Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
Tr ú l o f u n a r h r i n g i r
G i f t i n ga r h r i n g i r
D eman t s s k a r tg r i p i r
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
14 kt. gull með demant.
Verð: 130.384,-
14 kt. gull með demöntum, miðju-
steinn 0,50 ct. Verð: 626.121,-
14 kt. gull með demöntum, miðju-
steinn 0,30 ct. Verð: 298.757,-
14 kt. hvítagull með demöntum,
miðjusteinn 0,30 ct. Verð: 437.577,-
14 kt. rósagull með demöntum.
Verð: 337.847,-
14 kt. gull með demöntum.
Verð: 298.386,-
14 kt. rauðagull og hvítagull með
demöntum. Verð: 354.010,-
14 kt. hvítagull með demöntum,
miðjusteinn 0,20 ct. Verð: 315.559,-
14 kt. gull með demöntum.
Verð: 251.716,-
14 kt. gull með demöntum
Verð: 150.909,-
14 kt. gull með 0,25 ct demant.
Verð: 204.266,-
14 kt. gull með demöntum.
Verð: 239.181,-
Gullsmiðir
Hilmir Freyr Heimissonsigraði á meistaramótiSkákskóla Íslands semlauk um síðustu helgi.
Keppendur voru 39 talsins og var
teflt í tveimur styrkleikaflokkum; í
efri flokknum voru keppendur með
1.600 Elo-stig og meira en í hinum
voru keppendur undir 1.600 Elo-
stigum. GAMMA var aðalstyrktar-
aðili mótsins.
Hilmir vann meistaramótið með
fullt húsi í fyrra en að þessu sinni
hlaut hann fimm vinninga af sex
mögulegum. Aron Thor Mai varð
annar með 4½ vinning og í 3.-5. sæti
urðu Stephan Briem, Björn Hólm
Birkisson og Alexander Oliver, með
3½ vinning hver.
Í flokki keppenda með minna en
1.600 Elo-stig urðu efstir þeir Arnar
Smári Signýjarson og Gunnar Erik
Guðmundsson, hlutu 6½ vinning af
átta mögulegum. Arnar Smári var
hærri á mótsstigum og telst því sigur-
vegari mótsins. Þorsteinn Magnús-
son varð í 3. sæti með 5½ vinning.
Hilmir Freyr var í nokkrum sér-
flokki og var sigur hans öruggur.
Hann hlaut skákuppeldi sitt í Kópa-
vogi eins og andstæðingur hans í
eftirfarandi skák:
Hilmir Freyr Heimisson – Steph-
an Briem
Hollensk vörn
1. d4 e6 2. c4 f5 3. g3 Rf6 4. Bg2
Be7 5. Rc3 0-0 6. Rf3 d6 7. 0-0 a5 8.
b3 Re4
Þetta afbrigði hollensku varnar-
innar hefur gengið í endurnýjun líf-
daga fyrir tilstilli Simons Williams
sem hefur haldið fram ágæti þess á
myndböndum á Youtube.
9. Bb2 Rxc3 10. Bxc3 Rd7 11. e3
De8 12. Re1 Rf6 13. f3 g5 14. Rd3 h5
15. Dd2 a4 16. e4 Rd7 17. exf5 exf5
18. Hae1 Dd8 19. f4 g4 20. He3 Bf6
21. Hfe1 c6 22. d5 c5 23. Rf2 b5
Svartur hefur ekki náð að finna
neina áætlun eftir fremur ómarkvissa
byrjun. Peðsfórnin er tilraun til að
skapa mótspil í vondri stöðu.
24. cxb5 axb3 25. axb3 Rb6 26. Bf1
Bd7 27. Bc4 Rc8 28. Rd1 Hb8 29. De2
Bd4 30. Bxd4 cxd4 31. Hd3 Da5 32.
Hxd4 He8 33. Re3 Ra7 34. Dd2 Db6
35. Kg2 He7?
Með 35. … Rxb5 gat svartur haldið
í horfinu. Valdleysi hróksins skapar
möguleika á fléttu.
36. Rxg4!
Með hugmyndinni 36. … Hxe1 37.
Rf6+! Kf7 38. Rxd7 og vinnur.
36. … hxg4 37. Hxe7 Rxb5 38. Hd3
Be8 39. Db2! Bf7 40. Df6 Hf8 41.
Dxf5 Rd4 42. Dg5+ Kh8 43. Dh4+
Kg8 44. Dxg4+ Kh7 45. Dh5+ Kg8
46. Dg5+ Kh7 47. Df6 Kg8 48. Dxd4
– og svartur gafst upp.
En Stephan lét ekki deigan síga. Í
næstu umferð kom þessi staða upp:
Stephan – Gauti Páll Jónsson
Gauti átti lengst af við ramman
reip að draga í þessari skák en taldi
sig hólpinn því að g5-peðið er við það
að falla. En Stephan hafði séð næsta
leik svarts fyrir ...
50. ... Hg8 51. f7! Hxg5+ 62. Kf1!
Hf5+ 63. Hf2
… og svartur varð að gefa hrókinn
fyrir f-peðið. Hvíta staðan er auð-
unnin og svartur gafst upp nokkrum
leikjum síðar.
Magnús Carlsen
vann Caruana
Magnús Carlsen vann áskoranda
sinn, Fabiano Caruana, í 1. umferð
„norska mótsins“ sem hófst í Staf-
angri á mánudaginn. Eftir hrað-
skákmót með keppendunum tíu
fengu fimm efstu hvítt í fimm skákum
af níu í aðalmótinu. Wesley So sigr-
aði, Magnús varð fjórði, en „vana-
viðbrögðin“ urðu honum að falli í
næstsíðustu umferð:
Carlsen – Aronjan
51. ... g4!
Nú er þvingað að leika 52. fxg4!
hxg4 53. hxg4 Kxe4 54. Kd2 og staðan
er jafntefli. En Carlsen greip í h-
peðið …
52. hxg5 h4!
Hvíti kóngurinn kemst ekki inn í
ferning peðsins sem rennur upp í
borð. Hvítur gafst upp.
Hilmir Freyr vann meistaramót Skákskólans
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Hilmir Freyr við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti.