Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 48

Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Pronto bolli og undirskál Verð 3.580 kr. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hafstraumar og vindar höfðu mikið að segja við túlkun Shailene Wood- ley í hlutverki sínu í nýrri kvik- mynd Baltasars Kormáks, Adrift. Kvikmyndin byggist á raunveru- legum atburðum, sjávarháska kær- ustuparsins Tami Oldham, sem Shailene leikur, og Richard Sharp, en þau urðu fellibylnum Raymond að bráð á Kyrrahafi árið 1983. Höfðu þau tekið að sér að sigla skútu frá Tahítí til San Diego í Bandaríkjunum. Sharp drukknaði en Oldham komst lífs af og vaknaði ein í illa farinni skútunni um 30 klukku- stundum síðar. Hverfist meginhluti myndarinnar um sjálfsbjörg henn- ar og innri átök vegna missisins, en 41 dagur leið þar til hún náði landi. Baltasar Kor- mákur er þekkt- ur fyrir að líkja eftir raunveru- legum aðstæðum á tökustöðum kvikmynda sinna og er Adrift eng- in undantekning á því. Kvikmynd- in var tekin upp við Fídji-eyjar í Kyrrahafi, um 90% á rúmsjó. Kvik- myndagerðarfólkið sigldi því til vinnu á hverjum morgni með hrað- báti í allt að þrjá tíma um þriggja mánaða skeið. Náttúruöflin í nýju ljósi Woodley segir alla sem að mynd- inni komu hafa tekið skref út fyrir þægindarammann og glímdu marg- ir við sjóveiki. Aðstæður voru krefjandi, en hún lýsir því að nátt- úran hafi þó heillað frá fyrsta degi. Jafnvel þótt hún hafi nokkra reynslu af siglingum hafi þriggja mánaða dvöl á hafi úti varpað nýju og skýru ljósi á náttúruöflin. „Nú til dags lifum við mörg lífinu ótengd náttúrunni og það er auð- velt að gleyma því að allur heim- urinn tengist með einum eða öðrum hætti. Í vistkerfinu vinna ótal þætt- ir saman og það var einstakt að fá að upplifa þetta á tökustað,“ segir hún og nefnir að sjaldgæft sé að leikstjórar og framleiðendur taki raunverulegar aðstæður umfram tilbúinn raunveruleika í myndveri. „Ég held að þetta sé ástæðan fyrir því að fólk elskar kvikmyndir Baltasars á borð við Everest og Djúpið, að náttúran leiki jafn stórt hlutverk og leikarar og kvikmynda- tökumenn,“ segir Woodley. Blaða- maður útskýrir að Íslendingar muni sjálfsagt vilja lesa um sam- starfið við Baltasar Kormák, enda sé hann af mörgum dáður hér. „Það skil ég vel! Það er draumi líkast að vinna með honum, ég hef aldrei átt jafn gott samstarf við jafn frjóan leikstjóra,“ segir hún og kveðst hafa fengið gott rými til að túlka hlutverk sitt eftir eigin höfði. Hún segir Baltasar eldkláran og færan í sínu fagi og nefnir sér- staklega auðmýkt hans gagnvart verkefninu. „Hann var mjög með- vitaður um að hann, rúmlega fimm- tugur karlmaður, væri að segja sögu þar sem kona er í aðalhlut- verki. Hann vildi segja söguna frá hennar sjónarhorni og reyndi ekki að skilja fullkomlega sjálfur hvað flýgur í gegnum huga konu á þrí- tugsaldri í aðstæðum sem þessum, heldur lét hann mig og aðra um að leiða það í ljós. Síðan hjálpuðumst við að við að byggja þetta inn í söguþráðinn,“ segir Woodley. Mikil örvun í umhverfinu Persóna Tami Oldham er ein í forgrunni stærstan hluta mynd- arinnar. Woodley segist þrátt fyrir það aldrei hafa „verið einmana“ og notið sín að fullu í leik sínum. „Vegna þess að myndin er tekin upp við raunverulegar aðstæður má segja að hafið hafi verið í hlut- verki mótleikarans. Það var mikil örvun í náttúrunni,“ segir hún. „Hlutverk okkar leikaranna er í grundvallaratriðum að setja okkur í ákveðnar aðstæður með eins sannfærandi hætti og hægt er. Við fengum ótal margt til að vinna með, hvort sem það var hafið sjálft, hafstraumar, vindar eða segl. Við þessar aðstæður er aldrei kyrr- staða og hver taka er einstök. Þessar margbreytilegu aðstæður skína í gegn í myndinni og ég naut mín mjög í þessu umhverfi,“ segir hún. Oldham ritaði bókina Red Sky in Mourning: A True Story of Love, Loss and Survival at Sea árið 1998 um raunir sínar á Kyrrahafi, en hún dvaldi á tökustað í um tvær vikur. Hefur hún látið í ljós mikla ánægju með útkomuna og Woodley segir hana hafa hjálpað mikið til við gerð myndarinnar. Blanda af ást og spennu „Ég átti dásamlegt samband við Tami meðan á tökum stóð og einnig eftir tökur. Hún opnaði sig fyrir okkur í samtölum og svaraði spurn- ingum sem við höfðum um hana og Richard,“ segir hún, en Sam Claflin fer með hlutverk Richards Sharp. „Við Sam vorum líka heppin að fá að vinna saman, við eigum margt sameiginlegt bæði faglega og per- sónulega. Þegar maður eyðir jafn miklum tíma með öðrum úti á sjó þá myndast sérstök tengsl. Þetta gerði okkur kleift að þróa með okk- ur nánd og strauma sem við nýtt- um okkur,“ segir Woodley og nefn- ir að ástin sé alltumlykjandi í sögunni. „Þegar skammt er á milli heims og helju höfum við öll tilhneigingu til að líta til baka á tengsl okkar við annað fólk, samfélagið og ástina. Ástin tengir saman alla hluti.“ Kyrrahafið í hlutverki mótleikarans  Shailene Woodley fer með aðalhlutverk í kvikmynd Baltasars  Hrósar leikstjóranum í hástert  90% myndarinnar Adrift tekin upp úti á miðju hafi  Náttúran leikur stórt hlutverk í myndinni Stór hópur reynds fagfólks vann með Baltasar Kormáki að fram- leiðslu Adrift. Í þeim hópi eru margverðlaunaðir kvikmynda- gerðarmenn á borð við Robert Richardson kvikmyndatökumann og John Gilbert klippara sem hafa m.a. unnið til Óskarsverðlauna, fjölda BAFTA-verðlauna og hlotið fjölda tilnefninga þar að auki. Richardson hefur þrisvar sinn- um unnið til óskarsverðlauna fyr- ir verk sín og unnið til fjölmargra annarra verðlauna á sínu sviði. Hann er þekktur fyrir aðkomu sína að kvikmyndum á borð við Kill Bill: Vol. 1 frá 2003 og Inglorious Basterds frá 2009. Fyr- ir myndirnar The Aviator frá 2004 og Hugo frá 2011 vann hann óskarsverðlaun og einnig fyrir JFK frá árinu 1991. Robertson hefur m.a. unnið með leikstjór- unum Quentin Tarantino, Martin Scorsese og Oliver Stone. Gilbert er þekktur fyrir vinnu sína við Hringadróttinssögu: Föruneyti hringsins frá árinu 2001 og The Bank Job frá 2008. Árið 2016 hlaut hann óskars- verðlaun fyrir myndina Hacksaw Ridge. Ljósmynd/STX Tökumaður Robert Richardson við tökur á mynd Baltasars Kormáks. Einvalalið fagfólks vann að myndinni  Margverðlaun- aðir fyrir verk sín AFP Klippari John Gilbert með óskars- verðlaunin fyrir Hacksaw Ridge. Shailene Woodley er þekkt leikkona í Bandaríkj- unum. Hún er margtilefnd til fjölda verð- launa og er t.a.m. þekkt fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt- unum Big Little Lies, ásamt Nicole Kid- man og Reese Witherspoon, sem notið hafa mikilla vin- sælda. Woodley lék einnig á móti George Clooney í The Descend- ants frá 2011 og í kvikmynd- unum Divergent og Insurgent árin 2014 og 2015. Shailene lék einnig í myndinni Spectacular Now frá árinu 2013. Þá lék hún í unglingaþáttunum Fault in Our Stars. Skær stjarna í Hollywood SHAILENE WOODLEY Shailene Woodley Ljósmynd/STX Adrift Shailene Woodley við stýrið, í hlutverki Tami Oldam. Sam Claflin leikur unnustann, Richard Sharp. Baltasar Kormákur AFP Heimsfrumsýning Hluti aðstandenda myndarinnar Adrift, f.v. Aaron Kan- dell, Jordan Kandell, Volker Bertelmann, Tami Oldham Ashcraft, Baltasar Kormákur og aðalleikararnir Shailene Woodley og Sam Claflin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.