollí sem við
áttum lengi og seinna er hann
fékk sér hunda. Hann talaði líka
við fuglana í garðinum og flug-
urnar sem voru bestu vinir
blómanna. Eftir að hann flutti á
dvalarheimilið átti hann erfitt
með að geta ekki sinnt sjálfsögð-
um þörfum. Þegar starfsstúlkan
sagði honum að hún hefði rakað
menn í 25 ár spurði hann hvort
þeir væru allir lifandi.
Þær eru eftirminnilegar
stundirnar sem við sátum saman
og hann rifjaði upp sögur úr
æsku sinni fyrir vestan.
Pabbi var hvíldinni feginn,
sáttur við allt og alla, þegar hann
kvaddi. Hans verður sárt
saknað.
Davíð Sveinsson.
Ég er alveg afskaplega þakk-
látur fyrir að hafa fengið tæki-
færi til að kynnast honum
Svenna afa við upphaf þessarar
aldar, bæði gegnum spjall og
brall og fengið hjá honum líka
ráð við alls kyns og alls konar.
Tala nú ekki um sérstöku aðferð-
irnar við að gera hlutina stóra
sem smáa. Ómetanlegt alveg.
Við tjáum tilfinningar okkar á
misjafnan máta, og kannski sér-
staklega við af veikara kyninu.
Ég fann það þó þarna næstsíð-
asta daginn hans með okkur að
honum þótti mjög vænt um að
hafa þá sem gátu sér við hlið síð-
ustu metrana í þessu lífi. Hann
átti bara smá erfitt með að koma
orðum að því, sagði það bara í
huganum. Held það hafi komist
vel til skila.
Við vorum sammála um það
fyrir einhverjum árum við
Svenni að það væri næsta víst
örugglega mun meira gaman að
lifa þessu lífi lifandi og við góða
heilsu frekar en hitt. Held að
heilt yfir sé ekkert alslæmt að
verða ekki gamall fyrr en ní-
ræður, ég tek að minnsta kosti
þann díl ef hann býðst.
Votta öllum aðstandendum og
þeim sem kynntust Sveini Arnari
Davíðssyni samúð.
Svenni afi átti stundum loka-
orðið úr dyragættinni í Lágholt-
inu, látum það vera lokaorðið hér
– fyrirgefðu …
Grétar Þórarinn
Gunnarsson.
Laugardaginn 26. maí lést afi
minn Sveinn Arnar Davíðsson
eða Svenni afi eins og við barna-
börnin kölluðum hann. Afi lifði
góð 90 ár sem ungur í anda enda
heilsuhraustur maður. En eitt ár
í veikindum sem áttu alls ekki
við hann því hann vildi ekki
liggja aðgerðarlaus.
Þær minningar sem koma
fyrst upp í hugann þegar ég
hugsa til Svenna afa eru stund-
irnar við eldhúsborðið. Þar gát-
um við rætt saman um ýmislegt
en oftast var það þannig að afi
fór að segja mér frá uppvaxt-
arárunum á Patreksfirði. Afi var
mjög hógvær maður og aldrei
heyrði ég hann gorta af neinu en
ég heyrði það annars staðar frá
að hann hefði verið aðalskíðag-
arpurinn á Patreksfirði og verið
mjög góður á skautum. Enda
voru margar sögurnar um
skautasvellið á Patreksfirði sem
var svo slétt. Eitt sinn þegar ég
var unglingur fór ég með afa á
skauta og mér fannst nú að hann
ætti að fara varlega karlinn því
það væri örugglega langt síðan
hann hefði síðast farið á skauta.
En það var ekki að spyrja að því
þegar ég var nýstiginn á svellið
og var svona að brasa við að ná
jafnvægi þá kom afi þjótandi
framhjá mér og tók stökk upp í
loftið og einn hring í loftinu en
endaði þessa flugferð með því að
fljúga beint á rassinn. En hann
var fljótur á fætur og með skýr-
inguna á þessari byltu alveg á
hreinu: „svellið var ekki eins
slétt og á Patró í gamla daga“.
Afi var mikið náttúrubarn og
þegar hann hætti að vinna fór
hann daglega út að ganga með
hundana sína. Fyrst Tinnu sem
var í hans huga klárasti hundur í
heimi og seinna kom Gosi sem
var ansi kröftugur og maður sá
yfirleitt afa vera hlaupandi á eft-
ir honum uppi í sveit. Það var
líka skemmtilegt að sitja á pall-
inum hjá honum þegar hann
kallaði á auðnutittlingana til þess
að gefa þeim. Hann var búinn að
finna út ákveðið blístur sem var
merki um að það væri kominn
matur og þá komu fuglarnir.
Afi var mikill hagleiksmaður
og það lék allt í höndunum á hon-
um. Hann var listrænn, teiknaði
vel, tálgaði út steina og hafði un-
un af því að hlusta á klassíska
tónlist. Svo var hann uppfinn-
ingamaður og mér er mjög
minnisstætt þegar hann bjó til
berjahreinsivél sem var einhvers
konar tromla knúin áfram af
borvél og svo með ryksugu á
endanum til þess að ryksuga
ruslið í burtu.
Elsku Svenni afi, mikið var ég
lánsamur að alast upp nálægt
þér og ömmu. Þú hefur alltaf
verið ein af mínum bestu fyr-
irmyndum og einstaklega
skemmtilegur og góður afi.
Minningin um góðan mann
lifir.
Finnur Sigurðsson.
Náttúrbarnið, listræni hag-
leikssmiðurinn og uppfinninga-
maðurinn en þó fyrst og fremst
besti afi í heimi, Sveinn Arnar
Davíðsson, verður jarðsunginn í
dag. Ég sat hjá afa þegar hann
skildi við, ásamt nokkrum barna
hans, og við dánarbeð hans fékk
ég góðan tíma til að hugsa um
samband okkar. Það var að vissu
leyti sérstakt því ég ólst upp hjá
ömmu og afa til átta ára aldurs
og var hjá þeim heilu sumrin til
unglingsaldurs og við afi mynd-
uðum sterk tengsl, ég sé það á
viðbrögðum vina minna núna,
eftir andlát afa, að ég hef greini-
lega talað mikið um hann í gegn-
um tíðina.
Við mótumst mikið af því fólki
sem er í kringum okkur og ég tel
mig mjög lánsama að hafa átt
allan þennan tíma með afa og
leyfa lífsgildum hans að móta
mig.
Þegar ég var lítil bannaði
hann að ég væri skömmuð, hann
sagði að ég væri of skynsöm til
þess. Ég hef rökstuddar efa-
semdir um að ekki hafi allir hafi
verið sammála því en þetta lýsir
okkar sambandi mjög vel. Hann
var með mér í liði, alltaf, en hann
leyfði mér líka að vera ósammála
sér og við tókumst oft á um mál-
efni. Oftast áttaði ég mig á síðar
að hann hafði rétt fyrir sér en
hann leyfði þrjóskupúkanum
mér að átta mig í rólegheitum.
Náttúrubarnið Sveinn talaði
við gróðurinn, enda átti hann
verðlaunagarð. Hann talaði við
flugurnar og fuglana með mikilli
hlýju og virtist einhvern veginn
vera hluti af náttúrunni og skilja
hana og hlutverk allra lífvera í
hringrásinni. Samband hans við
dýrin náði hámarki þegar hann
eignaðist hund, tengsl hans við
hundana voru einstök, það var
stórkostlegt að fylgjast með hon-
um hlaupa um holt og hæðir með
hund á eftir sér í allskonar leikj-
um langt fram eftir aldri. Mín til-
finning er að hjá afa hafi börn og
dýr verið í sama gæðaflokki. Það
var yndislegt að sjá hann með
barnabörnunum og barnabarna-
börnunum. Hann ljómaði alltaf
þegar þau komu. Ég er viss um
að þau hafi öll upplifað sig mjög
sérstök í hans augum. Ég naut
þess að sjá hann byggja upp
ævintýraheim í huga barnanna
minna í gönguferðum með hon-
um um Stykkishólm og nágrenni
rétt eins og hann örvaði mitt
ímyndunarafl sem barn. Þau
dáðust mikið að langafa sínum
og hraustleika hans.
Ég leitaði mjög oft ráða hjá
afa og þau voru flest góð en
stundum var erfitt að fylgja
þeim því þau voru alltaf alveg
spes og heimatilbúin enda var
hann uppfinningamaður í eðli
sínu og ekki mikið fyrir að fylgja
hefðbundnum aðferðum. Upp-
finningamaðurinn og náttúr-
barnið var stórkostleg samsetn-
ing sem braust fram í matargerð
sem oft á tíðum var ansi sérstök
en ætlað að hafa ákveðin áhrif á
virkni líkamans. Líklega hefur
hann haft eitthvað fyrir sér í
þessum tilraunum því hann var
sérlega hraustur og var eins og
unglingur í 90 ár og gamalmenni
í eitt ár en líkaði það ekki vel
enda sérlega atorkumikill
maður.
Ég kveð afa með miklum
söknuði en fyrst og fremst þakk-
læti fyrir að hafa átt hann að
svona lengi. Sveinn Arnar Dav-
íðsson skilur eftir sig mikla arf-
leifð í okkur öllum, sem nutum
samvista við hann.
Guðríður Sigurðardóttir
(Gurrý).
Í dag verður elsku Svenni afi
jarðsunginn. Mig langar í fáum
orðum að kveðja þig og þakka
fyrir allar þær fjölmörgu góðu
stundir sem við áttum saman.
Ég var mjög heppin að alast upp
í Hólminum svona nálægt afa og
ömmu, ég lærði margt af Svenna
afa og fannst hann mikil fyrir-
mynd.
Svenni afi var heilsuhraustur
og hugsaði vel um sig. Við náð-
um oft vel saman í samræðum
um hollan mat og hreyfingu.
Hann fór daglega í langa göngu-
túra með hundana sína og lék við
þá, fór í feluleik með þeim og
hljóp um sveitina.
Ég man alltaf hvað afi var
flinkur á skautum og fannst það
rosalega flott ef hann kom með
okkur krökkunum upp í sveit á
skauta. Hann kunni nefnilega að
gera ýmsar listir á skautunum
sem enginn annar lék eftir. Það
eru ekki mörg ár síðan afi hætti
að reima á sig skautana og lét
sér nægja göngutúra.
Afi var einnig mikill skíða-
maður og man ég eftir skíðaferð
sem við fórum með honum upp í
Grímsfjall. Ég og Gunna systir
fengum hann til að keyra okkur
og útveguðum honum gönguskíði
því hann væri nú svo gamall og
það væri fínt fyrir hann. Eftir
stutta stund í fjallinu sáum við
svo afa skíða niður brekkuna og
búinn að útvega sér alvöruskíði.
Ég hef haft mjög gaman af því
undanfarin ár að koma í Hólm-
inn og kíkja í kaffi og sandköku í
Lágholtið og hlusta á sögur frá
því í gamla daga þegar þú varst
ungur á Patró.
Ég vil þakka þér fyrir allt sem
þú hefur gefið og kennt mér
elsku afi, ég á svo mikið af góð-
um minningum um þig sem ég
mun geyma og hugsa um af
hlýju.
Hildur Sigurðardóttir.
Sveinn Arnar
Davíðsson
Fleiri minningargreinar
um Sveinn Arnar Davíðs-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginkona, móðir, amma, langamma
og tengdamamma,
RITA PRIGGE HELGASON,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
lést þriðjudaginn 29. maí á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja eftir stutt veikindi.
Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju miðvikudaginn 13. júní
klukkan 13.
Valberg Helgason
Reynir Valbergsson Una Steinsdóttir
Haraldur Valbergsson Þóra Björg Einisdóttir
Ívar Valbergsson Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁSTRÁÐUR HJARTAR BJÖRNSSON
bókbindari,
lést miðvikudaginn 16. maí á
hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Vilhjálmur Ástráðsson
Elín Ástráðsdóttir
Jónína Ástráðsdóttir
Laufey Ástríður Ástráðsdóttir
Ágústa Hjartar Ástráðsdóttir
Hafdís Björg Ástráðsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar,
ÞÓRA ÞORBERGSDÓTTIR,
Hátúni 10,
Vík í Mýrdal,
lést á Hjallatúni mánudaginn 28. maí.
Útförin fer fram frá Víkurkirkju mánudaginn
4. júní klukkan 14.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Þykkvabæjarklausturskirkju eða
Dvalarheimilið Hjallatún, Vík í Mýrdal.
Þorbergur Þ. Reynisson Gunnhildur Haraldsdóttir
Sigurður Karl Hjálmarsson Áslaug Einarsdóttir
Vilborg Hjálmarsdóttir Kristján Benediktsson
Anna M. Hjálmarsdóttir Einar Hjörleifur Ólafsson
Jón Hjálmarsson Sigrún Guðmundsdóttir
og fjölskyldur
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
tengdaamma og langamma,
ANNA SIGRÍÐUR LÚÐVÍKSDÓTTIR,
áður til heimilis á Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
mánudaginn 28. maí.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
15. júní klukkan 15.
Lúðvík Ólafsson Hildur Viðarsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir Páll Sigurðsson
Tryggvi Ólafsson
Viðar Lúðvíksson Borghildur Erlingsdóttir
Anna Lúðvíksdóttir Oscar Mauricio Uscategui
Anna Sigríður Pálsdóttir
Ólafur Pálsson Tanja Berglind Hallvarðsdóttir
og barnabarnabörn
Elskuleg dóttir mín, systir okkar og
mágkona,
GUÐRÚN RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Neskirkju
miðvikudaginn 6. júní klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).
Sigrún Brynjólfsdóttir
Brynjólfur Jónsson Dagný Guðnadóttir
Þorlákur Jónsson Anna Guðrún Ívarsdóttir
Þorgerður Jónsdóttir Sigurjón Helgi Björnsson
Jón Erlingur Jónsson Anna Stefánsdóttir
Þuríður Jónsdóttir Atli Ingólfsson