Morgunblaðið - 02.06.2018, Side 12

Morgunblaðið - 02.06.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Síðustu eina og hálfa viku hefég orðið þeirrar gæfu að-njótandi að fá að vinna aðsjómannadagssérblaðinu sem kom út með Morgunblaðinu í gær. Verkefnið var nokkuð krefjandi þar sem mín mesta tenging við sjóinn hefur hingað til verið rauðspretta í raspi með miklu remúlaði. Það þýddi þó ekki að láta verkefnið sitja á hak- anum því á stuttum tíma var ég kom- inn með nokkrar greinar og viðtöl sem skila átti degi seinna. Á einum degi var ég því orðinn sérfræðingur í fiskeldi á Íslandi, byggðaþróun í Bíldudal og orðinn svo gott sem starf- andi sigmaður hjá Landhelgisgæsl- unni. Að minnsta kosti þótti mér það. Þannig leið svo vikan. Ég fékk á borðið ný viðfangsefni sem tengdust sjómennskunni á einhvern hátt og á hverjum degi fann ég hvernig sjó- manninum innra með mér óx ásmeg- in. Mér varð hugsað til atriðanna sem sýnd voru í sjónvarpsþættinum Há- setar og fljótlega var ég farinn að lifa og hrærast sem togarasjómaður, ennþá við skrifborðið í Hádegis- móum. Á nóttunni dreymdi mig káet- una og útsýnið út um kýraugað. Eins og áður segir kom blaðið út í gærmorgun og sjómaðurinn á ennþá hug minn og hjarta allt. Nú klæðist ég eingöngu kaðlapeysum og sjóstökkum og á eftir ætla ég að kaupa mér pípu og Fisherman’s Friend-hálsbrjóstsykur. Á morgun, þegar sjálfur sjómannadagurinn gengur í garð, mun ég sennilega láta slag standa og fara niður á höfn. Það er aldrei að vita nema ég stígi jafnvel upp í skip og fái einhvern til að kenna mér að slá úr pönnum. Þá lýkur þessu nú samt. Næst kemur bílablaðið út og þá kaupi ég mér grifflur og reykspóla á Corvettu. Síðan kemur jólablaðið og áður en ég veit af verður forfallni dellukallinn ég farinn að reykja pípu og slægja ýsu aftur, þó bara í hug- anum. »Á einum degi var égþví orðinn sérfræð- ingur í fiskeldi á Íslandi, byggðaþróun í Bíldudal og orðinn svo gott sem starf- andi sigmaður hjá Land- helgisgæslunni. Heimur Teits Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is T ónlistin er heillandi heim- ur og námið hér við skól- ann hefur opnað mér al- veg nýja möguleika á þessu sviði,“ segir Lilja Cardew, píanóleikari og nýstúdent. Hún er annar tveggja nemenda sem brautskráðust með stúdentspróf síð- astliðinn fimmtudag frá Menntaskóla í tónlist, en fyrsta formlega starfsári hans var nú að ljúka. Nemendur í vet- ur voru tvö hundruð og brautskráðir nemendur nú voru 32; af klassískri og rytmískri námsbraut og sem stúd- entar. Menntaskóli í tónlist (MÍT) varð til síðasta haust með sameiningu framhaldsdeilda Tónlistarskólans í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH í eina stofnun. Frumkvæðið að stofnun skólans kom á sínum tíma frá Illuga Gunnarssyni, þá menntamálaráð- herra; að þeir tveir skólar sem svo lengi höfðu verið leiðandi í tónlistar- menntun rynnu saman í einn öflugan skóla á framhaldsskólastigi. Þetta gekk eftir og til varð skóli sem starfar á almennri braut og stúdentsbraut, sem hvor um sig skiptist í klassík og rytmík. Tónlistin orðin jafnrétthá öðrum greinum Bóknámsgreinar til stúdents- prófs eru kenndar við Menntaskólann við Hamrahlíð en tónlistargreinarnar við Skipholt og í Rauðagerði. Þetta er fyrsti tónlistarskóli landsins sem fær viðurkenningu sem framhaldsskóli og hann útskrifar líka nemendur með 150 eininga burtfararpróf á fram- haldsskólastigi. Viðkvæmur gróður Alls starfa um 90 kennarar í 34 stöðugildum við skólann, en starfsemi hans mun þróast mikið á næstu árum. Nýjum námskeiðum verður hugsan- lega bætt inn, til dæmis í viðburða- stjórnun, starfsemin verður væntan- lega sameinuð umdir einu þaki áður en langt um líður. Hvers kyns tón- leikahald er líka snar þáttur í starf- semi skólans. „Stóru tíðindin eru þau að núna er tónlistin orðin jafnrétthá öðrum greinum til stúdentsprófs,“ sagði Kjartan Óskarsson skólameistari í ávarpi við brautskráningarathöfnina. „Við þurfum að hlúa að hinni dýru list, Hlúð að dýru listinni Fyrsta brautskráning frá Menntaskóla í tónlist var nú í vikunni. Nám við skól- ann skapar ungu listafólki nýja möguleika til náms og starfa. Tónlist er ekki sjálfsprottin. Henni ber að sinna líkt og viðkvæmum gróðri, segir skólastjórinn. Morgunblaðið/Valli Listafólk Kjartan Óskarsson, skólastjóri Menntaskóla í tónlist, og Lilja Cardew píanóstúdent. „Mér finnst fátt skemmtilegra en að taka þátt í íþróttum og hreyfingu með vinum mínum,“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og verkefnastjóri Hreyfiviku UMFÍ sem hófst sl. mánudag og lýkur í dag, 2. júní, með Kvennahlaupi ÍSÍ. Hreyfivikan er samevrópskt verkefni sem var ýtt úr vör árið 2012 í því skyni að hjálpa fólki sem hreyfir sig lítið að standa upp úr stólnum og bæta lífið með hreyf- ingu. UMFÍ hefur verið með frá upphafi og hefur verk- efnið notið vinsælda. Bryddað hefur verið upp á mörgu síðustu daga og þótt formlegri dag- skrá ljúki nú halda vafalaust margir áfram að hreyfa sig, enda er slíkt heilsubót fyrir líkama og sál. „Markmið Hreyfiviku UMFÍ hefur frá upphafi verið að draga úr kyrrsetu og auka ánægju fólks af því að hreyfa sig. Þetta er ekki átak heldur viðhorf. Hreyfing eykst ekki nema það sé gaman og þegar fólk hreyfir sig meira þá dregur sjálfkrafa úr kyrrsetunni. Það er svo mikilvægt að finna gleðina í hreyfingunni. Þetta hefur tekist svo vel að á mörgum stöðum iðar sam- félagið af lífi,“ segir Sabína. Hreyfingarleysi er vá Frá upphafi Hreyfivikunnar hefur legið fyrir að hún verði í átta ár. Verk- efninu lýkur samkvæmt því árið 2020 og aðeins tvö ár eftir. Sabína segir mikið hafa áunnist síðustu ár. „Hreyf- ingarleysi er vá. Æ fleiri gera sér grein fyrir mikilvægi þess að hreyfing sé hluti af daglegu lífi. Þá er verið að auka hreyfingu sem hluta af skólalíf- inu með sama hætti og endurvinnsla þykir í dag sjálfsagður hlutur,“ segir Sabína og leggur aftur áherslu á að hreyfing verði að vera skemmileg svo fólk vilji stunda hana. „Fólk verður einfaldlega að leyfa sér að finna barnið innra með sér og leyfa sér að hafa aftur gaman af því að hreyfa sig,“ segir Sabína að síð- ustu. Bryddað upp á mörgu í Hreyfiviku UMFÍ Morgunblaðið/Þórður Dregur sjálfkrafa úr kyrrsetunni Sabína Steinunn Halldórsdóttir Sprettur Tekið á rás í Kvennahlaupi ÍSÍ, sem er vinsæll og fjölsóttur viðburður. Since 1921 Weleda er leiðandi vörumerki í sölu á lífrænum húðvörum síðan 1921 ! Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir. Netverslun: heimkaup.is, lyfja.is, heilsuhusid.is, baenduribaenum.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.