Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 28

Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is Veit á vandaða lausn fastus.is RESORB OG RESORB SPORT BÆTA UPP VÖKVA- OG SALTTAP Í LÍKAMANUM HENTAR VEL FYRIR VÖKVATAP SEM ORSAKAST AF: • Veikindum s.s. niðurgangs, uppkasta og sótthita • Mikilli svitamyndun t.d. – á sólarströndinni – við vinnu í miklum hita – íþróttaiðkun HENTAR MJÖG VEL TIL AÐ BÆTA UPP VÖKVATAP EFTIR: • Hlaup • Hjólreiðar • Fjallgöngu • Skíðamennsku • Og aðra íþróttaiðkun Minnkar líkur á vöðvakrömpum og þreytu, eykur endurheimt eftir mikil átök Ólafur Jóhann Ólafsson er einn af okkar töframönnum. Nýjastaskáldsaga hans Sakramentið segir m.a. af konu sem stendurframmi fyrir þeirri vægðarlausu tilfinningu að líf hennar hafiverið á misskilningi byggt. Ég skal ekki upplýsa neitt meira um efni bókarinnar, en bið ykkur, góðir lesendur, að staldra við margan snilldarsprettinn í stíl og framsetningu. Aðeins eitt dæmi (bls. 265): „Sumarnóttin. Birtan virðist hvorki koma úr austri né vestri heldur leggst hún yfir landið eins og voð, hlý en af öðrum toga en sólarljósið, hvorki skær né dauf, næstum áþreifanleg. Fjarlægðir hverfa og allt fær annarlegan blæ, meira að segja hendurnar á mér þar sem ég sit við gluggann í flugrútunni. Það er eins og ég sé að horfa á þær ofan í vatni.“ Og svo langar mig að vísa á bls. 300, um svartþröstinn í náttleysunni og öldur gleymskunnar. Þarna eru töfrandi leiftur sem ég bið ykkur að verða vitni að. Og í framhaldi af þessu: „Óbrigðul smekkvísi dregur skarpa línu milli þess, sem má segjast, og hins sem á að vera ósagt.“ Eiríkur Jónsson (1920-2009) rétti mér eitt sinn seðil með þessum orðum Einars Bene- diktssonar sem sá síðarnefndi hafði skrifað í Skírni árið 1922 (bls. 127). Eiríkur Jónsson var stærðfræðikennari við Menntaskólann á Laugar- vatni og síðar lektor við Kennaraháskólann. Í frístundum var hann bók- menntamaður, hafði legið yfir bókum og tímaritum allt frá bernskuár- unum á Prestbakka og virtist muna allt sem hann hafði lesið. Hann skrifaði stórmerkt rit um Íslandsklukku Halldórs Laxness (Rætur Ís- landsklukkunnar 1981) og sýndi þar hvernig Laxness hafði notfært sér eldri texta og sett í nýtt samhengi. Margir móðguðust fyrir Kiljans hönd en ekki þó hann sjálfur. Það var sárt að Eiríkur skyldi ekki fá verk sitt metið til doktorsgráðu, en það er önnur saga. Eiríkur vann einnig þrek- virki, ásamt þeim Ásgeiri S. Björnssyni lektor og Einari Arnalds sagn- fræðingi, með skrá í tveimur bindum yfir mannanöfn, staðanöfn og atriðisorð í Íslenskum annálum; þetta er lykill að sögu Íslands á tíma- bilinu 1400 til 1800. Og nú að málfræði: Halldór Briem var undanfari Björns Guðfinns- sonar að því leyti að málfræðikennslubók hans var margútgefin og lesin í öllum skólum. Halldór Briem skipti atviksorðum í níu flokka. Fimmta flokkinn kallaði hann „orsakaratviksorð“ (bls. 76 í 6. útg. 1932). Á efri ár- um sínum mundi Eiríkur Briem, forstjóri Landsvirkjunar, enn atviks- orðarununa í þeim flokki og orti um hana þessa vísu: Atviks- í flokki orðin sér einni í runu skemmta mér: þess vegna, hvers vegna, hví hrynjandin líklega veldur því. Svona fylgir málfræðin okkur alla ævi og getur orðið kveikja að indæl- um skáldskap. Nú eru atviksorð flokkuð á annan veg. En það skiptir ekki máli, held- ur hitt – að málfræðingar reyna að koma böndum á viðfangsefni sitt á hverjum tíma. Töframenn Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Kjarval Sumarnótt á Þingvöllum, 1931. Nú, þegar upp er staðið frá sveitarstjórnarkosn-ingum, beinist athyglin að landsstjórninni áný.Þau umskipti, sem urðu í fylgi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík í kosningunum, eru mikilvæg fyrir flokkinn, þótt fylgið í höfuðborginni sé auðvitað langt frá því, sem það var fyrr á tíð. Í flestum stærstu sveitar- félögum landsins fór það hins vegar minnkandi. En það er umhugsunarefni fyrir flokkinn hve mikil áherzla er lögð á að halda honum utan meirihluta í borgar- stjórn. Að einhverju leyti er það ímyndarvandi frá því á árum áður en þýðingarmikið að Sjálfstæðisflokkurinn horfist í augu við hann. Kannski á hinn nýi borgarstjórnarflokkur eftir að láta til sín taka í þeim efnum en augljóst er að þar er komið til sögunnar nýtt afl í innanflokksmálum sjálfstæðismanna. Vinstri-grænir ganga mjög laskaðir frá þessum kosn- ingum. Fylgistap þeirra er verulegt og þeir munu hafa veika stöðu í hugsanlegum nýjum vinstri meirihluta í borgarstjórninni. Þessar ófarir munu leiða til margvís- legra sviptinga innan dyra hjá VG á næstu mánuðum, sem munu snúast um ríkisstjórnarsam- starfið. Miðflokkurinn hefur fest sig í sessi og ekki hægt að útiloka að þar sé að verða til flokkur af þeirri gerð, sem í nálægum löndum hefur ýmist höggvið skarð í þá hægri- flokka, sem fyrir eru, eða jafnvel ýtt þeim til hliðar, eins og m.a. hefur gerzt í Danmörku. En jafnframt er athyglis- vert að flokkar, sem hafa orðið til enn lengra til hægri, hafa engum árangri náð. Viðreisn hefur sömuleiðis fest sig í sessi með því að fá fulltrúa kjörna í borgarstjórn en það er einhver falskur tónn í þeirri ákvörðun flokksins að ganga til samstarfs við flokka á vinstri kanti, sem misstu meirihluta sinn í kosn- ingunum, þegar horft er til málflutnings frambjóðenda Viðreisnar í kosningabaráttunni. Ágreiningur um aðild að ESB kemur ekki við sögu í borgarstjórn. Flokkur fólksins hefur líka náð betri fótfestu í pólitík- inni en það er ljóst þegar hér er komið sögu í lífi hans, að flokkurinn þarf að skerpa á og skilgreina betur hlutverk sitt og erindi eins og það horfir við forystu flokksins. En alveg eins og Inga Sæland sló í gegn í sjónvarps- kappræðum fyrir síðustu þingkosningar var það Sanna Magdalena Mörtudóttir, sem sló í gegn í síðustu sjón- varpskappræðum að þessu sinni og kom Sósíalistaflokkn- um á blað. Hún hefur síðan hnykkt á þeirri frammistöðu með einstæðri grein um húsþræla, sem áhugamenn um stjórnmál ættu ekki að láta fram hjá sér fara. En hvað nú? Augljóst er að sú gerjun sem er á ferðinni í verkalýðs- hreyfingunni og eins konar uppreisnarástand þar svo og staðan á vinnumarkaðnum verða mál málanna á næstu mánuðum með „hvarf síldarinnar“, þ.e. neikvæða þróun í ferðaþjónustu, í bakgrunni. Í fyrradag er frá því skýrt á mbl.is, netútgáfu Morgun- blaðsins, að ríkisstjórnin muni leggja til við Alþingi að kjararáð verði lagt niður og annað fyrirkomulag að nor- rænum sið tekið upp við ákvarðanir launakjara þing- manna, ráðherra og æðstu embættismanna. Vonandi er þessi frétt ekki vísbending um að ríkis- stjórnin telji að þar með gleymist ákvarðanir kjararáðs síðustu misserin. Haldi hún það er hún heillum horfin. Staðan á vinnumarkaðnum er einfaldlega sú, að aðrir launþegar kyngja ekki þeirri röksemd, að launahækkanir sem kjararáð hefur ákvarðað fámennum hópum í sam- félaginu svo og launahækkanir æðstu stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins, sem nú eru að verulegu leyti í eigu líf- eyrissjóða, skipti engu máli fyrir efnahagslífið en að fái aðrir launþegar sambærilegar hækkanir verði efnahags- lífið sett á hvolf. Þessi staða er sett fram með mjög skilmerkilegum hætti í álykt- un aðalfundar verkalýðsfélagins Framsýnar á Húsavík, sem birt var fyrir nokkrum dögum í heild á mbl.is. Sú ályktun sýnir vígstöð- una á vinnumarkaðnum í hnotskurn. Þegar hún er lesin verður ljóst að bæði ríkisstjórn og Samtök atvinnulífsins eru í vonlausri stöðu reyni þessir aðilar að notast við þær röksemdir, sem þeir hafa haldið fram síðustu mánuði. Þær neikvæðu fréttir, sem berast af þróun ferðamanna- straums til landsins, eiga eftir að flækja þessa stöðu á vinnumarkaðnum mjög. Ferðaþjónustufyrirtækin munu ekki standa undir miklum kauphækkunum og gífurleg fjárfesting í hótelbyggingum víða um land getur verið í mikilli hættu með öllu sem því fylgir. En fleira er fram undan. Það fer lítið fyrir umræðum um orkupakkann, sem Al- þingi er ætlað að samþykkja vegna aðildar okkar að EES. Það er þeim mun undarlegra þar sem ekki fer á milli mála að hann opnar fyrir þann möguleika að yfirráð yfir einni af þremur helztu auðlindum okkar, þ.e. orku fallvatnanna, geti færzt til Brussel í ekki fjarlægri framtíð. Nú mætti ætla að þingmönnum á Alþingi Íslendinga detti ekki í hug að samþykkja þann „pakka“. En afsal yfir- ráða yfir auðlindum hefur ekki þvælst fyrir þeim, sem vilja aðild Íslands að Evrópusambandinu, og grein eftir nýkjörinn varaformann Sjálfstæðisflokksins hér í Morgunblaðinu fyrir skömmu um þessi mál veldur áhyggjum. Það er verðugra verkefni fyrir núverandi ríkisstjórn að draga til baka með formlegum hætti aðildarumsókn Ís- lands að Evrópusambandinu, sem enn liggur í skúffu í Brussel, þrátt fyrir tilraunir til að telja fólki trú um annað – en að leika sér að þeim eldi, sem orkupakkinn er. Leikur að eldi – á mörgum vígstöðvum Ályktun Framsýnar á Húsa- vík sýnir stöðuna á vinnu- markaði í hnotskurn Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Ísland er fámennt, hrjóstrugt lítiðland á hjara veraldar. Líklega var fyrsta byggðin hér eins konar flóttamannabúðir, eftir að Haraldur hárfagri og aðrir ráðamenn hröktu sjóræningja út af Norðursjó. Engu að síður hafa Íslendingar í sinni ell- efu hundruð ára sögu lagt sinn skerf til heimsmenningarinnar og hann jafnvel fimmfaldan, eins og ég benti á í fyrirlestri í Kaupmannahöfn á dögunum. Eitt er Þjóðveldið frá 930 til 1262. Íslendingar lutu lögum, en bjuggu ekki við ríkisvald, svo að réttar- varsla var í höndum einstaklinga. Mörg verkefni, sem nú eru ætluð ríkinu, voru þá leyst hugvits- samlega. Annað er Íslendinga sögur. Bók- menntagildi þeirra hefur líklega ver- ið ofmetið, en þær eru engu að síður stórkostlegar heimildir um leit þjóð- ar að jafnvægi, úrlausn átaka í rík- isvaldslausu landi. Hið þriðja er fundur Ameríku, þótt Óskar Wilde hafi raunar sagt, að Íslendingar hafi verið svo skyn- samir að týna henni aftur. Hið fjórða er kvótakerfið í sjávar- útvegi, en það er í senn arðbært og sjálfbært. Aðrar þjóðir búa margar við offjárfestingu í sjávarútvegi og ofveiði. Þar eru fiskveiðar reknar með tapi og njóta opinberra styrkja. Nú er verið að taka upp kvótakerfi eins og hið íslenska um heim allan. Hin fimmta er að gera innstæður að forgangskröfum í bú banka, eins og hér var gert með neyðarlögunum 6. október 2008. Með slíkri reglu minnka stórlega líkur á áhlaupum á banka og upphlaupum á götum úti, svo að ríkisábyrgð á innstæðum í því skyni að róa sparifjáreigendur verð- ur óþörf. Evrópusambandið tók regluna upp árið 2014, sex árum á eftir Íslandi. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Skerfur Íslendinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.