Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir hlutu í gær Stefaníustjakann þegar hann var afhentur í 26. sinn við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói. Stefaníustjakanum fylgir styrkur úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur leik- konu og hlutu styrkþegar 850 þús. kr. hvort um sig. Minningarsjóður frú Stefaníu Guðmundsdóttur var stofnaður árið 1938 af hjónunum Önnu Borg og Poul Reumert til að efla íslenska leiklist og heiðra um leið minningu Stefaníu Guðmundsdóttur, móð- ur Önnu Borg. Úthlutað var úr sjóðnum í fyrsta sinn 1970 og síðan hafa alls 50 listamenn hlotið styrk. Samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum er styrkurinn í senn viðurkenning á góðum árangri styrkþega og ferðastyrkur. Víkka sjóndeildarhringinn „Þessi viðurkenning hefur mikla og jákvæða þýðingu fyrir mig, enda vegleg viðurkenning. Þessi styrkur hefur verið veittur í áratugi og það er því mikill heiður að hljóta hann,“ segir Stefán Karl og rifjar upp að þetta sé önnur viðurkenningin sem hann hlýtur á leiklistarferli sínum, en fyrir nokkr- um árum hlaut hann styrk úr sjóði Thorbjørns Eg- ners. Að sögn Stefáns Karls munu þau Steinunn Ólína nýta styrkinn til að skoða leikhús erlendis. „Fyrsta ferðin verður farin í júlí, en þá er ætlunin að sjá Ian McKellen í hlutverki Lés konungs í London,“ segir Stefán Karl og tekur fram að þau Steinunn Ólína hafi verið dugleg að skoða leikhús erlendis á um- liðnum árum og nefnir í því samhengi Theater- treffen í Berlín. „Ég er mjög upp með mér að fá þessa viður- kenningu og er staðráðin í því að nýta þetta bæði til þess að sjá gott leikhús og víkka sjóndeildarhring- inn,“ segir Steinunn Ólína og bendir á að stór hluti af starfi leikara sé að fara í leikhús og sjá aðra leik- ara vinna, skoða uppsetningar leikstjóra og fylgj- ast með öðrum listgreinum. „Við höfum undanfarin ár verið dugleg að skoða leikhús í Bretlandi, en mig langar til að skoða leikhús víðar, sérstaklega í Austur-Evrópu “ segir Steinunn Ólína og nefnir í því samhengi Rússland og Eystrasaltslöndin. Svo skemmtilega vill til að þetta er í þriðja sinn sem leikarapar hlýtur Stefaníustjakann, en 2005 hlutu Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson stjakann og Unnur Ösp Stefánsdóttir 2012 og Björn Thors 2016. „Það gildir í þessu fagi eins og mörgum að líkur sækir líkan heim.“ Best að gleyma sjálfum sér Steinunn Ólína sneri eftir áralangt hlé aftur á leiksviðið í uppfærslu Þjóðleikhússins á Efa á liðnum vetri. Spurð hvort leikhúsgestir fái að njóta hæfileika hennar á næsta leikári svarar hún því ját- andi. „Ég er byrjuð að æfa gamanleikrit með Ólaf- íu Hrönn sem nefnist Fly Me to the Moon, eftir Marie Jones,“ segir Steinunn Ólína, en Jones skrif- aði einnig Með fulla vasa af grjóti sem Stefán Karl og Hilmir Snær Guðnason sýndu við miklar vin- sældir hérlendis, síðast í haust. „Þetta er afskaplega skemmtilegt leikrit um tvær konur sem vinna í heimahlynningu. Einn vinnudaginn lenda þær í mjög óvæntum kringum- stæðum, sem verður til þess að þær sjá sér leik á borði að auðgast svolítið með ófyrirséðum og skelfilegum afleiðingum þar sem þær bókstaflega taka verstu mögulegu ákvörðun í hverju skrefi,“ segir Steinunn Ólína, en leikritið, sem er frá 2012, verður frumsýnt í Kassanum í haust í leikstjórn höfundar. „Marie Jones var sjálf upphaflega leikkona og það finnst í uppbyggingu verksins, enda er það þaulhugsað og því höfum við óvenjugóða leiðarvísa í verkinu sjálfu. Það er ótrúlega gefandi og gaman að fá að vinna með Marie og ekki síður Lollu, sem er einhver dýrðlegasta gamanleikkona sem landið á. Við eigum eftir að skemmta okkur vel við þetta og þá vonandi áhorfendum í kjölfarið,“ segir Stein- unn Ólína og tekur fram að einn helsti kostur leikarastarfsins sé að fá að kynnast ólíkum hlut- verkum. „Besti kosturinn við þetta starf er að geta gleymt sjálfum sér, vegna þess að maður er sjálfur svo þrautleiðinlegur,“ segir Steinunn Ólína og neit- ar því að vandasamt sé að flakka milli ólíkra leik- stíla, fara úr dramatík yfir í grín og öfugt. „Hvert hlutverk er bara spennandi viðureignar og annað hvort tekst manni upp eða ekki.“ Morgunblaðið/Valli Sæmd Steinunn Ólína tók við Stefaníustjakanum fyrir hönd þeirra Stefáns Karls Stefánssonar. „Mikill heiður“  Stefán Karl og Steinunn Ólína fá Stefaníustjakann sem veittur var í 26. sinn Silkivegurinn er yfirskrift tónleika í Norðurljósum Hörpu annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 19. Þar koma fram tveir kínverskir tónlistarhópar; strengjahópurinn Northern Lights og þjóðlagasveitin Jasmin Flower Ensemble sem leikur á upprunaleg hljóðfæri. Flutt verður tónlist frá ýmsum tímabilum og sérstakir gestir á tónleikunum eru sönghópurinn Fjárlaganefnd. Aðgangur er ókeypis. Fyrir tveimur árum voru haldnir svipaðir tónleikar í tilefni 45 ára stjórnmálasambands Íslands og Kína og þá komust á tengsl milli Banda- lags íslenskra listamanna og samtaka listamanna í Kína sem hafa styrkst síðan. Viðburðurinn er skipulagður í sameiningu af samtökunum og sendi- ráðum landanna tveggja og markar upphaf að frekari samvinnu í framtíð- inni. Í gær skrifuðu fulltrúar frá Kína og fulltrúar BÍL undir sameiginlega viljayfirlýsingu um menningar- samstarf. „Í því felst m.a. að styrkja tengsl á milli bandalaganna og sam- starf á sem víðtækastan hátt, m.a. með því að kynna list landanna og greiða götu listamanna til samstarfs og þátttöku í listviðburðum og hátíð- um beggja landa,“ eins og segir í til- kynningu frá BÍL. Tónleikar og aukið samstarf við Kína Gestir Sönghópurinn Fjárlaganefnd er sérstakur gestur á tónleikunum. ICQC 2018-20 Tónskáldin Daníel Bjarnason og Hugi Guðmundsson eru tilnefnd fyrir Íslands hönd til Tónlistar- verðlauna Norðurlandaráðs 2018, báðir fyrir óperur. Daníel fyrir Brothers, sem sýnd er á Listahátíð í Reykjavík 9. júní. Í umsögn dóm- nefndar segir: „Tónlist Daníels hentar forminu frábærlega þar sem hann leikur sér með samspil ein- stakra radda, hljómsveitar og kórs og skapar sannfærandi heim með sinni sérstöku tónlistarrödd. Tón- list hans tekst að miðla andrúms- lofti og krafti sögunnar með fjöl- mörgum blæbrigðum og tækni úr heimi óperunnar.“ Hugi er tilnefndur fyrir Hamlet in Absentia, sem hann hlaut Ís- lensku tónlistarverðlaunin árið 2017 fyrir. Í umsögn er kammer- óperunni lýst sem hrífandi og fullri af andstæðum. „Hugi sameinar greinilega skilgreint form og hið óhefðbundna í fylgistefum og söng- lesi, aríum og kór í vægast sagt frumlegri tónlist sinni. […] Léttri og óformlegri útsetningu óper- unnar tekst að hrífa áheyrendur og halda þeim föngnum frá upphafi til enda.“ Á vefnum norden.org má sjá nöfn allra þeirra sem tilnefnd eru í ár og fyrir hvaða verk. Verðlaunin sjálf verða afhent á Norðurlandaráðs- þingi í Osló 30. október og hlýtur vinningshafi 350 þúsund danskar krónur að launum. Tónskáld tilnefnd Daníel Bjarnason Hugi Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.