Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 45

Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 )553 1620 Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Veisluþjónusta Lauga-ás Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Mundu að þú ert ekki ein/n í heim- inum. Góðir vinir umkringja þig og ég tala nú ekki um fjölskylduna sem alltaf er til staðar. 20. apríl - 20. maí  Naut Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú eyðir peningum í dag. Gylliboðunum rignir yfir þig en þú verður að spyrja þig hvort þú hafir þörf fyrir hitt og þetta sem í boði er. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er eins og þú ráðir ekki lengur ferðinni. Spyrntu við fótum og segðu stopp. Þú ert eigin herra í þínu lífi. Börnin þurfa at- hygli. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Þig þyrstir í ævintýri og gott ef þau eru ekki handan við hornið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það vefst eitthvað fyrir þér að taka ákvörðun um framhaldið í erfiðu máli. Vinir þínir koma þér á óvart og þú verður þeim ævinlega þakklát/ur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að leggja sérstaklega hart að þér til þess að hreyfa við þeim málum sem þú berð fyrir brjósti. Vertu óhræddur við að kanna nýjar leiðir og taka einhverja áhættu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert óvenju frjó/r í hugsun í dag. Hrapaðu ekki að ákvörðunum. Þú missir andlitið þegar þú færð fréttir af frændfólki þínu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinir og vandamenn eiga eftir að koma þér verulega á óvart. Þú lokar aug- unum fyrir vandamálinu sem vindur bara upp á sig ef þú grípur ekki í taumana nú þegar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefðu þér tíma til þess að út- skýra hlutina svo ekkert fari milli mála. Ryk er þér þyrnir í augum þannig að þú þarft að bretta upp ermarnar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að hafa hemil á eyðsl- unni. Taktu þér það bessaleyfi að gera ekki neitt í nokkra klukkutíma. Þú átt það skilið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Leiðir þínar og heldur óvenju- legrar manneskju gætu legið saman í dag. Leggðu áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í kringum þig eru. 19. feb. - 20. mars Fiskar Skilaboð virðast týnast núna, hvort sem þau eru í símanum eða krotuð á miða. Reiði gegnir engu öðru hlutverki en að gera fólki lífið leitt, þótt þú haldir annað. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Í fjárhúskrónni finna má. Fjalla milli liggja sá. Úr þeim slettir illyrmið. Opnar síður höfum við. Helgi Seljan svarar: Ég klaufir finn í hverri fjárhúskró í fjalli skarð við stundum nefnum klauf. Menn sletta bara úr klaufum býsna nóg, við buxnaklaufir dugar ekkert gauf. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Kind og fjöllum finnst hún á, við fagnað úr þeim sletta má og á pilsum eins og rauf. ég ætla’ að giska hér á klauf. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Í krónni finna klaufir má. Klaufir milli fjalla sá. Úr klaufum slettir karlfólið. Klaufum buxna lokum við. Þá er limra: Tveir lagsmenn úr skorpnu skaufunum skvettu’ út úr buxnaklaufunum, þeir migu’ upp í vindinn og mændu á tindinn með skrínukost nógan í skaufunum. Síðan kemur ný gáta eftir Guð- mund: Nú er úti regn og rok, rís ég mínu bóli frá, vísnagátu í vikulok venju samkvæmt yrkja má: Hryggur þrátt ver hana skaða. Hún vínanda færir þér. Gera þeir, sem heyi hlaða. Hálfgerð rola þetta er. Gísli Jónsson orti: Já, víst eru limrurnar liðugar en löngum þær bestu ósiðugar. Þau orð sem þar henta má bara alls ekki prenta og aðrar bara ekki neitt sniðugar. Hér er limra eftir Jóhann S. Hannesson: Það er ekki andskotalaust hvað undarlegt fólk er í haust; jafnvel biskupinn kvað sjást með klámmyndablað og kyrjaði popplög við raust. Hér er vel kveðið en höfundinn þekki ég ekki: Lifnar hagur, hækkar brá, ýrnar bragagjörðin; ó, hve fagurt er að sjá ofan í Skagafjörðinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nú fer að sjást í klaufirnar Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „GETURÐU BORIÐ KENNSL Á MANNINN SEM SLÓ ÞIG Í HNÉÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stórmál! VISSUÐ ÞIÐ AÐ HUNDAR ERU SKYLDIR ÚLFUM? MJÖG, MJÖG VANDRÆÐALEGUM ÚLFUM SONUR, ÞEGAR ÉG VAR Á ÞÍNUM ALDRI DREYMDI MIG UM AÐ VERA GRÍNISTI! ÉG GÆTI ALDREI VERIÐ GRÍNISTI! MIG DREYMIR UM AÐ VERA SKÁLD! SKO TIL, ÞÚ GÆTIR VEL VERIÐ GRÍNISTI! Það að brenna út er raunverulegáhætta fyrir fólk í ýmsum störf- um. Það er mikilvægt að átta sig á einkennunum til að geta brugðist við í tíma. Á meðal einkenna er að líða illa andlega, vera óglatt, eiga erfitt með svefn og fá oft kvef. Önnur ein- kenni eru að finnast maður ekki metinn að verðleikum og vera út undan hjá vinnufélögum. x x x Það eru einmitt starfsmennirnirsem leggja hart að sér í vinnunni sem eiga enn frekar á hættu að brenna út. Það sem eykur hættuna er að fá ósanngjörn tímatakmörk fyrir verkefni, aukna ábyrgð án þess að vera launað fyrir og ófyrirsjáan- leg dagskrá, svo eitthvað sé nefnt. x x x Margir eru þreyttir og stressaðirog líta á það sem eðlilegan hlut að hafa of mikið að gera. Samkvæmt bandarískri könnun finnst 50% fólks það vera útkeyrt vegna vinnu miðað við 18% fyrir tveimur áratugum. Ein ástæða þessa getur verið að það virðist vera í tísku að hafa brjálað að gera. x x x Dæmigert samtal tveggja kunn-ingja sem hafa ekki hist lengi gæti verið einhvern veginn svona: Spurning: „Hvað er að frétta?“ Svar: „Ekkert sérstakt nema bara brjálað að gera.“ Og þá er alveg öruggt að hinn myndi kinka kolli og segjast skilja það. x x x Hættum endilega að lofa stressiðog verum meira í núinu. Það er alvarlegt mál að brenna út og fólk getur þurft langan tíma til að jafna sig. Það er hægt að vera góður starfsmaður án þess að ganga af sér dauðum. Fólk ætti að muna að eiga sér skemmtileg áhugamál sem veita tækifæri til afstressunar. Vinnu- staðir þurfa líka að hafa hagsmuni starfsfólks að leiðarljósi, það marg- borgar sig til lengri tíma. Eitt af því sem getur gagnast starfsfólki er að fá að vinna heima við og við. Það get- ur hvatt til aukinnar sköpunargleði að fá að vinna í rólegu umhverfi. vikverji@mbl.is Víkverji Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti. (Síðara Tímóteusarbréf 3.16)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.