Morgunblaðið - 02.06.2018, Qupperneq 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrsti hluti nýs miðbæjar suður af
Smáralind er að taka á sig mynd.
Framkvæmdir við 210 íbúðir eru
hafnar og er stefnt að því að hefja
sölu á fyrstu byggingunni í ágúst.
Áformað er að afhenda fyrstu íbúð-
irnar síðla árs. Þá er hönnun 270
íbúða langt komin og hefst smíði
þeirra síðar á árinu.
Fasteignaþróunarfélagið Klasi
stýrir verkefninu fyrir hönd 201
Smára. Þrjár arkitektastofur, Arkís,
T.ark og Tendra, hanna byggingar.
Ingvi Jónasson, framkvæmda-
stjóri Klasa, segir nýja bæjarhlut-
ann, 201 Smára, hannaðan frá
grunni inn í gróið hverfi. Um 84 þús-
und fermetrar af íbúðum og atvinnu-
húsnæði muni rísa í 201 Smára.
Margvísleg þjónusta er í boði á
svæðinu. Ásamt Smáralind eru
þjónustukjarnar á Smáratorgi og í
Smárahverfi og Lindunum steinsnar
frá. Þá er stutt í íþróttasvæði
Breiðabliks og skóla.
Rúmar á annað þúsund íbúa
Alls verða 675 íbúðir í hverfinu,
sem gæti fullbyggt rúmað á annað
þúsund íbúa. Við Smáralind verður
byggt nýtt miðbæjartorg, Sunnu-
torg, sem verður eitt af einkennum
Kópavogs. Það verður til dæmis
stærra en Ingólfstorg í Reykjavík.
Hluti fyrstu íbúðanna sem fara í
sölu í ágúst verður í nýju fjölbýlis-
húsi, Sunnusmára 24-28, en þar
verða 57 íbúðir, 57-120 fermetrar en
stærri íbúðir á efstu hæð. Bílastæði í
kjallara fylgja.
Ingvi segir Klasa leggja áherslu á
góða blöndun íbúða í hverfinu. Þar
verða allt frá 50 fermetra íbúðum
upp í fimm herbergja íbúðir. Hann
segir íbúðirnar hannaðar með hag-
kvæmni og sveigjanleika í huga. M.a.
verði auðvelt að bæta við her-
bergjum, og síðar fjarlægja þau,
eftir þörfum hvers tíma í hluta íbúða.
Þá sé grunnflötur íbúða nýttur vel.
Þjónustan ofarlega á blaði
„Við létum gera viðamikla könnun
þar sem almenningur gat sagt skoð-
un sína á því hvað skipti mestu máli
varðandi umhverfið, húsin og síðan
íbúðirnar sjálfar. Tæplega 2.000
manns tóku þátt í könnuninni. Þar
kom ýmislegt á óvart. Varðandi
hverfið töldu flestir nálægð við þjón-
ustu og græn svæði skipta mestu
máli. Kaffihús, veitingastaðir og ná-
lægð við almenningssamgöngur
voru einnig ofarlega í huga fólks.
Þátttakendur vildu einnig huga að
bílastæðum, að þau skorti ekki, og að
vistvænni hönnun bygginga.“
Ingvi segir flesta þátttakendur
hafa viljað opið rými en ekki lokað
eldhús eða sjónvarpsherbergi. „Það
styður þá kenningu okkar að fjöl-
skyldan vill vera saman í sameigin-
legu rými en ekki dreifð um íbúðina.
Spurt var hvaða rými mætti helst
stækka eða minnka ef stærð íbúða
yrði breytt. Niðurstaðan var að flest-
ir völdu að hafa rúmgott opið rými
fremur en að stækka til dæmis
svefnherbergi. Ef íbúð yrði til dæm-
is fimm fermetrum stærri ættu þeir
fermetrar að fara í alrými frekar en
að stækka svefnherbergi,“ segir
Ingvi og bætir við að boðnar verði
ýmsar nýjungar í hverfinu. 201
Smári hafi samið við ZipCar um
rekstur deilibíla og verið sé að skoða
lausnir er varða snjalla póstkassa
fyrir stærri póstsendingar.
Taka mið af umhverfinu
Arnar Þór Jónsson arkitekt er
einn eigenda Arkís arkitekta, sem
hanna fyrstu fjölbýlishúsin.
Arnar Þór segir að við litaval
klæðninga sé tekið mið af litum í um-
hverfinu til að nýju húsin falli sem
best að svæðinu. Klæðningar í
Sunnusmára 24-28 verði úr áli og
trefjaplötum frá Cembrit sem tryggi
áratuga endingu. Þá sé hljóðein-
angrun hámörkuð við val á gluggum
og loftræsting sé í takt við ströng-
ustu kröfur. Við hönnun sé útsýni
hámarkað og tekið mið af sólar-
gangi.
Nýjar miðbæjaríbúðir í sölu í sumar
Fyrstu íbúðirnar í 201 Smára í Kópavogi fara í sölu í ágúst Byggðir verða 84 þúsund fermetrar
Framkvæmdastjóri Klasa segir nýjar leiðir farnar í hönnun Auðvelt sé að fjölga herbergjum
Ljósmynd/Klasi/Birt með leyfi
Nýr miðbær Uppsteypu á fjölbýlishúsinu
Sunnusmára 24-28 lýkur á næstu vikum.
Teikning/Arkís
Vesturhliðin Ofanjarðar eru bílastæði fyrir íbúa og gesti og leiksvæði
fyrir börn. Í kjallaranum eru bílastæði og geymslur.
Teikning/Arkís
Horft til austurs Hér má sjá drög að því hvernig hverfið kann að líta út
fullbyggt. Með uppbyggingunni verður til nýr miðbær í Kópavogi.
Teikning/Arkís
Brotið upp Norðurhlið Sunnusmára 24-28 er brotin upp á jarðhæð. Með
uppbrotinu skapast rými fyrir íbúa og gönguleið opnast inn á baklóð.
Teikning/Arkís
Drög Norðar á reitnum verður til ný
gata, Silfursmári, með verslunum.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
Arnar Þór Jónsson arkitekt segir öll bíla-
stæði í kjallara Sunnusmára 24-28 verða
með raftengi fyrir rafbíla. Það eina sem
íbúar þurfi að gera sé að setja upp
hleðslustöð. Á bílastæðum ofanjarðar
verði líka boðið upp á rafhleðslu bifreiða.
Þá verði boðið upp á deilibíla sem íbúar geti skipst á að nota eftir þörfum.
Henta rafbílum
RAFTENGINGAR VERÐA VIÐ ÖLL STÆÐI Í KJALLARA
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.
Opinn fyrirlestur og pallborð í boði Eflingar-stéttarfélags
mánudaginn 4. júní kl. 16.30 á Grand Hóteli.
Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði flytur erindi og að því
búnu verður boðið til pallborðsumræðna. Í pallborði sitja:
• Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur
• Margrét Valdimarsdóttir, félags- og afbrotafræðingur
• Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
Fundarstjóri er Þórhildur Ólafsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 1.
Fundurinn er hluti af fundaröðinni Stóra myndin þar sem Efling
býður til umræðna um vinnumarkaðstengd málefni sem kunna að
skipta sköpum á komandi kjarasamningavetri.
Þjóðarsáttin og þróun
ójöfnuðar á Íslandi