Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is AF TÓNLIST Anna Marsibil Clausen annamarsy@mbl.is Þau eru merkileg, hugrenninga- tengslin sem titill fyrstu einfara- skífu Loga Pedro kalla fram. Ís- lensk menningararfleifð á eftir allt ekki margt annað efni að sækja í þegar kemur að „litlum svörtum strákum“ en vísnabókina 10 litlir negrastrákar sem skartar ras- ískum skopstælingum af þeldökk- um drengjum sem deyja einn af öðrum. Samanburðinum lýkur þar; þótt dauðinn komi vissulega fyrir á Litlum svörtum strákum er yrkis- efni Loga fyrst og fremst lífið. Og þó. Platan er vissulega sóló- verkefni en þar koma samt ýmsir aðrir við sögu, bæði í eigin per- sónu og á bak við tjöldin. Má þar nefna eins ólíka listamenn og Króla, GDRN og Skítamóral, auk þess sem lagið „Fjara út“ virðist nánast alfarið úr smiðju Arnars Inga Ingasonar, eins af samverkamönnum Loga úr Sturlu Atlas. Merking hugtaksins „sóló“ er þannig teygjanleg, eins og raunar er nánast gefið í þeim R&B/popp-stíl sem Logi vinnur með, en slík samvinna hefur hlotið aukið vægi og virðingu á síðustu árum. Þá hefur Logi einnig gefið út að í raun eigi sjö mánaða sonur hans, Bjartur Esteban Pedro, jafn- mikið í plötunni og hann sjálfur sökum þeirra andlegu tímamóta sem fæðing hans knúði fram. Vaknað á dansgólfinu Svo aftur sé snögglega vikið að fyrrnefndri vísnabók, þá rok- seldist sú við endurútgáfu árið 2007, umheiminum til svo mikillar furðu að þess er víða getið í um- fjöllunum um upprunalega lagið, „10 Little Indians“, sem rekur ræt- ur sínar til Bandaríkjanna. Íslend- ingar eru nefnilega ekki alltaf jafn „vakandi“ þjóð og við viljum vera láta. Þegar „n-orðið“ svonefnda – eins konar Voldemort enskrar tungu – hljómar úr hátölurunum á B5 syngur pappírshvítur skarinn almennt með hástöfum og án um- hugsunar. Eins mun hann taka undir „Litlir svartir strákar gráta af innlifun“ og kannski er það allt í lagi. Á þessu tvennu er stór stigs- munur en meðvitundarlaus söng- urinn mun kannski segja eitthvað. Eitthvað sem við nennum samt ekki að heyra. Það er ekki þægi- legt að þurfa alltaf að hugsa allt. Litlir svartir strákar er aftur á móti nokkuð þægileg. Söngrödd Loga er þýð og oft næstum bros- mild, sem er áhugavert í ljósi þess hve alvarlegur ungur maður hann annars virðist. Melódíurnar eru kunnuglegar og auðvelt er að grípa flest viðlögin. Lagasmíð- arnar eru í grunninn lausar við til- gerð en jafnframt er lítið um til- raunastarfsemi svo útkoman verður nokkuð örugg og útvarps- væn – draumkennt dægurflugu- djamm. Pródúseringin er hins veg- ar full metnaðar og vinnusemi og þar skína hæfileikar Loga skærast, í gegnum nostur með ris og fall, óvænt hljóð og effekta sem meðal- Grátið með Loga Pedro Merkingarþrungnir „Textar Loga eru einlægir, einfaldir og aðgengilegir en þeir eru jafnframt merkingar- þrungnir og það er einmitt þar sem hann tekur skrefið út fyrir þægindarammann – sinn eigin og jafnvel hlust- andans,“ segir pistilritari m.a. um nýútkomna plötu Loga Pedros Stefánssonar. hlustandinn, þar á meðal undir- rituð, meðtekur aðallega ómeð- vitað þar til fagmaður réttir fram vísifingur. Auk „Dúfan mín“ (ft. Birnir), sem nú þegar hefur sankað að sér hundruðum þúsunda spilana á Spotify, og titillagsins má gera ráð fyrir að þorri plötunnar muni rata á dansgólf borgarinnar í einhverju formi. Þar má kannski sérstaklega nefna „Leit’að“ (ft. Króli) sem er sérlega grípandi og lokalagið „Tíma“ (ft. Floni, Birnir) þar sem reggaeton-takturinn leitar beint í mjaðmirnar. Þegar gleðin víkur fyrir textum En þótt lögin séu mörg hver dansvæn og einkar vel til þess fall- in að syngja með í hugsunarleysi í því sem maður skellir í sig einum mangó-tangó í von um sleik og meððí má einnig staldra við og hlusta á orðin sem prýða þau. Þau sóma sér nefnilega alveg jafnvel á klístruðum skemmtistað eða í mið- bæjarpartíi og í botni í grátbíltúr, með rúðurnar niðri og barns- hjartað í lúkunum. Textar Loga eru einlægir, ein- faldir og aðgengilegir en þeir eru jafnframt merkingarþrungnir og það er einmitt þar sem hann tekur skrefið út fyrir þægindarammann – sinn eigin og jafnvel hlustandans. „Leyfðu mér að leysast upp – lofa mér að hverfa“ syngur hann á Litlum svörtum strákum og slær tóninn fyrir umræðu sem tekur jafnt til hjartasorgar sem djúp- stæðs þunglyndis. Þannig ráfar „Betra líf“ frá skammvinnri en þýðingarmikilli sumarást yfir í frjálst fall: „Út í nóttina, út í bláinn. Kveikið á kerti, ég verð dáinn og svo kemur betra líf.“ Sömuleiðis er auðvelt að hlusta aðeins eftir ljúfum tónum „Dúfunnar minnar“ – velja róm- antíska hugarangrið fram yfir það ógnvænlega. Þegar Logi syngur um „þúsund litlar fiðlur til að grenja við“ vísar hann sjálfur í þá eitruðu karlmennsku sem bannar tilfinningar með því að gera lítið úr eigin sársauka eitt augnablik. Augnablikið er skammlíft. „Ég hugsa ég gæti drepið mig, mér líður best hér þegar sólin sest ekki/ Mun þessi vetur loks krossfesta mig/ Gera mig að legendi.“ Hversu margir listamenn hafa ekki orðið ódauðlegir einmitt við það að deyja? Persónulegt samfélagsmein Logi hefur tjáð sig á sam- félagsmiðlum um þær sjálfsvígs- hugleiðingar sem ásóttu hann uns hann fékk viðeigandi aðstoð. Þær eru um margt rauður þráður í gegnum Litla svarta stráka, sem fjallar, þegar upp er staðið, mest um það að vera „lítill“. Þunglyndi og innri átök eru ekki nýtt yrkisefni, hvorki á Ís- landi né úti í hinum stóra popp- heimi. Titill nýlegs stórsmells rapparans Logic er t.d. símanúmer hjálparlínu gegn sjálfsvígum (sam- bærilegt númer fyrir Ísland er 1717). Hér heima hafa svo ýmsir rapparar, og þá einna helst Gísli Pálmi, tekið fyrir fíknivanda og andleg áhrif hans. Eins mikilvæg og sú umræða er þá nær hún aðeins til afmarkaðs hóps. Skammdegisþunglyndi er aftur á móti einmanalegasta sam- íslenska náttúruaflið, nokkuð sem við þekkjum öll í mismiklum mæli. Váin virðist þó sérlega slæm þegar kemur að jafningjum Loga, en sjálfsvíg voru algengasta dánar- orsök ungra karlmanna á síðasta ári. Þeir textar sem snúa að þeim tilfinningum eru þannig persónu- legir, en segja samt breiðari sögu, sögu sem getur kannski skipt sköp- um í eyru sem finna til einsemdar. Litlir svartir strákar verður rifin niður af þeim sem hatast við rjómakenndan poppmeginstraum- inn og upphafin af þeim sem þrá meiri grípandi, dansvæna íslenska tónlist. Eins verða einhverjir sem velta fyrir sér hversu sannur Logi er í tjáningu sinni, enda oft grunnt á náunga-skeptíkinni í fámennu samfélagi. En allir þeir sem vonast eftir að fleiri ungir menn læri að tala um tilfinningar sínar ættu að fagna, á dansgólfum, í hipstera- partíum og í bíltúrum. Logi Pedro Stefánsson gaf á dögunum út fyrstu sólóplötu sína, Litlir svartir strákar. Logi steig fyrst fram á sjónarsvið íslenskrar tónlistar sem meðlimur hinnar sálugu Retro Stefson, þá varla skriðinn á táningsaldur. Síðan þá hefur hann get- ið sér gott orð sem einn virtasti pródúsent sinnar kynslóðar og fyrir leik með hljómsveitum á borð við Sturla Atlas og Young Karin. » Litlir svartirstrákar verður rifin niður af þeim sem hat- ast við rjómakenndan poppmeginstrauminn og upphafin af þeim sem þrá meiri grípandi, dansvæna íslenska tón- list.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.