Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pronto bolli og undirskál
Verð 3.580 kr.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hafstraumar og vindar höfðu mikið
að segja við túlkun Shailene Wood-
ley í hlutverki sínu í nýrri kvik-
mynd Baltasars Kormáks, Adrift.
Kvikmyndin byggist á raunveru-
legum atburðum, sjávarháska kær-
ustuparsins Tami Oldham, sem
Shailene leikur, og Richard Sharp,
en þau urðu fellibylnum Raymond
að bráð á Kyrrahafi árið 1983.
Höfðu þau tekið að sér að sigla
skútu frá Tahítí til San Diego í
Bandaríkjunum.
Sharp drukknaði en Oldham
komst lífs af og vaknaði ein í illa
farinni skútunni um 30 klukku-
stundum síðar. Hverfist meginhluti
myndarinnar um sjálfsbjörg henn-
ar og innri átök vegna missisins, en
41 dagur leið þar
til hún náði
landi.
Baltasar Kor-
mákur er þekkt-
ur fyrir að líkja
eftir raunveru-
legum aðstæðum
á tökustöðum
kvikmynda sinna
og er Adrift eng-
in undantekning
á því. Kvikmynd-
in var tekin upp við Fídji-eyjar í
Kyrrahafi, um 90% á rúmsjó. Kvik-
myndagerðarfólkið sigldi því til
vinnu á hverjum morgni með hrað-
báti í allt að þrjá tíma um þriggja
mánaða skeið.
Náttúruöflin í nýju ljósi
Woodley segir alla sem að mynd-
inni komu hafa tekið skref út fyrir
þægindarammann og glímdu marg-
ir við sjóveiki. Aðstæður voru
krefjandi, en hún lýsir því að nátt-
úran hafi þó heillað frá fyrsta degi.
Jafnvel þótt hún hafi nokkra
reynslu af siglingum hafi þriggja
mánaða dvöl á hafi úti varpað nýju
og skýru ljósi á náttúruöflin.
„Nú til dags lifum við mörg lífinu
ótengd náttúrunni og það er auð-
velt að gleyma því að allur heim-
urinn tengist með einum eða öðrum
hætti. Í vistkerfinu vinna ótal þætt-
ir saman og það var einstakt að fá
að upplifa þetta á tökustað,“ segir
hún og nefnir að sjaldgæft sé að
leikstjórar og framleiðendur taki
raunverulegar aðstæður umfram
tilbúinn raunveruleika í myndveri.
„Ég held að þetta sé ástæðan
fyrir því að fólk elskar kvikmyndir
Baltasars á borð við Everest og
Djúpið, að náttúran leiki jafn stórt
hlutverk og leikarar og kvikmynda-
tökumenn,“ segir Woodley. Blaða-
maður útskýrir að Íslendingar
muni sjálfsagt vilja lesa um sam-
starfið við Baltasar Kormák, enda
sé hann af mörgum dáður hér.
„Það skil ég vel! Það er draumi
líkast að vinna með honum, ég hef
aldrei átt jafn gott samstarf við
jafn frjóan leikstjóra,“ segir hún og
kveðst hafa fengið gott rými til að
túlka hlutverk sitt eftir eigin höfði.
Hún segir Baltasar eldkláran og
færan í sínu fagi og nefnir sér-
staklega auðmýkt hans gagnvart
verkefninu. „Hann var mjög með-
vitaður um að hann, rúmlega fimm-
tugur karlmaður, væri að segja
sögu þar sem kona er í aðalhlut-
verki.
Hann vildi segja söguna frá
hennar sjónarhorni og reyndi ekki
að skilja fullkomlega sjálfur hvað
flýgur í gegnum huga konu á þrí-
tugsaldri í aðstæðum sem þessum,
heldur lét hann mig og aðra um að
leiða það í ljós. Síðan hjálpuðumst
við að við að byggja þetta inn í
söguþráðinn,“ segir Woodley.
Mikil örvun í umhverfinu
Persóna Tami Oldham er ein í
forgrunni stærstan hluta mynd-
arinnar. Woodley segist þrátt fyrir
það aldrei hafa „verið einmana“ og
notið sín að fullu í leik sínum.
„Vegna þess að myndin er tekin
upp við raunverulegar aðstæður
má segja að hafið hafi verið í hlut-
verki mótleikarans. Það var mikil
örvun í náttúrunni,“ segir hún.
„Hlutverk okkar leikaranna er í
grundvallaratriðum að setja okkur
í ákveðnar aðstæður með eins
sannfærandi hætti og hægt er. Við
fengum ótal margt til að vinna
með, hvort sem það var hafið sjálft,
hafstraumar, vindar eða segl. Við
þessar aðstæður er aldrei kyrr-
staða og hver taka er einstök.
Þessar margbreytilegu aðstæður
skína í gegn í myndinni og ég naut
mín mjög í þessu umhverfi,“ segir
hún.
Oldham ritaði bókina Red Sky in
Mourning: A True Story of Love,
Loss and Survival at Sea árið 1998
um raunir sínar á Kyrrahafi, en
hún dvaldi á tökustað í um tvær
vikur. Hefur hún látið í ljós mikla
ánægju með útkomuna og Woodley
segir hana hafa hjálpað mikið til
við gerð myndarinnar.
Blanda af ást og spennu
„Ég átti dásamlegt samband við
Tami meðan á tökum stóð og einnig
eftir tökur. Hún opnaði sig fyrir
okkur í samtölum og svaraði spurn-
ingum sem við höfðum um hana og
Richard,“ segir hún, en Sam Claflin
fer með hlutverk Richards Sharp.
„Við Sam vorum líka heppin að fá
að vinna saman, við eigum margt
sameiginlegt bæði faglega og per-
sónulega. Þegar maður eyðir jafn
miklum tíma með öðrum úti á sjó
þá myndast sérstök tengsl. Þetta
gerði okkur kleift að þróa með okk-
ur nánd og strauma sem við nýtt-
um okkur,“ segir Woodley og nefn-
ir að ástin sé alltumlykjandi í
sögunni.
„Þegar skammt er á milli heims
og helju höfum við öll tilhneigingu
til að líta til baka á tengsl okkar við
annað fólk, samfélagið og ástina.
Ástin tengir saman alla hluti.“
Kyrrahafið í hlutverki mótleikarans
Shailene Woodley fer með aðalhlutverk í kvikmynd Baltasars Hrósar leikstjóranum í hástert
90% myndarinnar Adrift tekin upp úti á miðju hafi Náttúran leikur stórt hlutverk í myndinni
Stór hópur reynds fagfólks vann
með Baltasar Kormáki að fram-
leiðslu Adrift. Í þeim hópi eru
margverðlaunaðir kvikmynda-
gerðarmenn á borð við Robert
Richardson kvikmyndatökumann
og John Gilbert klippara sem hafa
m.a. unnið til Óskarsverðlauna,
fjölda BAFTA-verðlauna og hlotið
fjölda tilnefninga þar að auki.
Richardson hefur þrisvar sinn-
um unnið til óskarsverðlauna fyr-
ir verk sín og unnið til fjölmargra
annarra verðlauna á sínu sviði.
Hann er þekktur fyrir aðkomu
sína að kvikmyndum á borð við
Kill Bill: Vol. 1 frá 2003 og
Inglorious Basterds frá 2009. Fyr-
ir myndirnar The Aviator frá
2004 og Hugo frá 2011 vann hann
óskarsverðlaun og einnig fyrir
JFK frá árinu 1991. Robertson
hefur m.a. unnið með leikstjór-
unum Quentin Tarantino, Martin
Scorsese og Oliver Stone.
Gilbert er þekktur fyrir vinnu
sína við Hringadróttinssögu:
Föruneyti hringsins frá árinu
2001 og The Bank Job frá 2008.
Árið 2016 hlaut hann óskars-
verðlaun fyrir myndina Hacksaw
Ridge.
Ljósmynd/STX
Tökumaður Robert Richardson við
tökur á mynd Baltasars Kormáks.
Einvalalið fagfólks
vann að myndinni
Margverðlaun-
aðir fyrir verk sín
AFP
Klippari John Gilbert með óskars-
verðlaunin fyrir Hacksaw Ridge.
Shailene
Woodley er
þekkt leikkona
í Bandaríkj-
unum. Hún er
margtilefnd til
fjölda verð-
launa og er
t.a.m. þekkt
fyrir leik sinn í
sjónvarpsþátt-
unum Big
Little Lies, ásamt Nicole Kid-
man og Reese Witherspoon,
sem notið hafa mikilla vin-
sælda.
Woodley lék einnig á móti
George Clooney í The Descend-
ants frá 2011 og í kvikmynd-
unum Divergent og Insurgent
árin 2014 og 2015. Shailene lék
einnig í myndinni Spectacular
Now frá árinu 2013. Þá lék hún í
unglingaþáttunum Fault in Our
Stars.
Skær stjarna
í Hollywood
SHAILENE WOODLEY
Shailene
Woodley
Ljósmynd/STX
Adrift Shailene Woodley við stýrið, í hlutverki Tami Oldam. Sam Claflin leikur unnustann, Richard Sharp.
Baltasar
Kormákur
AFP
Heimsfrumsýning Hluti aðstandenda myndarinnar Adrift, f.v. Aaron Kan-
dell, Jordan Kandell, Volker Bertelmann, Tami Oldham Ashcraft, Baltasar
Kormákur og aðalleikararnir Shailene Woodley og Sam Claflin.